Morgunblaðið - 25.06.2020, Page 54
Framkvæmdastjóri
(Sales director)
Nánari upplýsingar:
Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is)
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Danfoss A/S var stofnað árið 1933 og
er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi
í framleiðslu og þróun á stjórnbúnaði
fyrir hita- og kælikerfi, sem og vélar og
tæki á fjölmörgum sviðum samfélagsins.
Sérstök áhersla er lögð á sjálfbærni og
orkunýtingu.
Tæplega 30 þúsund manns starfa hjá
Danfoss A/S í verksmiðjum í 70 löndum,
og söluskrifstofum í 100 löndum.
Velta samsteypunnar 2019 var
6.300 milljónir EUR. Danfoss hf er
dótturfyrirtæki Danfoss A/S, og annast
ráðgjöf, sölu, dreifingu og birgðahald á
Íslandi.
Hjá Danfoss hf. á Íslandi starfa 13 manns.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.danfoss.is
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf, hvort tveggja á ensku, þar sem gerð er grein fyrir hæfni
umsækjenda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður
svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. viðskipta-, hag-,
verk- eða tæknifræði
• Árangursrík starfsreynsla af sölu- og samningagerð
• Góðir samskiptahæfileikar
• Leiðtogahæfni, rekstrarreynsla og reynsla af
breytingastjórnun
• Geta til að skapa framtíðarsýn, hafa áhrif á aðra,
skipuleggja og skapa árangur
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku er
lykilatriði
• Reynsla í Microsoft Office, SAP og Salesforce er mikilvæg
• Leiðir og ber ábyrgð á daglegum rekstri
fyrirtækisins á Íslandi
• Yfirábyrgð á öllum sölu- og markaðsmálum á
Danfoss vörum, þjónustu og lausnum
• Viðheldur og eykur sölu á stjórnbúnaði fyrir
rafmótora, hita-, kæli- og vökvakerfi
• Aflar og viðheldur viðskiptasamböndum
• Skipuleggur sölu og þjónustu til lykilviðskiptavina
• Skipuleggur markaðs- og kynningarstarf og kynnir
nýjar vörur og þjónustu
• Heldur utan um og kynnir árangursskýrslur
• Viðheldur hvatningu, starfsánægju og árangri
söluteymis
• Leiðir kynningu Danfoss á Íslandi á rafrænum
lausnum og snjallsamskiptum í öllum vöruflokkum
• Samskipti við móðurfélag í Danmörku
Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni:
Danfoss hf. óskar eftir að ráða öflugan og söludrifinn einstakling í starf framkvæmdastjóra til að leiða
starfsemi fyrirtækisins á Íslandi. Starfið heyrir undir framkvæmdastjórn Danfoss A/S í N-Evrópu.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.