Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 11

Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 Lau: 11-15 www.spennandi-fashion.is FALLEGIR ÍTALSKIR SKÓR - NÝ SENDING! Skipholti 29b • S. 551 4422 LAXDAL ER Í LEIÐINNI – SJÁ LAXDAL.IS 20% AFSLÁTTUR TIL 1. NÓV. TILBOÐS- DAGAR Á VÖLDUM NÝJUM VÖRUM FRÁ Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook NÝTT FRÁ Str. S-3XL (38/40-52/54) Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Nýjar vörur í hverri viku Fæst í netverslun belladonna.is Ólíklegt þykir að fólk smitist af kór- ónuveiru við það að skrá komu sína á snertiskjá heilsugæslustöðvar, sé farið eftir leiðbeiningum og fyllsta öryggis gætt. Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að skjáirnir séu sums staðar í notkun á heilsugæslustöðvunum en ekki alls staðar. „Það fer eftir að- stæðum á hverjum stað hvort skjá- irnir eru notaðir. Það eiga að vera leiðbeiningar, sprittbrúsar og hlífð- arhanskar við hvern skjá,“ segir Óskar. Auk þess sem notendum er ráðlagt að spritta hendur sínar fyrir og eftir notkun á skjánum hreinsar starfsfólk skjáina reglulega með spritti. Þá sér sprittstjóri um að sameiginlegir snertifletir, eins og kaffivélar, séu sprittaðir reglulega. „Við teljum að áhættan sé mjög lítil ef fólk passar sig og fer eftir leið- beiningum. Það er í sjálfu sér víða áhætta, líka í því að standa framan við móttökuritara,“ segir Óskar. Hann segir að heilsugæslustöðvarn- ar á höfuðborgarsvæðinu hafi að mestu losnað við smit. Hafi það kom- ið upp þá hefur fólk smitast heima hjá sér. Hann vissi af einu tilviki þar sem smit barst á milli tveggja starfs- manna og sá sem smitaði kom með smit að heiman. Enginn starfsmaður hefur smitast af sjúklingi og ekki er vitað til þess að sjúklingar hafi smit- að aðra sjúklinga. gudni@mbl.is Sprittað reglulega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Snertiskjár Mikilvægt að fara eftir leiðbeiningum, nota hanska og spritta.  Ólíklegt þykir að fólk smitist af snertiskjám gæti það að smitvörnum og fari eftir leiðbeiningum um sóttvarnir Áhrif COVID-19 á tónlistarlíf, fé- lagsþjónustu og skólastarf og við- horf landsmanna til sóttvarnaað- gerða, kynbundið ofbeldi gagnvart erlendum konum, atvinnuþátttaka fatlaðs fólks, leið kvenna til æðstu metorða, seigla samfélaga og nýj- ustu straumar í stjórn fyrirtækja. Þetta er meðal umfjöllunarefna á hinum árlega Þjóðarspegli: Ráð- stefnu í félagsvísindum sem fram fer á vegum félagsvísindasviðs á morg- un, föstudag. Alls verður boðið upp á 219 erindi í 52 málstofum að þessu sinni auk veggspjaldakynninga og eru þátttakendur rúmlega 300. Er það fólk sem starfar á sviði fé- lagsfræði, mannfræði, safnafræði, þjóðfræði, í félagsráðgjöf, hagfræði, viðskiptafræði, markaðsfræði, lög- fræði, stjórnmálafræði og kynja- fræði. Ráðstefnan fer fram á netinu vegna samkomutakmarkana. Þjóðarspegillinn er nú haldinn í 21. sinn og er fastur í sessi sem stór ráðstefna félagsvísinda. Þjóð í spegli fræða  Ráðstefna félagsvísinda í HÍ í dag Umhverfis- og heilbrigðisráð Reykjavíkur hef- ur samþykkt að hafin verði gjald- taka fyrir hleðslu rafbíla og tengil- tvinnrafbíla á hleðslustöðvum Reykjavíkur- borgar í miðborginni. Tillaga um þetta kom frá skrifstofu umhverf- isgæða. Umhverfis- og skipulagssvið mun útfæra gjaldskrá. Fram kemur í til- lögunni að ýmsar leiðir séu til gjaldtöku, þar á meðal gjald fyrir kílóvattstund, gjald fyrir tíma í hleðslustæði eða áskrift. Settar voru upp hleðslustöðvar á 13 stöðum í miðborginni árið 2018. Hleðslan hefur verið gjaldfrjáls en notendur hafa greitt í stöðumæli að loknum 90 mínútum og greitt fyrir afnot af bílastæðahúsum. Gjald verður tekið fyrir hleðslu rafbíla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.