Stefnir - 01.04.1950, Blaðsíða 34

Stefnir - 01.04.1950, Blaðsíða 34
32 STF.FNIR að stuðla að þessari „nýsköpun“ stjórnmálastarfseminnar. Höfuð- atriðið er að hafa ætíð hið sanna og rétta að leiðarljósi. bæði í ræðu og riti, og beita sönnum rökum en ekki blekkingum. Við verðum að vera reiðubúin að við- urkenna mistök hjá okkur sjálf- um og okkar flokki og meta gerðir andstæðingann af sann- girni. Sumir kunna að segja sem svo, að á þenna hátt sé erfitt að skapa baráttuáhuga og steik sam- tök. Þetta er rétt hvað snertir þann hóp manna, sem vill láta leiða sig blindandi og hugsunar- laust, en sá flokkur er ekki lík- legur til að leggja grundvöll að farsælu menningarþjóðfélagi. En allir þeir stjórnmálamenn, sem þenna hugsunarhátt og starfsað- ferðir tileinka sér, munu finna hljómgrunn hjá öllum þeim þjóð- félagsborgurum, sem vilja geta treyst því, sem við þá er sagt, og sem betur fer, er sá hópur rniklu stærri. A. sama hátt vill fólk fá sannar og réttar fregnir af hverjum atburði, og mikill meiri hluti þjóðarinnar er áreið- anlega það þroskaður að for- dæma þann mannorðsspillandi á- róður, sem oft er í frammi hafð- ur. Eg tel, að æskulýðssamtök stjórnmálaflokkanna gætu unnið bæði sjálfum sér og þjóðinni allri mikið gagn, ef þau legðu sig fram um að bæta á þenna hátt stjórnmálasiðferðið í land- inu. Stjórnmálabaráttan er að vissu leyti hernaður, en hún á að vera drengilegur hernaður. Lýðræðisskipulagið byggist á því, að menn hafi ólíkar skoð- anir, og það viðurkennir, að skoðanamismunur sé réttmætur. Ef til væri einhver algildur sannleikur, svo að ætíð væri hægt aS dæma óvéfengjanlega um það, hvað væri satt og rétt í hverju máli, þá væri úrlausn vandamála mannkynsins auðveld — ef að- eins allir vildu viðurkenna hið sanna og rétta og þar með fylgja þeirri stefnu, sem ég hef vikið að hér á undan. En nú er gallinn sá, að þótt hægt sé oftast að segja hvað sé satt og rétt um einstaka atburöi, sem liðnir eru, eða eru að gerast, þá getum við að jafnaði aðeins getið okkur til, hvað gerast muni í framtíðinni, og við höfum eng- an algildan mælikvarða um það. hvað sé réttast að gera eða hvaða heildarstefnu sé réttast að fylgja. Um það verðum við að reyna að mynda okkur skoðanir, og þær skoðanir verða sjaldan eins hjá öllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.