Stefnir - 01.06.1955, Qupperneq 28
26
STEFNIR
ugra ríki en Spánn, en það
hvarflaði ekki að honum, að
engu ríki er unnt að leggja undir
sig veröldina. Hann reyndi þeg-
ar í stað að feta í fótspor Spán-
verja, og smám saman hnignaði
Frakklandi unz það beið algjör-
an ósigur. Sigurvinningar Marl-
horoughs, sjö ára stríöið og
Rússlandsleiðangur Napóleons
drógu allan mátt úr Frakklandi,
svo það hefur aldrei eftir 1815
getað ráðið málum Evrópu að
eigin vild. Banahöggið veitti Bis-
marck því loks árið 1870.
Þjóðverjar gerðu sömu skyss-
una og Lúðvík 14. og létu sér
ekki dóm sögunnar að kenningu
verða.
Bæði Þýzkalandskeisari og síð-
ar Hitler réðust í að reyna að
framkvæma það áform, sem her-
toginn af Alba og sjálfur Napó-
leon höfðu báðir gefizt upp við.
Fyrir þeim fór sem hinum fyrri,
að valdafíkn þeirra og uppi-
vöðslusemi bakaði landi þeirra
ólýsanlegar hörmungar og blóðs-
úthellingar að lokum.
J^/Janninn má skilgreina á þann
hátt, að hann sé dýr, sem
ekki er fært um að læra neitt af
reynslunni. Eftir að Spánn,
Frakkland og Þýzkaland höfðu
varpað frá sér velsæld og lífs-
Bertrand Bussel er mestur heimsspek-
ingur og hugsufiur Breta í dag. Hann
fæddist árið 1872. Russel heíur ritað
mjög um heimspeki og stærðfræðileg
efni og hlotið mikla virðingu af.
Russel fylgdi kommúnistum um skeið
að málum, en eftir að hann heimsótti
Rússland skömmu eftir 1920, snérist
honum. hugur og hefur æ síðan verið
hatrammur andstæðingur kommúnis-
mans.
hamingju til þess eins að eltast.
við fánýta heimsveldisdraumsvn,
heldur nú Rússland hina sömu
leiö, annað hvort sökum fávizku
eða þá í landvinningaskyni. Sá
vegur hlýtur að leiða Rússa til al-
gjörs ósigur, jafnt og þær hinar
þjóðirnar, sem fyrr gengu hann.
En er þá ekki hægt að grípa
hér fram í og segja: „En hafa