Stefnir - 01.04.1950, Síða 46
44
STEFNIR
byggðarlög, þar sem vel er fyrir séð, ef kindinni eru ætlaðir tveir
baggar til vertrarfóðurs, í mörgum sveitum eru þrír baggar ríflegt
fóður, og í nokkrum sveitum er talinn góður ásetningur að ætla
einn bagga handa kindinni. Og þetta er að jafnaði miðað við úthey,
misjafnlega verkað og misjafnlega gott, þótt vel tækist til með
verkunina. Síldarmjölið bætir svo um fóðurgæðin og veitir öryggi
með beitinni, hvort sem það er beit til fjalla eða í fjöru.
Með töðugjöf —- sama magni af töðu eins og nú er notað af út-
heyi, mundi öryggið stóraukast og eitthvað sparast af fóðurbæti, ef
taðan væri tryggilega verkuð.
I mörgum af þeim sveitum, sem hér er um að ræða, er útheysskap-
ur seintekinn, en möguleikar til ræktunar ýmist sæmilegir eða jafn-
vel góðir.
Reiknum nú. Hektari í slíkum sveitum fóðrar 33—50—100 kind-
ur. Sjö ha tún getur t. d. fóðrað 300 fjár, 4 kýr og 3—4 hross. þar
sem bezt er. Þvílíkt ævintýri! Það er í raun og veru ekki mikið
fyrirtæki að rækta 7 ha tún. Og hvað er að heyja það með vélum,
í votheysgryfjur og súgþurrkunarhlöður. Hvílíkt ævintýri, að það
skuli sums staðar ekki þurfa nema 10 ha ræktun til að fóðra allt
að 1000 fjár! eða 15 ha til að fóðra 1000 fjár, 4 kýr og 4 hross.
Stórbú á vorn mælikvarða, langt fyrir ofan það, sem nú tíðkast.
þar sem bú eru ríflegust.
En höldum oss við meðaltalið t. d. 15 ha tún og 500 fjár. Húsa-
kostur fyrir slíkan bústofn er tiltölulega ódýr, langtum ódýrari en
á tilsvarandi kúabúi. Það þarf ekki mikinn mannafla til þess að
heyja fyrir fénaðinum, þegar véla nýtur við, og hús eru haganleg,
þótt það geti verið og sé snúningasamt og fullerfitt, og jafnvel ó-
kleift eins og nú til hagar víða með ræktunarleysi, að reita saman
500 hesta heyskap á búi eða meira út um grundir og mýrar.
Nóg er að starfa á slíku búi haust og vor, og vetur leiðir ekki til
kyrrsetu, en mannskapurinn á slíku búi getur vel veitt sér rífleg sum-
aifrí á við kaupstaðarbúa, og yfirleitt gert sér þennan bezta tíma
ársins að frjálsræðis- og gleðitíma.
Þetta búskaparlag við sauðfjárbúskap má heita óþekkt hér á
landi, ennþá sem komið er, en er það nokkur fjarstæða? Nei, fjarri
fer því, en það er fjarstæða að loka augunum fyrir því, að slíkir sól-