Morgunblaðið - 25.06.2020, Side 72
af öllum sumarvörum
Tilboð gilda í júní
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
F í h ims nd n
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
GILDIR Í JÚNÍ
25-30%Sparadu-
Pavia
Bingham
PAVIA Garðsett. Borð og 2 stólar. Fellanlegt. Akasíðuviður og grátt reipi.
29.900 kr. Nú 22.425 kr.
BINGHAM hægindastóll. 35.900 kr. Nú 26.925 kr.
Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir stígur á svið í forsal
Salarins í Kópavogi í dag, fimmtudag, kl. 17. Með henni
leika Ómar Guðjónsson á gítar og Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa. Á efnisskrá verða uppáhaldslög söngkon-
unnar og standardar í hennar eigin útsetningu. Lögin
spanna vítt svið, allt frá Bítlunum til Billy Strayhorn.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Sumarjazzi í
Salnum. Fullt var út úr dyrum í hvert skipti í fyrra og
því verður nú gripið til þess ráðs að hafa hátalara utan-
dyra svo hlýða megi á tónleikana af útisvæði.
Kristjana Stefánsdóttur syngur
ýmis uppáhaldslög í Salnum
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Íslandsmeistarar Vals unnu yfirburðasigur á Þór/KA,
6:0, í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld
og þar með virðist útlit fyrir annað einvígi milli Vals og
Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn. Hlín Eiríks-
dóttir skoraði þrennu fyrir Val í leiknum. Stjarnan vann
mikilvægan sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum, 1:0. »63
Stefnir í annað einvígi eftir
yfirburðasigur Valskvenna
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Hver hendir svona?“ er síða á Fés-
bókinni sem nýtur aukinna vinsælda.
„Stundum setti ég á vegginn minn
myndir af hlutum, sem ég sá á nytja-
mörkuðum og þótti skrýtnir, með
þessari spurningu,“ segir María
Hjálmtýsdóttir menntaskólakennari.
„Gömlum skólabróður mínum þótti
þetta nægilega skemmtilegt til þess
að hann bjó til hópsíðu og nú fylgjast
tæplega 5.000 manns með henni og
leggja henni lið.“
Ákveðin söfnunarárátta hefur leitt
Maríu á nytjamarkaði og fornsölur
undanfarin ár. „Ég er stöðugt í fjár-
sjóðsleit eins og Lína Langsokkur,
safna fyrst og fremst gömlum barna-
bókum og barnadóti, einkum Fischer
Price-leikföngum,“ segir hún.
Ástæðuna segir hún meðal annars
vera þá að hún eigi son á fimmta ári,
sem hún lesi fyrir auk þess sem hann
leiki sér með gömlu leikföngin.
„Hann leikur sér með hluti frá 1970
og kynnist gömlum sögum,“ segir
hún.
Verðugur tilgangur
„Ég hljóma kannski eins og ein-
hver furðufugl en samt er ekkert
skrýtið heima hjá mér,“ leggur hún
áherslu á. Þvert á móti sé hún bara
að viðhalda barninu í sér samfara því
að bjarga hlutum frá eyðileggingu.
Nefnir í því sambandi að hún hafi
notað gamlar barnabækur í kennslu í
kynjafræði. „Við höfum til dæmis
greint söguna um Strympu og
krökkunum nú til dags finnst sagan,
sem ég sá ekkert athugavert við sem
krakki, vera fáránleg.“
María er alltaf með augun opin
fyrir því sem er gamalt og gott, dýr-
gripir að hennar mati en rusl í aug-
um margra. „Með bókasöfnuninni
þykist ég vera að bjarga gömlum
menningarverðmætum, bókum sem
allir muna eftir en eiga á hættu að
falla í gleymskunnar dá sé þeim ekki
haldið til haga,“ heldur María áfram,
en í safninu eru um 200 til 300 barna-
bækur. Hún bendir á að gamlar bæk-
ur lendi oft í drasli og á endanum á
haugunum, en geti engu að síður ver-
ið mikil listaverk. „Þetta er efni sem
fólk á mínum aldri og eldra ólst upp
við og þótt barnabókasafnið mitt hafi
ekki enn verið metið að verðleikum
held ég að sá tími komi að einhverjir
verði mjög ánægðir með það.“
Á mörkuðum eru hlutir af ýmsu
tagi og sumir þeirra hafa vakið at-
hygli Maríu, þótt hún hafi ekki endi-
lega fallið fyrir þeim. Hún segir að
hún fái alltaf sting í hjartað þegar
hún sjái brúðkaups- og fjölskyldu-
myndir í einskis manns landi en þær
undirstriki að lífið sé í ruslinu.
„Grínið er stundum ljúfsárt,“ segir
hún og bendir á að það furðulegasta
sem hún hafi séð á svona markaði
hafi verið líkkista. „Ég vissi ekki
hvaðan á mig stóð veðrið þegar ég
rakst á líkkistu í Góða hirðinum en
ég vona að hún hafi ekki verið notuð í
eðlilegum tilgangi heldur sem leik-
mynd.“
Lífið leynist í ruslinu
en hver hendir svona?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Safnari María Hjálmtýsdóttir við hluta safnsins, sem kemur í góðar þarfir.
María Hjálmtýsdóttir er oft hugsi á nytjamörkuðum
Á nytjamarkaði „Hver hendir svona?“ spyr María, þótt hún falli ekki fyrir öllu.