Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 2

Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 2
„Þetta er klassískur leikur sem allir geta verið með í, ungir sem aldnir, og vonumst við til þess að geta sameinað fjölskyldur, vinahópa eða jafnvel vinnustaði yfir skjánum í bingó- gleði,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, dagskrárstjóri K100. Siggi stýrir bingó-fjölskyldugleði sem verður í beinni útsendingu á mbl.is kl. 19 í kvöld, fimmtudagskvöld, þar sem þátt- takendur geta unnið glæsilega vinninga á borð við spjaldtölvur, síma og gjafabréf. Honum til halds og trausts verður sam- félagsmiðlastjarnan Eva Ruza. Allir sem vilja geta tekið þátt og þátt- taka kostar ekkert. Það eina sem þarf að gera er að skrá sig og sækja sér bingó- spjöld. Þátttaka er takmörkuð og því nauð- synlegt að hafa snör handtök. Nánari upp- lýsingar má finna á mbl.is/bingo. „Það er kannski allt of oft sagt þessa dag- ana að við þurfum eitthvað til að gleðja okk- ur en það er bara þannig og hvað er betra en bingó til þess að brjóta daginn aðeins upp? Það er alla vegana klárt mál að með Evu inn- anborðs verður þetta algjör gleðisprengja,“ segir Siggi. Nánar á mbl.is  Siggi Gunnars og Eva Ruza stýra bingó-fjöl- skyldugleði kl. 19 Spennandi Siggi Gunnars og Eva Ruza eru spennt fyrir kvöldinu. Bingó í beinni útsend- ingu á mbl.is í kvöld 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í sumar hafa staðið yfir fram- kvæmdir við tvöföldun Suðurlands- vegar frá Vesturlandsvegi og suður fyrir Bæjarháls, til móts við Hádeg- ismóa. Um er að ræða 1.000 metra kafla þar sem áður var einbreiður vegur. Áætlað var að framkvæmdum lyki 1. nóvember, þ.e. um næstu helgi. Vinna við undirgöng við Krókháls reyndist tímafrekari en áætlað hafði verið og nú stefnir Vegagerðin að því að hleypa um- ferð á veginn í byrjun desember. Vinna við tvöföldunina hófst í byrjun júní. Vegagerðin samdi við Ósatak ehf. í Kópavogi um að vinna verkið en fyrirtækið átti lægsta til- boðið, 402 milljónir króna. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferð hleypt á veg- inn í byrjun desember Efnahags- og viðskiptanefnd Alþing- is óskaði eftir að fjármálaráðuneytið svaraði því hvers vegna bætur al- mannatrygginga hækki einungis um 3,6% á næsta ári þegar gert sé ráð fyrir að laun hækki um 5,2%. Í fjár- lagafrumvarpinu er spáð 5,2% hækkun launa á næsta ári. Bæturnar eiga að breytast árlega og taka mið af launaþróun. Í svari ráðuneytisins á minnisblaði til nefndarinnar segir að við mat á launaþróun hafi verið vaninn að miða við meðalhækkanir í kjarasamnings- bundnum hækkunum á almennum vinnumarkaði. Í sumum tilvikum hafi slíkir samningar falið í sér ein- faldar og samræmdar prósentu- hækkanir en í öðrum hafi verið meiri breytileiki milli félaga og hópa og því hafi þurft að afla frekari upplýsinga til að reikna meðalhækkunina. Ekki hafi tíðkast að taka mið af launavísi- tölu enda feli hún m.a. í sér launa- skrið, t.d. vegna innbyggðra aldurs- hækkana o.fl. sem ekki eigi að reikna inn í verðlagsbreytingar á bótum al- mannatrygginga ,,enda eru þær ekki laun fyrir vinnuframlag“. Skv. mati á samningum séu almennar meðalpró- sentuhækkanir launa 2021 áætlaðar 3,6%. Það sé sú prósenta sem notuð er fyrir bætur almannatrygginga. Öryrkjabandalagið (ÖBÍ), Lands- samband eldri borgara (LEB), ASÍ og fleiri gagnrýna í umsögnum að bæturnar hækki aðeins um 3,6% á næsta ári. Það þýði í raun að mati ÖBÍ 9.201 kr. hækkun óskerts lífeyr- is í 265.044 kr. LEB fullyrðir að launaþróunin sé og hafi verið allt önnur en sú 3,6% hækkun sem lögð er til í frumvarpinu. ASÍ telur var- hugavert að nota meðaltaxtahækk- anir sem viðmið fyrir lægstu kjör. Hækkun krónutölugjalda í 3,2% myndi skila 500 milljónum Þingnefndin spyr ráðuneytið einn- ig hvað tekjur ríkissjóðs myndu aukast mikið ef krónutölugjöldin hækki um 3,2% um áramót en ekki 2,5% eins og gert er ráð fyrir. Segir í svarinu að ætla megi að tekjur af hækkun krónutölugjalda myndu þá hækka um 500 milljónir. omfr@mbl.is Taka ekki mið af vísitölu  Efnahags- og viðskiptanefnd spyr fjármálaráðuneyti af hverju bætur hækki um 3,6% þegar laun hækki um 5,2% 2021 „Síðustu sóttvarnaaðgerðir gera það að verkum að það er ekki lengur rekstrargrundvöllur til að halda starfseminni gangandi,“ segir Ingi- björg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Hótel Sögu sem lokað verður um næstu mánaðamót. Starfsemi Bændasamtakanna og önnur starfsemi ótengd hótelrekstr- inum í húsinu helst óbreytt. Í frétt á vef Bændasamtakanna segir að Hót- el Saga hafi orðið fyrir gríðarlegum tekjusamdrætti vegna kórónuveiru- faraldursins. Stjórnendur sjá ekki annan kost en að loka enda ekki útlit fyrir að staðan batni í bráð. Hótel Sögu verður lokað Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hótel Saga Skellt í lás um helgina. Sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda hafa gert það að verkum að rekstr- arforsendur fyrirtækja í veitinga- rekstri eru algerlega brostnar að mati nýrra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SFV). Fjöldamörg- um veitingastöðum hafi nú þegar ver- ið lokað og útséð um að margir þeirra muni opna aftur. Mikils samdráttar hafi einnig gætt hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í heimsendingum. Þetta kemur fram í umsögn SFV til efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna veirufaraldurs- ins. Fram kemur að á fjórða tug fyr- irtækja með um fjögur þúsund starfsmenn séu innan samtakanna, sem til standi að skrá formlega á næstu vikum. Vísað er í greining- arskýrslu sem KPMG vann fyrir SFV þar sem fram komi að staða veitingamarkaðarins í upphafi yf- irstandandi árs og áður en faraldur kórónuveirunnar reið yfir hafi þá þegar verið orðin grafalvarleg. Greinin sé þjökuð af stórfelldum launahækkunum undanfarinna ára. Í yfirstandandi faraldri standi eng- in áhrifarík úrræði stjórnvalda til boða, hlutabótaleiðin nýtist veit- ingamarkaðinum aðeins að takmörk- uðu leyti, og ljóst sé að bregðast þurfi skjótt við ,,til að forðast fjöldagjald- þrot og stórkostlegan atvinnumissi í greininni,“ eins og segir í umsögn- inni. Margir veitingastaðir munu ekki opna aftur  Segja engin úrræði standa til boða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.