Morgunblaðið - 29.10.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.10.2020, Qupperneq 14
Fáðunýjustu upplýsingar umuppbyggingunýrra íbúða í Reykjavíkmeðáherslu á þær framkvæmdir semeru í gangi og hvað er í framundan í uppbyggingu í borginni. Grænaplanið verður kynnt og sagt frá því hvernig borginmun sækja frammeðkraftmikilli fjárfestingumeðumhverfislega, fjárhagslega og félagslega sjálfbærni að leiðarljósi. Dagskrá: • Grænaplanið oghúsnæðisuppbyggingin Dagur B. Eggertsson borgarstjóri • Staðaoghorfur á fasteignamarkaði í Reykjavík Þröstur Sigurðsson, Arcur • Ártúnshöfði og Elliðaárvogur: Nýr og grænnborgarhluti ímótun Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir, Arkís • Meiri borg, kröftugur og sjálfbær vöxtur til langrar framtíðar Ólöf Örvarsdóttir og Haraldur Sigurðsson, Umhverfis- og skipulagssviði Kynnir: BjörgMagnúsdóttir Streymt á reykjavik.is/ibudir Beinútsending föstudaginn30. október kl. 9-11 Uppbygging íbúða í borginni ogGrænaplanið 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Nú eru um 9 mánuðir liðnir síð-an fyrsta tilfellið af CO-VID-19 greindist hér á landi. Margir hafa verið í sjálfskipaðri sóttkví meira eða minna allan þennan tíma. Eldra fólk og raunar margir fleiri gera það sem hægt er til að forð- ast smit. Mikilvægt er að hlúa vel að líðan sinni. Hvernig við hugsum, nær- umst og hreyfum okkur skiptir allt máli fyrir góða heilsu og sterkt ónæmiskerfi. Að leita sér lækn- ishjálpar ef svo ber undir má heldur aldrei sitja á hakanum. Einangrun reynir á lunderni Einangrun í langan tíma reynir á hugsanir okkar og lunderni. Hún getur valdið streitu, kvíða og margs konar áhyggjum. Jákvæð viðhorf og bjart- sýni eru verndandi þættir. Faraldurinn mun taka enda, lífið færast í eðlilegra horf aftur. Daglega reynir á færni í að takast á við áður óþekktar áskoranir lífsins og aðlagast breytilegum að- stæðum, hvort tveggja mikilvægir eig- inleikar í góðri geðheilsu. Einmanaleiki meðal aldraðra er vaxandi heilsufars- leg hætta, orsakirnar flóknar og með- ferð vandasöm. Því miður hefur ógnin aukist verulega undanfarið. Það reynir á okkur öll að hjálpa til við að draga úr þessari vondu tilfinningu hjá þeim sem hana hafa. Samhygð og umhyggja end- urspegla manneskjulegt samfélag. Góð næring styrkir ónæmiskerfið Í fábreytilegri sóttkví er hætt við að matarvenjur fari úr skorðum. Matarlyst breytist við að borða allt- af í einrúmi, minna verður um búð- arferðir og maturinn einhæfari. Af- leiðingin verður verri næring með almennri þreytu og vanlíðan, auk ýmissa annarra kvilla. Ónæmis- kerfið, hin náttúrulega vörn okkar gegn veirum, skerðist. Fjölbreytt og góð fæða tryggir inntöku mik- ilvægra næringarefna. Sérstaklega er þýðingarmikið að neyta prótein- ríkra matvara, má þar nefna fisk, kjöt, egg, mjólkurvörur, baunir eða linsur. Nauðsynlegt er líka að fá nægan vökva yfir daginn. Kaffi telst með en drykkja fram á kvöld getur valdið svefntruflunum. Huga þarf sérstaklega að D-vítamíni, í skammdegi er ráðlagt að taka það inn sem fæðubótarefni og jafnvel allt árið. Hreyfing er nauðsyn Tap á vöðvamassa fylgir aldri og það getur orðið umtalsvert við lang- varandi kyrrsetu. Vöðvarýrnunin leiðir til kraftleysis og verkja. Öllu eldra fólki er ráðlögð reglubundin hreyfing, það er aldrei of seint að byrja. Dagleg rútína með blöndu af jafnvægis-, styrktar- og þolæfingum er öflug hreyfingaráætlun sem vel er hægt að ástunda í sóttkví. Einfaldar jafnvægisæfingar heima í stofu geta aukið styrk í hrygg og fótum, örvað jafnvægisskynið og dregið úr fall- hættu. Styrktaræfingar með léttum lóðum í sitjandi stöðu auka kraft í út- limum. 4-6 klukkustunda þolæfing á viku vinnur gegn svefnerfiðleikum og mörgu öðru, það samsvarar um hálf- tíma göngutúr á dag. Hér gildir að finna hóflega hreyfingu við hæfi, nota ímyndunarafl og þrautseigju. Hafið samband Það er áskorun að hlúa vel að líðan sinni í sjálfskipaðri sóttkví. Ýmis ein- kenni og undirliggjandi sjúkdómar geta truflað. Þá getur verið betra að leita aðstoðar hjá fagaðilum. Þrátt fyrir að faraldurinn hafi verið fyr- irferðarmikill innan heilsugæslunnar er mikilvægt að sinna áfram öðrum vandamálum. Fólk á alltaf að geta leitað til heilsugæslunnar. Til dæmis er hægt að hringja og ráðfæra sig við hjúkrunarfræðinga eða eiga í sam- skiptum í gegnum tölvu á mínum síð- um á heilsuvera.is. Á þeirri vefsíðu er einnig að finna heilsuráð og leiðbein- ingar um líðan, næringu og hreyfingu. Eldra fólk og sjálfskipuð sóttkví Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóttkví Lítið hægt að gera í stöðunni nú á undarlegum tímum kórónuveir- unnar annað en halda sig heima og fólk noti grímur í varnarskyni. Heilsuráð Hafsteinn Freyr Hafsteinsson fagstjóri lækninga, Heilsugæslunni Mjódd. Ljósmynd/Landspítali-Þorkell Gjörgæsla Sóttvarnir nú miðast við að halda álagi á sjúkrahús í hófi. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Sæluhúsum á fjöllum fylgir skemmtileg menning og mikil saga,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson sjónvarpsmaður. Í gærkvöldi var á dagskrá Hringbrautar fyrsti þátt- urinn í þáttaröð hans, Fjallaskálar Ís- lands. Tvo síðastliðna vetur hefur Sigmundur verið með spyrpu þátta um þetta efni á sjónvarpsstöðinni sem hafa mælst vel fyrir. Nú er haldið áfram og í þættinum í gær var sagt frá skálanum Lamba á Glerárdal ofan við Akureyri. Næstu þættir verða um Hof á Flateyjardal, skála Ferðfélags Fljótsdalshéraðs í Loðmundarfirði og skála FÍ í Nýjadal, á Fimmvörðuhálsi og í Botnum á Emstrum. „Bæði segjum við frá skálunum, en einnig umhverfi þeirra, gönguleiðum og náttúru,“ segir Sigmundur Ernir. „Vegna þessarar þáttagerðar síðustu þrjú sumur verið eknir alls um 5.000 kílómetrar og gengnir 750. Jú, og svo töpuðum við vél í einum bíl, hreins- uðum pústkerfi undan tveimur, sprengdum dekk og fleira.“ Þættirnir góðu verða frumsýndir næstu vikur á miðvikudögum kl. 20, og svo endursýndir um helgar. Fjallaskálar á Hringbraut Sögur og menn- ing sæluhúsa Sigmundur Fjallamaður á ferðinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.