Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Síða 145
143
læknirinn sagt þetta vera tóman uppsuna hjá stefnanda (þ.e. um
máttleysi í útlimum). Hann væri við bestu heilsu. Síðan var
stefnandi (að læknisráði) "sóttur á slysavarðstofuna og fluttur í
fangageymsluna í Síðumúla"."
I málinu liggja fyrir þessi læknisvottorð:
1. Örorkumat Páls Sigurðssonar ráðuneytisstjóra, fyrrv. yfirlækn-
is Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 14. október 1971, svohljóð-
andi :
"Samkvæmt þeim gögnum, sem fyrir liggja, þá varð þessi maður fyrir
slysi 4. ágúst 1968.
Slysið varð með þeim hætti, að slasaði, sem var undir áhrifum
áfengis, ætlaði inn um glugga á húsi einu í Reykjavik, en missti
jafnvægið og steyptist niður á gólf og hlaut við það áverka á
höfuð og háls.
Ekki liggur algjörlega ljóst fyrir, hve lengi slasaði lá þarna
eftir fallið, en samkvsemt vottorði slysavarðstofu Borgarspítalans,
dags. 27. júlí 1969, þá var komið með slasaða þar á deildina hinn
4. ágúst 1968 kl. 13:00. Þetta vottorð er undirritað af Hauki
Kristjánssyni, yfirlækni deildarinnar og ..., starfandi lækni þar
og er það svohljóðandi:
"Hr. hæstaréttarlögm. ...
Samkvæmt bréfi yðar frá 18. júlí 1969 farið þér fram á vottorð
vegna komu G.S-sonar, f. ... 1938, á slysadeild Borgarspítalans
hinn 4. ágúst 1968 kl. 13:00. Þetta er fjórða koma G. á slysadeild-
ina árið 1968, og hefur hann verið drukkinn í öll skiptin.
Þann 4. ágúst koma sjúkraliðsmenn með G. dauðadrukkinn. Sjúkraliðs-
menn segja, að G. hafi brotið rúðu í kjallaraíbúð og síðan skriðið
inn um gluggann og fallið niður á gólf. Við komu er G. hortugur
og ölóður. Einnig eru föt hans skítug og rifin. G. er hruflaður
vinstra megin á enni og kveðst vera máttlaus en finna ef við hann
er komið. Skömmu eftir komu biður G. um vatnsglas, sem er sett
við hlið hans, og hann tekur og drekkur hjálparlaust. Við skoðun
á slysadeild virtust hreyfingar eymslalausar og ohindraðar á háls-
liðum; öndun, blóðþrýstingur og púls var eðlilegt. Snertiskyn og
sinaviðbrögð virtust eðlileg. Fætur fékkst G. ekki til að hreyfa
samkvæmt skipun, en hreyfði handleggi. G. var á slysadeildinni í
tvo klukkutíma í athugun, og þótti þá ekki fært að hafa hann þar
lengur vegna ölæðis.
Hann var því sendur í fangageymsluna í Síðumúla til geymslu, þar
til ölæðið rynni af honum."
Eins og fram gengur af vottorði slysavarðstofu, þá var slasaði
fluttur í fangageymslu lögreglunnar í Síðumúla og í endurriti úr
sakadómsbók Reykjavíkur kemur í ljós, að ó.I-son læknir, hefur
verið kvaddur til hans i fangageymsluna, að því er virðist rétt
upp úr hádegi þann dag. Læknirinn segir, að G. hafi kvartað um
máttleysi í útlimum, en telur að sakir ölvunar og ósamvinnuhæfni,
þá hafi verið útilokað að gera læknisskoðun á honum svo að gagni
yrði, og er hann hafði sannfært sig um, að maðurinn væri ekki í
bráðri lífshættu, ákvað hann að gefa honum róandi sprautu og láta