Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 32

Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 32
32 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kynnti þegnum sínum nýtt kórónuveiruregluverk á þriðju- daginn með gildistöku 4. júlí. Svo sem margir höfðu hvort tveggja von- að og búist við mun krám, veitinga- húsum, kvikmyndahúsum og hár- snyrtistofum þá leyfilegt að opna á ný auk bókasafna, skemmtigarða, dýragarða og fleiri samkomustaða. Umræðan síðustu daga hefur einna mest snúist um örlög regl- unnar um tveggja metra bil milli fólks. Hún verður nú leyst af hólmi með gildistöku „eins metra plús“- reglu sem felur í sér að fólk skuli áfram halda tveggja metra bili þar sem því verður við komið, en að öðru leyti hafa minnst einn metra í bil auk þess að nýta aðrar mögulegar smit- varnir á borð við andlitsgrímur. Krefjast ráðstafana ef illa fer Tveggja metra reglan verður áfram í gildi í Skotlandi, Wales og á Norður-Írlandi. Sir Patrick Vall- ance, helsti ráðgjafi Bretlands- stjórnar á vísindasviðinu, sagði á þriðjudaginn, að áætlun forsætisráð- herrans væri ekki áhættulaus auk þess sem háværar raddir heyrast úr ranni heilbrigðisyfirvalda sem krefj- ast tímabærra ráðstafana komi til nýrrar smitbylgju. Raunveruleg hætta til staðar Í opnu bréfi í British Medical Journal skrifa formenn stéttarfélaga fjögurra heilbrigðisstétta, þar á meðal lækna og hjúkrunarfræðinga, að vandi sé að spá um þróun farald- ursins, nú hafi það sést að raunveru- leg hætta sé á staðbundnum smit- bylgjum og megi því vel búast við nýrri bylgju í kjölfar nýrra reglna. Allra ráða beri að neyta til að fyrir- byggja frekari dauðsföll samhliða því að blása lífi í hagkerfið. Johnson boðar „eins metra plús“-reglu  Uggur vegna annarrar smitbylgju AFP Breytingar Boris Johnson kynnir nýju reglurnar í fyrradag. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Sendiherrar Evrópusambandsins gagnvart löndum utan þess, ásamt fleiri embættismönnum sambands- ins, funduðu í gær um opnun ytri landamæra álfunnar 1. júlí og ráð- stafanir varðandi umferð fólks frá ríkjum sem enn eiga í vök að verjast gegn kórónuveirunni, svo sem Bandaríkjunum, þar sem fjöldi smit- aðra nálgast nú tvær og hálfa millj- ón og skráð dauðsföll um miðjan dag í gær voru 123.476. Fyrsta mál á dagskrá er að setja skilyrði sem ríki utan ESB þurfa að uppfylla svo að íbúum þeirra verði heimilt að stíga fæti á evrópska jörð og í kjölfarið að útbúa tvo lista yfir örugg lönd og síður örugg lönd. Sá síðarnefndi yrði þó ekki bannlisti, en lönd sem á hvorugan þessara lista næðu yrðu á bannlistanum. Drög að þessum listum hafa þeg- ar litið dagsins ljós og meðal fjöl- miðla sem segjast hafa þau undir höndum er bandaríska dagblaðið New York Times sem greinir frá því að eftir öllum sólarmerkjum að dæma muni evrópskt sólarljós lík- lega ekki skína á bandaríska ferða- langa fyrst um sinn. Reiðarslag og áfellisdómur „Fari svo sem horfir verða banda- rískir gestir settir í sama flokk og Rússar og Brasilíumenn og vera óvelkomnir, sem er reiðarslag fyrir stöðu Bandaríkjanna í heiminum og áfellisdómur yfir þeim aðgerðum sem Donald Trump forseti hefur gripið til gegn útbreiðslu faraldurs- ins,“ skrifar fréttaritari blaðsins í Brussel. Breska ríkisútvarpið BBC nefnir einnig Brasilíu og Rússland, auk Bandaríkjanna, sem ríki á evrópska bannlistanum fyrst um sinn og greinir enn fremur frá því að helsta áskorun fundarmanna ESB verði að ákveða hvaða forsendur skuli liggja til grundvallar áhættumati ein- stakra ríkja og hvaða gögn frá heil- brigðiskerfum ríkjanna skuli metin áreiðanleg. Þau ríki sem teljast hafa hæsta tilkynningartíðni tilfella miðað við síðustu upplýsingar Sóttvarnamið- stöðvar Evrópu, eru Brasilía, Perú, Síle, Panama og Sádi-Arabía. Hvort tveggja Rússland og Bandaríkin eru neðar en þessi ríki á kvarða yfir til- felli á hverja 100.000 íbúa, en þó ofar en flest Evrópuríki, greinir BBC frá. Frakkar vilja gagnkvæmni Listarnir tveir yfir örugg og síður örugg lönd byggja eins og er á skipt- ingu sem miðast við færri en 16 til- felli á hverja 100.000 íbúa og allt að 20 tilfelli á hverja 100.000. Eins telja fulltrúar sumra ríkja að líta beri til þess hvort um gagnkvæma gestrisni sé að ræða. Þannig leggja Frakkar til að þegnar þeirra ríkja einna sem hleypi evrópskum þegnum inn fyrir sín landamæri fái að heimsækja Evrópu og Spánverjar segjast mjög gjarnan vilja bjóða nágranna sína í Marokkó velkomna. Olía á eld slæmra samskipta Katya Adler, Evrópumálaritstjóri BBC, kveður Evrópusambandið skiptast í tvær fylkingar í opnunar- málum. Vegist þar á sjónarmið þeirra sem vilja freista þess að bjarga því sem bjargað verður af því sem eftir lifir hábjargræðistíma ferðamannaiðnaðarins og á hinn bóginn þeirra sem óttast að allt fari í bál og brand hvað snertir sóttvarnir og útbreiðslu kórónuveirunnar. Adler segir málið þó langt í frá svo svart-hvítt sem þessi sjónarmið gefi til kynna. „Að búa til lista yfir lönd sem teljist „þóknanleg“ Evr- ópusambandinu til ferðalaga innan þess er um leið pólitísk og fjárhags- leg ákvörðun. Ferðamenn dæla vel þegnu fjármagni inn í Covid-19- hrjáð hagkerfi en skoðanir eru engu að síður skiptar,“ segir hún. Áhyggjur sumra snúist um að heimsóknabann vegna kórónuveir- unnar getið vakið viðsjár milli ríkja sem átt hafi góð samskipti áður fyrr og enn fremur verið olía á eld sam- skipta sem voru slæm fyrir. Lýkur Adler máli sínu með því að benda á brothætt samband ESB við Moskvu annars vegar og hins vegar Wash- ington, höfuðborgir ríkja sem stefni beint á evrópska bannlistann. Viðbúið að gáttir Evrópu verði lokaðar Bandaríkjamönnum  ESB sest á rökstóla um opnanir  „Reiðarslag fyrir stöðu Bandaríkjanna“ AFP Múrverk Donald Trump Bandaríkjaforseti við athöfn í San Luis í Arizona í fyrradag í tilefni þess að 200. mílan í Mexí- kómúrnum umdeilda hefur verið lögð. Svo kann að fara að hann megi vænta sama útsýnis til Evrópu eftir 1. júlí. Nefnd á vegum öldungadeildar Bandaríkjaþings hyggst útbúa regluverk sem snýr að upplýsinga- miðlun bandarískra yfirvalda um fljúgandi furðuhluti (FFH), hvort tveggja svo almenningi sé kleift að fylgjast betur með upplýsinga- streymi þar og einstakar stofnanir betur í stakk búnar til að deila gögnum sín á milli. Varnarmálaráðuneytið játaði í desember 2017 að það fjármagnaði enn starfsemi eftirlitsdeildar vegna FFH sem ku hafa verið lögð niður árið 2012. Þingnefndin kveðst þó ekki hafa þungar áhyggjur af ver- um frá öðrum hnöttum, hún sé þeim mun uppteknari af verum frá þess- um hnetti, einkum hvað snertir njósnir og upplýsingaöflun er- lendra ríkja, svo sem Kína. BANDARÍKIN Bæta miðlun upp- lýsinga um FFH Mannleg mistök flugstjóra og flugumferðarstjóra urðu þess valdandi að farþegaflugvél pakist- anska flugfélagsins Pakistan Inter- national Airlines hrapaði í síðasta mánuði með þeim afleiðingum að 97 létu lífið. Þetta er niðurstaða bráðabirgðaskýrslu rannsakenda. „Hvorki flugstjóri né flug- umferðarstjóri fóru eftir settum reglum,“ sagði flugmálaráðherra Pakistans þegar hann kynnti nið- urstöðu skýrslunnar á þinginu. Sagði hann flugmennina hafa verið upptekna við að ræða kórónuveiru- faraldurinn þegar þeir áttu að vera að undirbúa vélina fyrir lendingu. „Flugmennirnir voru ekki með nægjanlega einbeitingu.“ PAKISTAN Voru að ræða heims- faraldur fyrir slysið Banaslys Annar hreyfla vélarinnar. AFP Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is FÁST Í BYGGINGA- VÖRUVERSLUNUM Bestu undirstöðurnar fyrir SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA DVERGARNIR R Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Skoðið nýjuheimasíðuna islandshus.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.