Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Page 123
121
He imah.júkrun
Heimahjúkrun fengu á árinu 283 sjúklingar, eða 37 fleiri en árið áður.
Af þeim voru 178 nýir. Vitjanir voru alls 13.317 eða 3.061 fleiri en
árið áður. Unnt var að sinna öllum beiðnum, sem bárust.
Geðverndardeild fyrir börn
Starfsemi geðverndardeildar var svipuð árinu áður. 42 börnum var vís-
að til deildarinnar, og komu flestar tilvísanir frá læknum barnadeild-
ar, en einnig nokkrar frá læknum utan stofnunarinnar.
Yfirlit yfir starfsemi geðverndardeildar s.l. 10 ár:
1973 1972 1971 1970 1969 1968 1967 1966 1965 1964
Fjöldi barna í meðferð 42 49 16 182 157 108 170 236 204 240
Tannlækningar í barnaskólum
A starfsárinu komu 12.049 börn til viðgerðar, hreinsunar eða burstun-
ar. Af þessum börnum voru 7.580 með eina eða fleiri skemmdar fullorð-
instennur. Fylltar voru alls 37.745 holur, rótfylltar tennur 1.397.
Ordregnar voru 2.676 barnatennur, en 189 fullorðinstennur. Auk
almennra tannviðgerða voru smíðaðar 105 plast-, stál- eða gullkrónur.
Hér er mest um að ræða slysatilfelli. Á árinu var tekin upp sú að-
ferð að plasthúða þær tennur, sem vanalega skemmast fyrst. Hefur
þetta verið gert í um 50 börnum. Engin reynsla hefur ennþá fengist
af þess konar meðhöndlum hér á landi, en í Noregi hefur árangurinn
verið mjög góður. Til burstunar komu flest öll börn þrisvar sinnum
á árinu. ffiskilegt væri, að börnin kæmu fjórum sinnum til burstunar,
en það reyndist ekki unnt að þessu sinni. Haldið var áfram að gefa
fluortöflur í leikskólum og dagheimilum, 2ja til 5 ára börnum.