Stefnir - 01.06.1955, Blaðsíða 8
STURLA FRIÐRIKSSON :
ZEsÆciniiLerfðix'
ManneríSir eða „eugenics“, eins og
fræðigrein þessi heitir á erlendu
máli, er tiltölulega ung vísindi, sem
sigldi í kjölfar þeirrar þekkingar,
sem nútímamaðurinn öðlaðist á síð-
astliðinni öld á almennri arfgengi
jurta og dýra. Maðurinn hafði að
vísu frá fornu fari myndað sér marg-
víslegar skoðanir um ýms atriði í gerð
og fari hans sjálfs, er þóttu frá-
brugðin hinu venjulega og haföi hann
reynt að skýra tilkomu hinna misjöfnu
eiginleika og útlit á ýmsa vegu, en
um markvissar rannsóknir var ekki að
ræða á þeim tímum. Á öllum öldum
hafa menn glímt við að skilja sam-
bandiö milli líkingar afkvæmis og for-
eldra og e. t. v. ekki síður reynt að
finna orsakir til frávika.
|,lrumstæðar þjóðir, sem ekki skildu
myndun fóstursins né þroska
þess, ímynduðu sér, að barnið væri
einhver andi, sem tæki sér bólfestu í
likama móðurinnar og hefði svip hlut-
ar, dýrs eða jurtar, sem móðirin hefði
orðið fyrir áhrifum af nm meðgöngu-
tímann. Var því ekki óeðlilegt, að
hinn ungi einstaklingur teldi náið
samband milli sín og áhrifaverunnar
og tæki jafnvel nafn hennar og kall-
aði sig t.d. Úlf, Björn eða Hrafn o.s.frv.
Móðirin þurfti því að gæta fyllstu
varúðar, hvað hús aðhafðist og um-
gekkst um meögöngutímann, því öll
utanaðkomandi áhrif áttu að geta' mót-
að útlit fóstursins. Fram til skamms
tíma hefur eimt eftir af þessari trú
meðal okkar íslendinga. Þannig leitað-
ist íslenzk alþýða við að útskýra, hvers
vegna barn fæddist msð skarð í vör,
varð rangeygt eða freknótt. Mataræöið
og hið nánasta umhverfi átti þannig
að móta fóstrið og vera drjúgur þáttur
í því að skapa mismuninn á útliti og
háttum einstaklinga.
I
Snemma á öldum varð mönnum þaÖ
Ijóst, að barnið var uppalið í móð-
urinni fyrir tilverknað karlmannsins og
átti því að bera svip af föðurnum. En
á hvern hátt þessi líking gat borizt frá
föðurnum var þó lengi hulin ráðgáta.
Líkingin hlaut að berast með sæði
karlmannsins, en ógerningur var að
skyggnast í þann leyndardóm áður en
smásjáin kom til hjálpar. Við upfinn-
ingu hennar opnast fyrir mönnum al-
gerlega nýr heimur. Vísindamenn
þeirra tíma tóku að rýna í alla skap-
aða hluti og teikna af þeim myndir.
Þætti okkur margt af þvi í dag furðu-