Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Síða 131
— 129 —
1969
Nefndin gaf 9 sinnum fyrirmæli um endurbætur á húsnæði eða
rekstri, oftast að viðlagðri lokun, sem kom til framkvæmda hjá 4
fyrirtækjum. Bannaðar voru 2 íbúðir og 3 íbúðareigendum hótað dag-
sektum. Eitt skip var stöðvað.
Álafoss. Heilbrigðisnefnd Mosfellshrepps hélt nokkra fundi. Einkum
var það í sambandi við vatnsból, hænsnahús og meðferð matvæla.
2. Húsakyitni og þrifnaður. Meindýr.
Rvík. Gefin voru út vottorð um ástand 341 íbúðar vegna umsókna um
ibúðir eða lóðir, í sambandi við niðurrif íbúða og af öðrum ástæðum.
Rifnar voru 64 íbúðir. 1 árslok var fjöldi skráðra íbúða í Reykjavík
24096. Á skrá heilbrigðiseftirlitsins voru 3133 skoðaðar íbúðir. íbúðir
þessar teljast til hinna lakari að öllu ástandi og eru að mestu leyti í
kjöllurum, skúrum og risíbúðir, eða þar sem sérstaklega þótti ástæða
til skoðunar. 2588 íbúðir teljast að einu eða öðru leyti ófullnægjandi.
1 þessum íbúðum bjuggu samtals 3386 börn. Aukning íbúðarhúsnæðis
á árinu, nýbyggingar og viðaukar, nam 280060 m3. Eru þetta samtals
685 íbúðir, sem skiptast þannig eftir herbergjafjölda: 1 herbergi 17;
2 herbergi 72; 3 herbergi 129; 4 herbergi 223; 5 herbergi 169; 6 her-
bergi 60; 7 herbergi 20; 8 herbergi 4; 9 herbergi 1. Meðalstærð ný-
byggðra íbúða var á árinu um 406 m3. Lokið var byggingu félagsheimila,
skóla- og sjúkrahúsa að rúmmáli 43601 m3; verzlunar-, skrifstofu- og
^ðnaðarhúsa 48730 m3; iðnaðarhúsa og meiri háttar vörugeymsluhúsa
100762 m3; geymsluhúsa og bílskúra 20602 m3.
Eftir efni skiptast húsin þannig:
Úr steini ................................ 488988 m3
Úr timbri .................................. 4767 —
Samtals 493755 m3
1 árslok voru í smíðum 939 íbúðir, og voru þar af 596 fokheldar eða
^eira. Á árinu var hafin bygging 537 nýrra íbúða. Lokið var við 186
íbúðum færra árið 1969 en 1968, en hafin bygging á 171 fleiri íbúðum
1969 heldur en 1968. Neyzluvatn og vatnsból. Heilbrigðiseftirlitið fer
reglulega til eftirlits í Gvendarbrunna og stöðugt, ef um miklar leys-
^ngar eða flóð er að ræða, og tekur þar sýni af neyzluvatni borgarbúa.
^uk þess eru tekin sýni á ýmsum stöðum í borginni. 1 þessu reglu-
bundna eftirliti voru tekin 110 sýni, og gáfu niðurstöður rannsókna
j'ilefni til athugasemda við 41 þeirra. Rottueyðing: 3—4 menn með
bíla vinna að eyðingunni, og eitrað var kerfisbundið í holræsakerfi
borgarinnar. Alls bárust 2050 kvartanir um rottu- og músagang, og
larnar voru 22598 ferðir til eftirlits og skoðunar. Músum og rottum
var útrýmt á 9774 stöðum, og 37 skip voru skoðuð. Alls var dreift
17