Morgunblaðið - 29.10.2020, Síða 62

Morgunblaðið - 29.10.2020, Síða 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Krasnodar – Chelsea................................ 0:4 H-RIÐILL: Basaksehir – París St. Germain.............. 0:2  Fleiri leikir voru á dagskrá í keppninni í gær og lauk eftir að blaðið fór í prentun. Úrslitin er að finna í umfjöllun á mbl.is. England B-deild: Preston – Millwall ................................... 0:2  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Millwall. Ítalía Bikarkeppni 3. umferð: Brescia – Perugia .................................... 3:0  Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna- hópi Brescia og Hólmbert Aron Friðjóns- son er meiddur. Hellas Verona – Venezia................ 6:4 (3:3)  Bjarki Steinn Bjarkason lék allan leikinn með Venezia en Óttar Magnús Karlsson var ekki í leikmannahópnum. Fiorentina – Padova................................ 2:1  Emil Hallfreðsson lék fyrstu 80 mínút- urnar með Padova. Þýskaland B-deild Osnabrück – Darmstad........................... 1:1  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstad og skoraði mark liðsins. Svíþjóð Häcken – Djurgården ............................. 0:2  Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Häcken. Staðan: Malmö 25 14 8 3 51:25 50 Djurgården 25 12 6 7 41:27 42 Norrköping 25 11 7 7 51:37 40 Häcken 25 10 10 5 38:26 40 Elfsborg 25 9 13 3 39:32 40 Hammarby 25 10 9 6 41:36 39 Sirius 24 9 8 7 40:41 35 Östersund 25 8 9 8 26:29 33 Örebro 25 9 6 10 32:36 33 Mjällby 25 8 8 9 37:41 32 AIK 24 8 7 9 26:28 31 Varberg 25 7 7 11 33:38 28 Gautaborg 25 4 12 9 27:39 24 Helsingborg 25 4 10 11 28:41 22 Falkenberg 25 4 8 13 26:42 20 Kalmar 25 4 8 13 26:44 20 Noregur B-deild: Raufoss – Lilleström ............................... 2:0  Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður í hálfleik hjá Lilleström og Tryggvi Hrafn Haraldsson á 63. mínútu, Arnór Smárason var ekki í leikmannahópi liðsins. Tromsö – Ham-Kam ................................ 3:1  Adam Örn Arnarson Lék ekki með Tromsö vegna meiðsla.  Danmörk Aarhus – Ribe-Esbjerg ....................... 25:31  Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason 3 og Gunnar Steinn Jónsson 2. Bikarkeppni, 8-liða úrslit: Aarhus United – Odense..................... 17:31  Thea Imani Sturludóttir skoraði 1 mark fyrir Aarhus United. Noregur Kolstad – Drammen ............................ 27:21  Óskar Ólafsson skoraði 1 mark fyrir Drammen. Svíþjóð Västerås – Lugi.................................... 25:28  Hafdís Renötudóttir kom ekkert við sögu hjá Lugi.   FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands sendi á dögunum frá sér lista yfir íþróttafólk sem vinnur mark- visst að því að vinna sér inn keppn- isrétt á Ólympíuleikunum í Tókýó. Á listanum er íþróttafólk sem sér- samböndin telja að eigi raunhæfa möguleika á að komast á leikana. Spretthlauparinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er á listanum þótt hún sé ekki orðin 19 ára gömul en fram- gangur hennar á hlaupabrautinni síðustu árin hefur verið með þeim hætti að væntingar eru til hennar gerðar. „Æfingarnar í vetur fara mikið eftir því hvernig staðan verður með veiruna. Þá er spurning hversu mik- ið maður geti æft inni. Ég vonast til að komast inn í höllina og ná gæða- æfingum. Þetta er svolítið óþægilegt fyrir mig og Brynjar þjálfara vegna þess að flóknara er að skipuleggja æfingar í þessu ástandi. Hvenær á að toppa og hvernig á að stjórna æf- ingaálaginu með tilliti til keppni? Ég vorkenni Brynjari að þurfa að finna út úr því. Ég ætla mér að æfa rosa- lega vel og ef keppnir verða í boði þá mun ég auðvitað keppa. Ég þarf að ná stigum á ólympíulistanum til að auka möguleikana á því að komast á Ólympíuleikana. Ég mun reyna að ná mótum þar sem stig eru í boði fyrir stigalistann,“ segir Guðbjörg Jóna en Morgunblaðið tók púlsinn á henni í gær. „Það gefur mér heilmikið að vera á listanum sem ÍSÍ gaf út. Ég finn að það er mikil hvatning fyrir mig. Þetta sýnir að fólk hefur trú á mér og þá hef ég sjálf meiri trú á því sem ég er að gera. Ég stefni á að komast á Ólympíuleikana, en á næsta ári eru fleiri mót sem ég tek þátt í ef ástandið leyfir. Til dæmis verður EM 23 ára og yngri í Noregi sem ætti að vera stutt og einfalt ferða- lag. Við eigum núna öflugar stelpur og við munum reyna að senda sveit í boðhlaup ef hægt er. Gæti verið í 4x100 metra hlaupi og/eða 4x400 metra hlaupi. Ég held að sveitirnar séu svipað sterkar í þessum grein- um. Það væri snilld að geta keppt einnig í boðhlaupi þegar maður er búinn að keppa í sinni grein.“ Lágmarkið er 22,80 sekúndur Tveir leiðir eru fyrir hlauparana inn á Ólympíuleikana. Annars vegar að ná lágmarki eins og þekkt er en Alþjóðafrjálsíþróttasambandið tók þá ákvörðun að vera einnig með stigalista vegna Ólympíuleikanna eins og Guðbjörg kom inn á. „Lágmarkið sem ég þarf að ná í 200 metrunum er 22,80 sekúndur og minn besti árangur er 23,45 sek. Ég er aðeins frá lágmarkinu en vonandi get ég komist nálægt því. Einnig er hægt að komast inn á stigum. Ég þarf að finna mót þar sem mörg stig eru í boði fyrir ólympíulistann. Fimm mót telja, tvö innanhúss og þrjú utanhúss. Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandið breytti kerfinu varðandi lágmörkin og vildi koma stigalist- unum inn. Ég held að það komi sér frekar vel að hafa fleiri möguleika,“ segir Guðbjörg en hún hefur til þess bætt sig á hverju ári og verið á með- al fremstu 200 metra hlaupara í heiminum í sínum aldursflokki. Eft- ir að hafa lítið keppt á árinu er það annars konar upplifun að geta ekki sýnt fram á framfarir svart á hvítu. „Maður er svo vanur því að bæta sig en svo kemur þetta ár og maður getur ekki sýnt fram á betri tíma í keppni. Það voru fá mót á þessu ári og þegar voru mót þá var ömurlegt veður. Ég saknaði þessi að komast utan að keppa því þá eru aðstæður betri og samkeppnin meiri í minni grein. Það var svolítið leiðinlegt að komast ekki á HM 20 ára og yngri sem átti að fara fram í Kenía. Þar ætlaði ég mér að komast í úrslit. En við þessar aðstæður þarf maður bara að halda haus og horfa frekar til næsta árs.“ Kapp er best með forsjá Guðbjörg Jóna fann fyrir sárs- auka í vinstri fæti síðasta vetur en fljótlega eftir það fór kórónuveiran að herja á heimsbyggðina og hún fékk því tíma til að jafna sig á því. „Ég fór að finna fyrir verk ristinni og gat varla gengið á einhverjum tímapunkti. Ég fór til sjúkraþjálfara og í framhaldinu kom í ljós að ég var með beinbjúg á þremur stöðum í ristinni. Ég finn ekkert fyrir þessu í dag en þarf að fara varlega og gæta þess að æfingaálagið verði ekki of mikið,“ segir Guðbjörg Jóna Bjarna- dóttir í samtali við Morgunblaðið. Horfir sem fyrr til Tókýó  Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fékk fá tækifæri til að keppa á árinu  Er með Ólympíuleikana í sigtinu en óvissa ríkir um hvenær mót verða í boði á ný Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hóf Guðbjörg Jóna hafnaði í 7. sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins 2019 og tekur hér við verðlaunum. Englandsmeistarar Liverpool hafa blandað sér í baráttuna um knatt- spyrnumanninn Ísak Bergmann Jó- hannesson sem leikur með úrvals- deildarliði Norrköping í Svíþjóð. Expressen greinir frá. Ísak hefur vakið mikla athygli fyrir frammi- stöðu sína í Svíþjóð á þessari leiktíð en hann er orðinn fastamaður í liði Norrköping þrátt fyrir að vera ein- ungis 17 ára gamall. Félög á borð við Juventus og Manchester United hafa fylgst vel með Ísak síðustu vik- ur og mánuði, en hann leikur með U21 árs landsliði Íslands. Ísak á smásjá Liverpool Ljósmynd/Norrköping Eftirsóttur Ísak Bergmann Jóhann- esson er mjög eftirsóttur. Guðný Árnadóttir, leikmaður Ís- landsmeistara Vals í knattspyrnu, er eftirsótt af erlendum félögum samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Eitt þessara félaga er AC Milan á Ítalíu en Berglind Björg Þorvalds- dóttir, samherji Guðnýjar í lands- liðinu, lék sem lánsmaður hjá liðinu frá janúar og fram í maí á þessu ári þar sem hún stóð sig mjög vel. Kvennalið AC Milan er nokkuð nýtt af nálinni en það var stofnað í júlí 2018 og hefur byrjað tímabilið mjög vel í ítölsku A-deildinni. AC Milan fylgist með Guðnýju Morgunblaðið/Eggert Milan Landsliðskonan Guðný Árna- dóttir gæti farið til AC Milan. Bandaríkjamaðurinn Christian Coleman, heimsmeistari í 100 metra hlaupi, hefur verið úrskurð- aður í tveggja ára keppnisbann fyrir að skrópa í þremur lyfja- prófum í röð. Coleman, sem er 24 ára gamall, mun því ekki geta tekið þátt á Ól- ympíuleikunum í Tókýó sem áttu að fara fram sumarið 2020 en var frestað fram í júlí og ágúst 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Coleman vann til gullverðlauna í 100 metra hlaupinu á HM í Doha í Katar árið 2019 en hann vann einnig til gullverðlauna í 4x100 metra boðhlaupi með sveit Banda- ríkjanna á HM í Doha. Coleman hefur þrjátíu daga til þess að áfrýja úrskurði aganefndar Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins kjósi hann að gera það. Fari svo mun Alþjóðaíþróttadómstóllinn taka málið fyrir. Spretthlauparinn var boðaður í lyfjapróf í janúar 2019. Hann átti svo að mæta í apríl 2019 og desem- ber sama ár en var hvergi sjáan- legur í öllum tilfellum. Samkvæmt reglum sem unnið er eftir í lyfjaeftirlitinu hefur íþrótta- fólk klukkustund til að mæta á staðinn sem það er boðað á til að taka prófið. Þ.e.a.s fulltrúa lyfjaeft- irlitsins er gert að bíða í klukku- tíma eftir íþróttafólkinu. sport- @mbl.is Heimsmeistari í tveggja ára keppnisbann  Christian Coleman var boðaður þrívegis í lyfjapróf á síðasta ári en mætti ekki AFP Bann Christian Coleman er búinn að koma sér í erfiða stöðu. Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir aðeins 25 mín- útur af leik Paris Saint Germain og Basaksehir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gær. Neymar hefur glímt við meiðsli síðustu mánuði, bæði í baki og í kálfa, en ekki er vitað hvers eðlis meiðslin sem hann varð fyrir í leiknum í gær eru. Parísarliðið spjaraði sig ágæt- lega án Brasilíumannsins því liðið vann 2:0-sigur og er þá með þrjú stig í riðlinum. Næsti leikur París St. Germain í keppninni verður í Þýskalandi gegn RB Leipzig og þar eru mikilvæg stig í boði. Neymar fór meiddur af velli í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.