Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
4ja rétta draumaveisla:
• Nauta carpaccio
• Tígrisrækjur Nobashi
• Hægeldað Andarlæri
• Jarðarber & Yuzu
Kynningarverð í júní 6.990 kr.
Fullt verð: 9.990 kr.
DRAUMAVEISLA
Jú, val mitt 27. júní
nk. þegar forsetakosn-
ingar fara fram er
mjög auðvelt. Sem
fullveldis- og þjóð-
ríkjasinni sem styður
einstaklingsfrelsi,
borgaraleg réttindi og
skyldur á grundvelli
okkar kristnu þjóð-
menningar, siða og
venja, sem vill verja
okkar helstu auðlindir
í eigu íslensku þjóðarinnar og mikil-
væg fyrirtæki, sbr. Landsvirkjun,
auk hins mikilvæga málskotsréttar
forseta, styð ég og kýs Guðmund
Franklín Jónsson sem forseta ís-
lenska lýðveldisins.
Þarf þetta nokkuð að
vera lengra eða flókn-
ara? Sjálfstætt þjóðríki,
frjáls þjóð í eigin
landi þar sem sam-
kennd og virðing ríkir!
Held ekki. Já, kýs því
Franklín forseta fólksins fyrir land
mitt og þjóð!
Svo einfalt!
Kýs Franklín
Eftir Guðmund
Jónas Kristjánsson
Guðmundur Jónas
Kristjánsson
» Já, kýs því
Franklín
forseta fólksins
fyrir land mitt
og þjóð!
Höfundur er bókhaldari.
gjk@simnet.is
Nú stendur fyrir
dyrum árlegur aðal-
fundur SÁÁ, þar sem
félagsmenn kjósa til
forystu í félagasamtök-
unum.
Forystu sem á að
spegla vilja þeirra sem
láta sig mál fólks með
fíknsjúkdóm varða,
efla þjónustu við það
og koma til móts við
nýjar þarfir.
Tækifærin felast í framtíðinni, í
samtali og samningum við yfirvöld
um þjónustuna, í samvinnu við aðra í
velferðarþjónustu, í unga fólkinu
sem þarf að komast að með sinn
brennandi áhuga á efninu og getu til
að vinna í teymi með mörgum fag-
stéttum. Við sem erum eldri þurfum
að tryggja að það gerist, skapa tæki-
færi til góðs samstarfs og samtals,
og andrými fyrir þá sem taka við.
Ekki eru allir á sama máli. Fyrr-
verandi formaður vill nú taka keflið
að nýju, þrátt fyrir að hafa fengið
sína áratugi og leitt samtökin góðu
heilli með frumkvöðlastarfi, á þann
stað sem þau eru í dag. Stuðnings-
menn hans tala um afturhvarf til
fyrri tíma, sjá ekki þörf fyrir sprot-
ann í teymisvinnu og fjölbreytni í
faglegu meðferðarstarfi.
SÁÁ hefur rekið meðferð fyrir
fólk með áfengis- og vímuefnafíkn
og aðstandendur þeirra, frá árinu
1977. Í dag er meðferðin fjölbreytt
og á mörgum stigum.
Meðferðir sem SÁÁ veitir, á
Sjúkrahúsinu Vogi, eftirmeðferðar-
stöðinni Vík og göngudeildum, eru
vel metnar og viðurkenndar í sam-
félaginu. Það er árangur sem SÁÁ
hefur náð á þessum 42 árum, og er
ómetanlegur, þar sem almennt
þykir í dag sjálfsagt að
þeir sem þjást af fíkn-
sjúkdómi fái meðferð
við hæfi eins og aðrir
sem hafa aðra sjúk-
dóma.
Ég finn hvergi annað
en traust og velvilja
gagnvart okkar starfs-
semi, okkar sérhæfðu
meðferð fyrir fólk með
fíknsjúkdóm og þeirra
aðstandenda. Til okkar
vísar fagfólk úr öllum
geirum og treystir á
okkar þjónustu sem
mikilvægan hlekk í velferðarþjón-
ustunni. Yfirvöld lýsa miklum áhuga
á okkar hópi sjúklinga og vilja hon-
um vel og ítreka mikilvægi þess að
fleiri komi að meðferð þeirra í okkar
velferðarkerfi. Í samfélaginu er
ákall um betri þjónustu, breiðari
nálgun, meiri samvinnu. Litið er til
SÁÁ í þessu samhengi líka og þar
eigum við að vera; í samtalinu, í
samvinnu, sem mikilvægur hlekkur í
velferðarþjónustu við fólk með fíkn-
sjúkdóm og þeirra aðstandendur.
Það er engin ástæða til annars en
að hafa trú á starfsemi SÁÁ og því
fólki sem vinnur við hana í dag.
Þjónustukannanir á öllum okkar
starfsstöðum undanfarin ár gefa
skýrt til kynna að skjólstæðingar
okkar eru ánægðir með meðferðina
og þykir hún gagnast sér vel. Það er
hvatning til að halda áfram á sömu
braut.
Eftirspurnin hefur aukist á hverju
ári, eins og endurspeglast í auknum
fjölda beiðna um innlögn á sjúkra-
húsið Vog. Á sama tíma jókst fjöldi
einstaklinga á biðlista þar sem fjöldi
innritana hefur haldist sá sami.
Rekstur meðferðarsviðs hefur
verið mjög stöðugur lengi og engar
sviptingar í honum ár frá ári. Sam-
tökin standa í skilum, skila góðum
rekstri og árin hafa gengið upp. Ár-
legar samþykktir framkvæmda-
stjórnar SÁÁ eru á þeim háu fjár-
hæðum sem samtökin SÁÁ greiða
með heilbrigðisrekstrinum. Engar
verulegar sveiflur eru í stöðugildum
eða almennum rekstrarkostnaði.
Launakostnaður hækkar minna
milli ára en launavísitala. Árlegt tap
á rekstrinum hefur verið svipað
undanfarin 10 ár. Í rekstrarkostnaði
munaði þó miklu um 80 milljóna
króna hækkun á ársleigu frá 2018
sem leggst á meðferðarsvið, eftir að
samtökin byggðu glæsilega með-
ferðarstöð á Vík sem tók við af
Staðarfelli og gömlu Vík í byrjun árs
2018. Allar húseignir sem SÁÁ hafa
byggt eru leigðar til starfseminnar
eins og eðlilegt er. Starfsemin er
rekin á lágmarksmannafla með lág-
marksstoðstéttum og í raun engri
yfirbyggingu. Allt starfsfólk á með-
ferðarsviði er í sjúklingavinnu þótt
það sé jafnframt stjórnendur.
Það hefur verið ljóst í mörg ár að
frekari sparnaði í heilbrigðisrekstr-
inum verði ekki náð án þess að
draga úr þjónustu. Stjórn hefur þó
samþykkt að halda úti sama þjón-
ustumagni með því að greiða með
starfseminni af sjálfsaflafé SÁÁ ár-
um saman. Núna á ári heimsfarald-
ursins COVID-19 varð ljóst að sam-
tökin muni ekki geta greitt nema að
hámarki 127 milljónir með heil-
brigðisrekstrinum, og því var gerð
krafa um 125 milljóna sparnað í
sjúkrarekstrinum. Við þessum
sparnaðarkröfum stjórnar varð ekki
orðið nema með því að draga úr
þjónustu og ný áætlun gerð. Á
Sjúkrahúsinu Vogi verða nú það
sem eftir lifir árs færri stöðugildi og
20% færri innritanir, sem hafa verið
yfir 2.100 á ári í 20 ár. Það er þó
meira en þjónustusamningur við rík-
ið segir til um. Ekki er fyrirhugað að
minnka aðra þjónustu, þ.e.a.s.
óbreytt þjónusta á eftirmeðferðar-
stöðinni Vík, göngudeildum, búsetu-
úrræðinu Vin og lyfjameðferð við
ópíóíðafíkn. Ekki hefur fram-
kvæmdastjórn samtakanna leitað
formlega eftir aðstoð yfirvalda og
eru það vonbrigði. Vegna augljóss
áhuga á starfsemi SÁÁ fékk fjár-
laganefnd Alþingis nýlega að eigin
frumkvæði samþykkt 30 milljón
króna aukaframlag til SÁÁ sem eru
frábærar fréttir og á eftir að koma
sér vel og draga úr afleiðingum
sparnaðaráætlunar.
Hvert skal SÁÁ halda?
Þetta snýst um faglegan heil-
brigðisrekstur sem samtökin reka,
nauðsynlega þjónustu við fólk með
fíknsjúkdóm og aðstandendur
þeirra. Það er nauðsynlegt fyrir
SÁÁ að eiga gott samstarf við yf-
irvöld og samráð um þá þjónustu
sem þörf er á og gera um hana raun-
hæfa samninga til framtíðar. Til
þess þarf góð samskipti og vilja, for-
manns og framkvæmdastjórnar í
samvinnu við yfirmenn á meðferðar-
sviði.
Möguleikar framtíðar liggja í
teymisvinnu allra þeirra heilbrigð-
isstétta sem nú vinna að meðferðinni
og þarf enn frekari samvinnu við
aðrar fagstéttir og stofnanir.
Þjónustan sem SÁÁ veitir er
komin á þann stað að vera meg-
inþungi slíkrar meðferðar á Íslandi
og er greidd að mestum hluta með
samningum við Sjúkratryggingar
Íslands. Engin teikn eru á lofti um
annað en að svo verði áfram.
Framtíðin er í aukinni teymis-
vinnu með áhugasömu fagfólki sem
vinnur að sama markmiði. Fagleg
samvinna við aðra í velferðarþjón-
ustu, stofnanir og einstaklinga,
verður að vera í fyrirrúmi.
Framtíðin er í okkar unga áhuga-
sama starfsfólki sem þarf andrými
og tækifæri til að koma sinni fag-
þekkingu til skila í teymisvinnu til
handa fólki með fíknsjúkdóm og
þeirra aðstandendum.
SÁÁ ætti að halda þangað, gera
þessa framtíð mögulega og hleypa
að nýjum og fjölbreyttum hópi.
Hvert skal SÁÁ halda?
Eftir Valgerði
Rúnarsdóttur » Á Sjúkrahúsinu Vogi
verða nú það sem
eftir lifir árs færri
stöðugildi og 20% færri
innritanir, sem hafa ver-
ið yfir 2.100 á ári í 20 ár.
Valgerður Á.
Rúnarsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
lækninga hjá SÁÁ og forstjóri
Sjúkrahússins Vogs.
Fjöldi innlagningarbeiðna og á biðlista á Vog
3.500
3.250
3.000
2.750
2.500
Innlagningarbeiðnir
2015 2016 2017 2018 2019 2020
Yfir 300
á biðlista
Yfir 400
á biðlista
Yfir 400
á biðlista
500-600
á biðlista 600-700
á biðlista
530
einstak-
lingar á
biðlista í
júní 2020
Það er mér ljúft að
setja á blað nokkrar
línur til að mæra
mætan mann sem
heitir Guðni og er
forseti Íslands. Kynni
mín af Guðna hófust
þegar ég og fleiri
stóðum fyrir endur-
heimt votlendis á
Bessastöðum en
Guðni hafði samþykkt
að gerast verndari Votlendissjóðs-
ins þegar hann var settur á fót,
enda um gríðarlega mikilvægt
verkefni að ræða fyrir framtíðar-
kynslóðir þessa lands, að draga úr
losun gróðurhúslofttegunda og
vernda um leið náttúru þessa lands
ásamt því að byggja
upp ný vistsvæði fyrir
fugla. KSÍ ásamt
landsliðinu í knatt-
spyrnu fjármagnaði
þessa endurheimt vot-
lendis á Bessastöðum í
tengslum við ferðalag
landsliðsins á heims-
meistaramótið í Rúss-
landi.
Guðni mætti með
skóflu og tók að moka
í skurðinn með Aroni
landsliðsfyrirliða,
Mumma umhverfisráðherra og
fleira góðu fólki.
Guðni hefur allt frá þessum degi
átt mína aðdáun, virðingu og þakk-
læti fyrir að vera einlægur, hjarta-
hlýr og góður maður sem setur
þjóðarhag ofar sínum eigin og
kemur fram af virðingu við allt og
alla.
Guðni er fyrirmynd á svo marga
vegu og fetar þar í fótspor Vigdís-
ar Finnbogadóttur sem við elskum
öll. Ég veit að Guðni á eftir að
reynast okkur góður forseti,
sameiningartákn og fyrirmynd um
ókomin ár og því vil ég hvetja alla
til að mæta á kjörstað á laugar-
daginn og sýna í verki hvaða hug
við berum til forsetaembættisins
og Guðna Th. Jóhannessonar.
Með vinsemd og virðingu.
Guðni er fyrirmynd
Eftir Ásbjörn
Björgvinsson
Ásbjörn Björgvinsson
» Því vil ég hvetja alla
til að mæta á kjör-
stað á laugardaginn og
sýna í verki hvaða hug
við berum til forseta-
embættisins og Guðna
Th. Jóhannessonar.
Höfundur er framkvæmdastjóri.