Morgunblaðið - 29.10.2020, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 29.10.2020, Qupperneq 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þriðja breiðskífa svartmálmssveit- arinnar Auðnar kemur út á morgun, 30. október, og ber hún titilinn Vökudraumsins fangi. Líkt og fyrri plötur Auðnar prýðir umslagið mál- verk eftir Mýrmann sem er með vinnustofu í sama húsi í Hveragerði og Auðn æfir í. Útgefandi er Season of Mist sem er þekkt nafn í málm- heimi og er þetta önnur plata Auðn- ar sem fyrirtækið gefur út en sú fyrri er Farvegir fyrndar sem kom út fyrir þremur árum. Auðn skipa gítarleikararnir Andri Björn Birgisson, Aðalsteinn Magn- ússon og Hjálm- ar Gylfason, Matthías Hlífar Mogensen leik- ur á bassa og gítara og Sig- urður Kjartan Pálsson tromm- ar. Sá sem stendur í stafni og syngur, æpir og rymur drungalega textana er svo Hjalti Sveinsson. Eistnaflug gerði gæfumuninn Auðn var stofnuð fyrir tíu árum, í desember árið 2010, og voru liðs- menn sveitarinnar lengst af fimm talsins. Hjálmar, sem nú er gítar- leikari, var þá á bassa en nú eru gítarleikararnir orðnir þrír þar sem Matthías hefur gengið til liðs við sveitina og leikur á bassa. Söngvari sveitarinnar, Hjalti, seg- ir að þeir félagar hafi í fyrstu gert allt sjálfir, samið og tekið upp fyrstu plötuna í Hveragerði og plötuna vann svo íslenskur námsmaður í Sví- þjóð. Þegar Auðn lék á Eistnaflugi fór boltinn svo að rúlla. „Við náðum að spila fyrir rétta fólkið og þannig enduðum við á því að kynnast Sea- son of Mist og líka fólkinu sem teng- ist bókunarstofunni okkar, Doom- star,“ segir Hjalti. – Voruð þið allir vinir þegar hljómsveitin var stofnuð? „Já, við Aðalsteinn og Siggi vor- um áður í öðru verkefni, Hubris, vorum að spila en það gekk eitthvað hægt hjá okkur en það byrjaði 2007. Ég þekkti Andra og fékk hann til að koma og semja með okkur og þá byrjaði Auðn,“ svarar Hjalti. Sálarlíf, náttúra og fantasía – Vökudraumsins fangi, þetta er svakalegur titill! „Já, þetta er titill frá Aðalsteini sem semur mest af textunum. Þetta er titillagið og síðasta lagið á plöt- unni. Þemun eru svolítið sálarlífið og þeir erfiðleikar sem mann- skepnan glímir við,“ svarar Hjalti og inn í þetta fléttist íslensk náttúra og fantasía, draugagangur og fleira. „Vökudraumsins fangi er einhver sem er svolítið fastur í eigin hugs- unum og á erfitt með að rífa sig í gang og vera hluti af lífinu.“ Spurður um muninn á nýju plöt- unni og þeirri síðustu segir Hjalti að fjölgun gítarleikara hafi haft sín áhrif og að platan sé eðlileg þróun frá þeirri síðustu. „Fyrir mér var aðalmunurinn ferlið, þegar við vor- um komnir með þrjá gítarleikara voru fleiri að semja og hlutirnir gerðust hraðar. Við vorum ekki lengi að vinna þessa plötu, þetta gekk allt rosalega vel fyrir sig.“ Ákefð í lykilhlutverki – Að vera í svona hljómsveit er ákveðin líkamsrækt, er það ekki, það er spilað mjög hratt og sungið af krafti? „Jú, algjörlega, ákveðin ákefð er í algjöru lykilhlutverki. Fyrir mér er innlifunin gríðarlega mikilvæg og að skila því á tónleikum er mjög mikil- vægt þannig að jú, þetta er algjör líkamsrækt,“ svarar Hjalti og að vera í hljómsveitinni sé gríðarlega góð útrás. Hjalti rymur af miklum krafti í lögunum og söngur af því tagi reyn- ir mjög á raddböndin og hálsinn. Hann segist því ekki drekka áfengi í tónleikaferðum og í raun lifa hálf- gerðu munkalífi, drekka mikið te með hunangi, timían og sítrónu. „Það má segja að ég lifi aldrei jafn- heilbrigðu lífi og þegar ég er á túr, öfugt við ímyndina oft,“ segir hann sposkur. Dramatík og eymd Talið berst að titlum laganna og þeir eru margir í svartari kantinum. Má nefna „Drepsótt“, „Einn um alla tíð“ og „Horfin mér“. Hjalti segir að upptökur plötunnar hafi farið fram þegar fréttir tóku að berast um kór- ónuveiruna skæðu og útbreiðslu hennar í Kína. „Drepsótt“ hafi samt sem áður fengið að vera með á plöt- unni og ákveðið að breyta ekki texta lagsins. „Þetta er allt mjög drama- tískt, mikil eymd og svoleiðis í þessu,“ segir Hjalti um textana al- mennt. – Svartmálmsmenn mega ekki syngja um hvað þeir elski konuna sína mikið eða hversu gaman sé að ganga með barn í vagni um Hvera- gerði, er það? „Maður myndi kannski ekki orða það þannig en ég er samt líka að reyna að vinna með það að vera ekki takmarkaður eða láta það ekki halda aftur af manni ef maður hefur eitt- hvað að segja,“ svarar Hjalti. Skiptidíll Season of Mist gefur plötuna út sem fyrr segir og segir Hjalti miklu hafa breytt fyrir Auðn að komast á samning hjá fyrirtækinu. „Plötu- fyrirtæki eru allt önnur skepna núna en þau voru fyrir 20 árum,“ segir hann, „og í dag er þetta eigin- lega bara skiptidíll. Þú lætur þá fá hluta af tekjunum þínum í staðinn fyrir kynningu eða „exposure“ eins og sagt er á ensku. Og það hefur svo sannarlega hjálpað okkur að kynnast því fólki sem við höfum þurft að kynnast og komið okkur í tengsl við hátíðir. Þetta er „label“ sem við vildum endilega komast á. Þarna voru bönd eins og Mayhem og Watain og önn- ur sem eru með þeim allra stærstu í þessum bransa,“ segir Hjalti að lok- um. Þeir sem vilja kynna sér Auðn geta gert það á vef útgáfufyrirtæk- isins Season of Mist, season-of- mist.com, og hlusta má á tónlist hennar á Bandcamp og panta plöt- una nýju á ýmsu formi, bæði staf- rænu og föstu. Svartmálmsdrengir Hljómsveitin Auðn fagnar útgáfu nýrrar breiðskífu, Vökudraumsins fangi, sem Season of Mist gefur út og kemur út á morgun. Erfiðleikar mannskepnunnar  Vökudraumsins fangi nefnist ný hljómplata Auðnar  Gítarleikararnir eru nú orðnir þrír  „Vökudraumsins fangi er einhver sem er svolítið fastur í eigin hugsunum,“ segir söngvari Auðnar Verðlaun Norðurlandaráðs fyrir árið 2020 voru veitt í fimm flokkum fyrr í vikunni. Finnski rithöfundurinn Monika Fag- erholm hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Vem dödade bambi? (Hver drap Bamba?). Í umsögn dómnefndar segir að verkið ólgi af orku og fáguðum siðferðisboðskap. Myndabókin Vi är lajon! (Við erum læón!) eftir sænska rithöfundinn Jens Mattsson og finnska mynd- skreytinn Jenny Lucander hlaut Barna- og unglinga- bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Í umsögn dómnefnd- ar segir að verkið standi staðfastlega með barninu í texta og myndum. Norska kvikmyndin Barn (Börn) eftir handrits- höfundinn og leikstjórann Dag Johan Haugerud og fram- leiðandann Yngve Sæther hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs. Í umsögn dómnefndar segir að um metnaðarfullt verk sé að ræða sem kanni sambandið milli barns og fullorðins af innlifun og alvöruþunga. Finnska tónskáldið Sampo Haapamäki hlaut Tónlistar- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir verkið Konsertto neljäsosa- sävelaskelpianolle ja kamariorkesterille (Konsert fyrir kvarttónapíanó og kammersveit). Í umsögn dómnefndar segir að verkið sé óþreytandi könnunarleiðangur á vit sí- gildrar tónlistarhefðar. Daninn Jens-Kjeld Jensen sem býr og starfar í Færeyjum hlaut Umhverfisverðlaun Norður- landaráðs fyrir viðleitni sína til að vekja athygli á fjölbreyti- leikanum í færeyskri náttúru. Ráðherrar menningarmála á Norðurlöndum vinna nú að nýrri norrænni samstarfsáætlun til næstu fjögurra ára, sem felur í sér niðurskurð á sviði menningar- og menntamála, m.a. um 7% 2021. Norræna þekkingar- og menningar- nefndin varar við slíku enda ljóst að kórónuveirufaraldurinn hefur þegar komið harkalega niður á menningargeiranum. Sæl Efri röð f.v.: Dag Johan Haugerud, Monika Fager- holm og Jens Mattsson. Neðri röð: Jenny Lucander, Sampo Haapamäki, Jens-Kjeld Jensen og Yngve Sæther. Verðlaunahafar ársins 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.