Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 40
REYKJAVÍK40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Flest bendir til að kórónuveirufar-
aldurinn hafi hjálpað til að minna Ís-
lendinga á hvað þeir búa í áhuga-
verðu landi. Enda sést það vel á
færslum vina og ættingja á sam-
félagsmiðlum um þessar mundir að
þeir ætla aldeilis að nota sumarið til
að ferðast vítt og breitt um Ísland,
uppgötva alls konar náttúruperlur,
borða á framúrskarandi veitinga-
stöðum í öllum fjórðungum, og
mýkja vöðvana í heitum laugum
hringinn í kringum landið.
En það þarf ekki að halda út fyrir
borgarmörkin til að lenda í ævintýr-
um og njóta þess að vera til. „Við
sáum það t.d. í faraldrinum, þegar
fátt annað var hægt að gera sér til
dundurs annað en að fara út og
ganga, að margir uppgötvuðu sér til
ánægju skemmtilegar gönguleiðir og
faldar perlur í hverfum Reykjavíkur
hér og þar,“ segir Steinþór Einars-
son, skrifstofustjóri íþrótta- og tóm-
stundasviðs Reykjavíkur.
Allt stefnir í afskaplega gott sum-
ar í Reykjavík og ættu bæði heima-
menn og gestir úr nærsveitar-
félögum og öðrum landshlutum
aldeilis að geta fundið sér margt til
að sjá og gera í höfuðborginni. Á
komandi vikum og mánuðum mun
hver hátíðin reka aðra, söfnin hafa
opnað á ný og finna má alls kyns
tækifæri til útiveru og íþróttaiðk-
unar. Steinþór minnir sérstaklega á
sundlaugar Reykjavíkur sem nú eru
orðnar sjö talsins. „Þar er opið til kl.
22 alla daga vikunnar og held ég að
meira að segja Norðmenn hafi ekki
efni á að hafa sundlaugarnar sínar
opnar svona langt fram á kvöld,“
segir hann glettinn.
Ómissandi sælureitur
Sundlaugarnar í Reykjavík eru í
stöðugri þróun og búa þær t.d. nær
allar að spennandi leiktækjum og
rennibrautum fyrir börnin. Hver
sundlaug hefur sín sérkenni þar sem
unnið er með þá styrkleika sem
sundlaugarstæðið hefur upp á að
bjóða. „Þannig hefur t.d. plássið í
kringum sundlaugarnar í Laugardal
og Árbæ verið nýtt til að koma upp
strandblakvöllum af bestu gerð og
eru tveir vellir á hvorum stað. Er að-
staðan svo góð að í Laugardal var
strandblakvöllurinn notaður sem
keppnisvöllur á Smáþjóðaleikunum,“
segir Steinþór og bætir við að
Laugardalslaug bjóði líka upp á
hreystibraut og heitan pott með upp-
hituðum sjó. „Það á við um sundlaug-
arnar að þar finna allir eitthvað við
sitt hæfi. Sumir nota laugarnar sem
sína líkamsrækt og synda af kappi,
en svo eru aðrir sem vilja fyrst og
fremst slaka á og vinda ofan af sér
eftir amstur dagsins í þægilegum
heitum potti eða gufubaði. Þá sáum
við það greinilega í kórónuveiruf-
araldrinum hvað þessi þjónusta
skiptir borgarbúa miklu, og mynda
sundlaugarnar ákveðinn miðpunkt í
samfélaginu rétt eins og kaffihúsin í
París og barirnir í London. Bárust
okkur endalausar fyrirspurnir um
hvenær sundlaugarnar myndu opna
á ný að loknum faraldri, og hvort
ekki væri hægt að gera ráðstafanir
svo tilteknir hópar gætu komist í
laugarnar til að hreyfa sig og rækta
félagslegu tengslin.“
Það ætti síðan að telja ylströndina
í Nauthólsvík upp með sundlaug-
unum en þar er aðsóknin góð allt árið
um kring og ströndin sérstaklega vel
nýtt þegar hlýtt er í veðri. „Í yl-
ströndinni hitum við upp lítinn hluta
af Atlantshafinu en síðan er hægt að
stunda sjósund í Nauthólsvík og
syndir fólk þar alla mánuði ársins.
Einnig er þar heitur pottur, eimbað
og leiktæki á ströndinni og svæðið
sannkölluð paradís,“ segir Steinþór
en ylströndin er opin frá 10 til 19 alla
daga. „Á sömu slóðum er Siglinga-
klúbburinn með aðstöðu og frá
miðjum maí fram í lok ágúst hægt að
leigja hjá þeim báta til að róa og sigla
um Nauthólsvíkina.“
Öfundsverð af golfvöllunum
Talandi um holla og skemmtilega
hreyfingu standa íþróttafélögin í
Reykjavík fyrir fjölda námskeiða og
íþróttaviðburða í sumar. Sjálfur er
Steinþór duglegur að nýta aðstöðu
golfklúbbanna og segir hann að
margir öfundi Reykvíkinga af því hve
stutt er í góða golfvelli og auðvelt að
komast þar að. „Eitt sinn fékk ég það
verkefni að vera gestgjafi japansks
viðskiptamanns sem þurfti að sækja
alls kyns fundi í borginni. Spurður
hvað hann vildi gera að fundum lokn-
um vildi Japaninn endilega komast í
golf, svo ég leigði golfsett og fórum
við í Grafarholt þar sem við áttum
ánægjulega stund. Nema hvað næsta
dag vildi Japaninn fara aftur í golf,
og helst ekki gera neitt annað meðan
á dvöl hans stæði. Þegar ég spurði af
hverju hann hefði svona afskaplega
mikinn áhuga á golfi benti hann mér
að í Japan þarf oft að hafa margra
mánaða fyrirvara á því að bóka sig
inn á golfvöll og aka langa leið til að
komast á völlinn.“
Ekki er hægt að ljúka umfjöllun
um afþreyingu og útivist í Reykjavík
án þess að minnast á Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn. Jafnt og þétt hefur
verið aukið við afþreyingarmöguleik-
ana í garðinum svo að núna er hann
orðinn eitt allsherjarskemmtisvæði
fyrir yngri gestina. „Yfir sumartím-
ann er garðurinn nokkurs konar
tívolígarður með fullkomnum leik- og
skemmtitækjum eins og klessibílum,
ökuskóla, að ógleymdum fallturn-
inum en efst úr honum er fjarskagott
útsýni yfir Laugardalinn.“
Afþreying,
afslöppun og
holl hreyfing
Morgunblaðið/Eggert
Mannlíf Sundlaugarnar fylltust fljótt af fólki að loknum erfiðustu vikum faraldursins. Þar má slaka vel á.
Sundlaugarnar gegna ekki ósvipuðu
hlutverki í Reykjavík og kaffihúsin
gera í París eða barirnir í London
Morgunblaðið/Eggert
Fjölbreytni Steinþór Einarsson mælir m.a. með því að fara í golf, heim-
sækja Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og kíkja á ylströndina.
Búast má við miklu lífi og fjöri í
Kolaportinu í sumar og segir Gunn-
ar Hákonarson að þar spili inn í öll
sú uppbygging sem hefur átt sér
stað í kringum þennan vinsæla og
rótgróna flóa- og matarmarkað.
„Við erum ekki lengur hér um bil í
útjaðri miðborgarinnar heldur um-
kringd nýjum og skemmtilegum
byggingum og alls kyns rekstri. Sú
uppbygging sem hefur átt sér stað
úti á Granda hefur blásið nýju lífi í
hafnarsvæðið að ógleymdu versl-
unar-, íbúða- og skrifstofuhúsnæði á
Hafnartorgi, og þá er veglegt lúxus-
hótel að rísa á næsta reit.“
Gunnar er framkvæmdastjóri
Kolaportsins og hefur starfað þar í
röskan aldarfjórðung. Að hans mati
hefur aldrei verið betra að heim-
sækja miðborg Reykjavíkur. „Á mín-
um yngri árum var stundum talað
um að svo mikill asi og streita ein-
kenndi miðborgarsvæðið og var
ekki öllum að skapi. Í dag finnst mér
allt annars konar andrúmsloft
ríkjandi, og hafa m.a. göngugöt-
urnar hjálpað til að hægja á fólki og
skapa afslappaðri stemningu.“
Kolportið hefur líka átt sinn þátt í
að móta andrúmsloft miðborgar-
innar og segir Gunnar að markaðir
af svipuðum toga skipti iðulega
miklu máli fyrir þau samfélög þar
sem þá er að finna. „Íslendingar
þekkja það margir hjá sjálfum sér að
þegar komið er til útlanda er gott að
leita fyrst af öllu að stað eins og
Kolaportinu því þar má komast í
snertingu við heimamenn. Upplif-
unin er allt önnur en að koma í
marmaraklædda verslunarmiðstöð,
vöruúrvalið líka sérstakt og eru
margir sem venja komur sínar í
Kolaportið til að prútta við seljanda
á flóamarkaðinum eða birgja sig
upp af matvælum sem fást ekki ann-
ars staðar. Á matarmarkaði Kola-
portsins má t.d. finna hefðbundinn
íslenskan mat eins og signa grá-
sleppu og broddmjólk sem leitun er
að í hefðbundnum matvöruversl-
unum eða fiskbúðum.“
Lifandi miðbæjarmarkaður
Þeir sem hafa lagt leið sína í Kola-
portið á undanförnum vikum hafa ef
til vill veitt því athygli að þar er ver-
ið að breyta og bæta og nýtt svæði
að verða til sem fengið hefur nafnið
Kolaþorpið. Gerð hefur verið breyt-
ing á uppröðun sölubása til að skapa
gott rými fyrir matar- og við-
burðatorg í norðausturhluta húss-
ins. Þar verður hægt að kaupa vörur
af ýmsu tagi frá fjölda seljenda og
njóta skemmtiatriða. „Kolaportið
hefur alltaf verið lifandi staður og
tekið sífelldum breytingum. Töfrar
flóamarkaðarins munu vitaskuld
halda sér en Kolaportið er núna að
umbreytast úr flóamarkaði í lifandi
miðbæjarmarkað með fjölbreytt úr-
val matvæla, veitinga, sérvöru og
alls kyns afþreyingu,“ segir Gunnar.
„Í smíðum er flott Matartorg þar
sem landsliðskokkur mun leiða hóp-
inn og á viðburðatorginu munum við
hýsa allt frá litlum sölubásum upp í
stóra viðburði og verður Kolaþorpið
vænt, grænt, girnilegt og skemmti-
legt.“ ai@mbl.is
Kolaþorpið að taka á sig mynd
Matar- og viðburðatorg bætist við í Kolaporti en sígildir töfrar flóamarkaðarins halda sér
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gúrme Sælkerarnir finna margt við sitt hæfi í Kolaportinu. Mynd úr safni.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sæla Gunnar Hákonarson við vegglistaverk Einars Timma í Kolaþorpinu.