Morgunblaðið - 25.06.2020, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Aðrar Christopher Nolan myndir:
The Dark Knight,
The Dark Knight Rises
Pete Davidson er bandarísk-ur leikari og grínisti.Hann er flestum kunnursem fylgjast með gaman-
þáttunum Saturday Night Live, en
hann hefur verið hluti af leikara-
hópnum síðastliðin sex ár. David-
son hefur verið áberandi í gulu
pressunni, sérstaklega þegar hann
var trúlofaður popptónlistarkon-
unni Ariönu Grande í skamman
tíma. Hann hefur orðspor sem
vandræðagemlingur og hefur talað
opinskátt um þá mörgu djöfla sem
hann hefur að draga, eins og glímu
sína við geðræn vandamál, fíkni-
efnaneyslu og Crohns-heilkenni.
Davidson leikur aðalhlutverkið í
The King of Staten Island og er
jafnframt einn handritshöfunda.
Persónan sem hann leikur í mynd-
inni er nánast að öllu leyti byggð á
Pete sjálfum og segja má að þetta
sé eins konar skálduð ævisaga
hans. Leikstjóri myndarinnar er
hinn afkastamikli Judd Apatow,
sem hefur framleitt og leikstýrt
mörgum af vinsælustu gaman-
myndum Hollywood síðustu ár,
eins og The 40 Year Old Virgin og
Knocked Up.
Eins og titillinn gefur til kynna
gerist myndin á Staten Island, sem
er úthverfi New York-borgar. Í
gegnum tíðina hafa New York-búar
mikið grínast með Staten Island,
sem þykir ómerkilegur staður til að
búa á, sérstaklega í samanburði við
flottari hverfi eins og Brooklyn og
Manhattan. Titillinn kallast auðvit-
að á við mafíumyndina The King of
New York (1990) og hendir þannig
gaman að því að kóngurinn í Staten
Island sé kannski ekki alveg jafn
spennandi og glæpakóngarnir á
Manhattan.
Sagan segir frá hinum 24 ára
gamla Scott, sem býr með móður
sinni Margie og systurinni Claire.
Faðir hans var slökkviliðsmaður en
hann lést í eldsvoða þegar Scott
var sjö ára gamall. Scott er þung-
lyndur og heilsulaus, reykir gras
allan daginn og hefur engan vilja
til að vinna eða flytja að heiman.
Hann gerir allt af hálfum hug og
getur aldrei fylgt neinu eftir af ein-
urð. Þetta einkennir m.a. „sam-
bandið“ sem hann á við vinkonu
sína Kelsey, sem honum finnst
gaman að hanga með og sofa hjá
en þorir ekki að hefja raunverulegt
ástarsamband. Eini draumurinn
sem hann á er að verða tattúlista-
maður, en hann skortir líka frum-
kvæði til að elta þann draum af
krafti. Hann og allir í kringum
hann telja að ástæðan fyrir því að
hann sé svona gallaður sé andlát
föður hans, þetta tráma sem hann
getur ekki sleppt tökunum á.
Spurningin er svo hvort Scott sé
farinn að nota áfallið sem átyllu til
að afsaka alls konar bjánalega
hegðun.
Claire er að útskrifast úr
menntaskóla og fara í háskóla.
Þetta þýðir að hún er að flytja að
heiman og Scott og Margie eru ein
eftir í húsinu. Það fær mikið á
Margie að dóttirin sé að flytja að
heiman og Scott er nú leiður stað-
gengill fyrir hana, tilfinningakaldur
og bakaður eins hann er.
Snemma eftir að Claire flytur að
heiman kynnist Margie manni, í
gegnum mjög fyndnar kringum-
stæður. Scott er síður en svo
ánægður með þennan ráðahag og
eftir því sem líður á fara að koma
fleiri og fleiri brestir í fjölskyldu-
sambandið.
Þetta er tiltölulega hefðbundin
saga um slæpingja sem þarf að átta
sig á að hann getur ef til vill ekki
slæpst alla ævi. Líkt og Apatows er
von og vísa er þetta ekki spreng-
hlægileg ærslagrínmynd heldur
einhvers staðar mitt á milli þess að
vera indíleg gamanmynd og fjöl-
skyldudrama. Persónusköpunin er
góð og allir þessir ólíku karakterar
sem koma þarna fram eru það
besta við myndina. Scott er vissu-
lega áhugaverð persóna og Pete
Davidson gerir honum góð skil
enda væri annað bara fáránlegt,
svona í ljósi þess að hann er bara
að leika sjálfan sig. Marisa Tomei
er hrífandi í hlutverki móðurinnar
Margie og ég hafði líka einstaklega
gaman af frammistöðu Bel Powley
í hlutverki Kelsey. Powley er mjög
fyndin gamanleikkona og hún er af-
ar einlæg og skemmtileg í þessari
mynd.
Myndin er rosalega löng, rúmir
tveir klukkutímar, sem gefur áhorf-
endum vissulega tíma til að kynn-
ast persónunum vel. Hún stendur
samt ekki undir þessari lengd og
hefði hæglega mátt vera töluvert
styttri. Kaflarnir í myndinni eru
mjög misjafnir að gæðum, á köflum
er hún fyndin og jafnvel nýstárleg,
á öðrum stundum er hún mjög
klisjukennd og nánast leiðinleg.
The King of Staten Island er
samt ágætis ræma þótt hún sé allt-
of löng og þvæld. Tónlistin er kúl,
persónugalleríið er skemmtilegt og
hún inniheldur mörg prýðileg
augnablik, sem gerir hana að fín-
asta sumarglápi.
Konungur slæpingjanna
Slæpinginn Þetta er „ágætis ræma þótt hún sé alltof löng og þvæld. Tónlistin er kúl, persónugalleríið er skemmti-
legt og hún inniheldur mörg prýðileg augnablik, sem gerir hana að fínasta sumarglápi,“ segir rýnir um myndina.
Laugarásbíó, Smárabíó og
Borgarbíó
The King of Staten Island bbbnn
Leikstjórn: Judd Apatow. Handrit: Judd
Apatow, Pete Davidson, Dave Sirus.
Kvikmyndataka: Robert Elswit. Klipp-
ing: Jay Cassidy, William Kerr og Scott
Olds. Aðalhlutverk: Pete Davidson, Mar-
isa Tomei, Bel Powley, Bill Burr, Maude
Apatow. 136 mín. Bandaríkin, 2020.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Nýr kvartett Óskars Guðjónssonar
saxófónleikara, Move, kemur fram
á tónleikum í menningarhúsinu
Mengi við Óðinsgötu í kvöld,
fimmtudag, kl. 20. Óskar stofnaði
kvartettinn til að takast á við sígild-
asta form djasstónlistar, „lúður
með píanótríói“ eins og hann segir.
Undanfarið ár eða svo hefur kvart-
ettinn haft fastan æfingatíma þar
sem viðfangsefnið er leitin að eigin
nálgun á hið hefðbundna form,
hvort sem leikin eru sígild djasslög
eða eigin smíðar. Liðsmennirnir
eru virkir í íslensku tónlistarlífi,
þar sem þeir hafa hver um sig skap-
að sér sérstöðu með persónulegri
nálgun á fjölbreytt viðfangsefni.
Auk Óskars skipa Move Matthías M.
D. Hemstock á trommur, Valdimar
K. Sigurjónsson á kontrabassa og
Eyþór Gunnarsson á píanó.
Move Liðsmenn kvartettsins: Óskar, Matt-
hías, Eyþór og Valdimar Kolbeinn.
Move, nýr kvartett
Óskars, í Mengi
Listasafn
Reykjavíkur býð-
ur upp á kvöld-
göngu um Skóla-
vörðuholtið í
kvöld og verður
lagt upp frá
höggmyndagarð-
inum við Lista-
safn Einars Jóns-
sonar kl. 20.
Fyrir tæpri öld
kom Guðjón Samúelsson þeirri hug-
mynd á framfæri að háborg ís-
lenskrar menningar skyldi rísa á
Skólavörðuholti. Þó ekki hafi orðið
af háborginni hefur holtið verið
mikilvægur staður í sögu menning-
ar og lista og mun Pétur H. Ár-
mannsson, arkitekt og byggingar-
listfræðingur, rýna í þá sögu í
göngunni og segja frá því sem fyrir
augu ber.
Fræðsluganga um
Skólavörðuholt
Pétur H.
Ármansson