Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 61

Morgunblaðið - 29.10.2020, Page 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 málasamtökum, verður hún feimn- isleg og vill ekkert eigna sér í heið- urinn í þeim efnum. „Ég bý þó yfir ágætis eiginleika, það er að segja óttaleysi og löngun til að vera hluti af lausnum heldur en vandamálunum. Mér þykir það vondur eiginleiki að rífa niður en eftirsóknarvert að byggja upp og leita lausna. Það síð- arnefnda er hins vegar mun eriðara.“ Áhugamálin Helstu áhugamál Karenar eru fjallamennska, náttúruhlaup, göngu- skíði, bókmenntir, saga og samveru- stundir með fjölskyldunni. „Þótt áhuginn á hreyfingu sé alltaf fyrir hendi vantar þó stundum svolítið upp á ástundunina, er því hálffeimin að nefna að ég er svo meðhöfundur bók- arinnar Út að hlaupa ásamt Elísabetu Margeirsdóttur, sem kom út 2013 hjá Forlaginu.“ Fjölskylda Eiginmaður Karenar er Hannes Ingi Geirsson, f. 7.3. 1978, íþrótta- og sundkennari í Flataskóla í Garðabæ. Foreldrar hans eru Geir Ingimars- son, f. 29.10. 1951, fv. flugvirki, og Una Hannesdóttir, f. 5.3. 1954, fv. flugfreyja. Þau búa í Garðabæ. Börn Karenar og Hannesar eru: Askur Hrafn, f. 13.7. 2003; Una Krist- jana, f. 15.7. 2009, og Kjartan Geir, f. 3.6. 2011. Þau búa öll hjá foreldrum sínum í Garðabæ. Systur Karenar eru Silja Rún, f. 17.2. 1982, hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og bóndi í Gerðum í Flóahreppi í Árnes- sýslu; Mónika Elísabet, f. 25.4. 1984, meistaranemi í upplýsingafræði og starfsmaður hjá Blindrafélagi Ís- lands, og Írena Sif, f. 24.11. 1991, við- skiptafræðingur og hótelstjóri á Suð- urlandi. Foreldrar Karenar eru Kjartan Már Benediktsson, f. 25.9. 1955, fv. sjómaður og landgræðslumaður, og Kristjana Karen Jónsdóttir, f. 15.7. 1958, sjúkraliði. Þau búa á Hvolsvelli. Karen Kjartansdóttir Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja í Núpsdalstungu Ólafur Björnsson bóndi í Núpsdalstungu, V-Húnavatnssýslu Elísabet Guðrún Ólafsdóttir póststarfsmaður, Hvolsvelli Jón Ellert Stefánsson símstöðvarstjóri, Hvolsvelli Kristjana Karen Jónsdóttir sjúkraliði, Hvolsvelli Guðríður Kristjana Jónsdóttir konfektgerðarkona á Óðinsgötu 14 a,Reykjavík Stefán Einar Karlsson rafvirki í Reykjavík Kristín Ingunn Runólfsdóttir húsfreyja í Björk áAkranesi Ingólfur Sigurðsson sjómaður áAkranesi Lóa Ingólfsdóttir húsmóðir, Selfossi Benedikt Þormóðsson sölufulltrúi hjá SÍS,Reykjavík Theodóra Stefánsdóttir húsfreyja á Hverfisgötu,Rvk. Þormóður Sveinsson sjómaður og fisksali á Hverfisgötu,Reykjavík Úr frændgarði Karenar Kjartansdóttur Kjartan Már Benediktsson fv. sjómaður og landgræðslumaður, Hvolsvelli „EF HANN KEMUR HENNI Í LAG MEGA KEPPINAUTAR OKKAR FARA AÐ VARA SIG.” „ÆTLI ÉG NEITI EKKI SÖK TIL AÐ KOMA HREYFINGU Á MÁLIÐ.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta endurfundanna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG FÆ ALLTAF HÖFUÐ- VERK ÞEGAR ÉG HEF EKKI BORÐAÐ NÓG ALDREI?HVENÆR FÉKKSTU SÍÐAST HÖFUÐVERK? ALDREILÁTUM OKKUR SJÁ … ÉG GET ÍMYNDAÐ MÉR AÐ MIKIL FJARVERA SÉ STÓR HLUTI AF STÖRFUM ÞÍNUM! HÚN ER ÞAÐ! NÝLEGA SKIKKAÐI DÓMARI MIG Í SEX MÁNAÐA FJARVERU! Það er alveg áreiðanlegt“ kveðurPáll Jónasson í Hlíð: Að fjallrjúpa í fálkateiti fjaðrirnar af sér reyti og fari á því flatt er ferlegt – en satt - ja það segir Lóa á Leiti. Góður vinur sendi mér nokkrar vísur, sem Húnvetningurinn Einar Kolbeinsson orti á dögunum: Andanum er allt í vil, og af nógu að taka, á augabragði orðin til, ofurlítil staka! Nýverið fór Einar í hjartaþræð- ingu sem gekk vel: Læknar höfðu um galla grun, en gerðu við hann maður! Svo eftir þetta orðinn mun, afar góðhjartaður. Árni Geirhjörtur Jónsson sendi Einari kveðju af þessu tilefni: Þetta margur þakka kann í þínu nána slekti, ef þú geymir annan mann en áður fyrr ég þekkti Einar sjálfur lagði svo orð í belg: Aumt þeir mega ekkert sjá, alla lækna að vonum, og töldu rétt að takast á, við taktleysið í honum! Og loks: Stilltur verð og störfin hæg stöðugt vermi fleti, enda mér svo eðlislæg, undanbrögð og leti. Gylfi Þorkelsson birti tvær fal- legar fjallamyndir á Boðnarmiði og skrifaði undir: „Það verður ekki tekið af Flóanum að þar er fallegt – að líta annað. Ég stöðvaði bifreið- ina á leið úr vinnu því austur- og norðausturfjöllin nutu sín ein- staklega vel í skuggavarpi tærrar birtu undir lágskýjum“: Mikið gras í móanum en marg- víst þykir sannað að feikna er í Flóanum fagurt að líta annað. Atli Harðarson svaraði: Flóinn sjálfur fagur er fyrir þann sem hefur vit á að gleðjast ef hann sér uppgröft, skurði og moldarlit. Arnar Bjarnason prjónaði áfram: Hér er byggð og blómleg sveit ber mér yl í hjarta; þeir sem búa á þessum reit þurfa ei neitt að kvarta. Guðmundur Beck átti síðasta orðið: Drullusíki og gróður grár geðið einatt þrúga. Flatneskja og fúablár fúlt er við að búa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur eftir Húnvetning og kveðið í Flóanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.