Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Síða 163
161
hughreystingum frá sjúkl. og starfsfólki. Trú hans á hæfni sína
til að taka þátt í þjóðfélaginu sem fullgildur meðlimur virtist
minnkandi, og síendurteknir ósigrar í atvinnulífinu ýttu frekar und-
ir löngun hans til að gerast algjör öryrki og einangra sig algjör-
lega frá samfélaginu.
Ekki bárust neinar kvartanir frá móður hans eða öðrum ættingjum
á þessu tímabili svo vitað sé, og G. sjálfur óskaði ekki eftir inn-
lagningu. Slíkt hafði þó komið til tals frá hálfu lækna og annars
starfsfólks á deildinni, ef G. stundaði meðferð ekki betur og ekki
síst vegna þess, að G. hafði ekki viljað taka lyf síðustu vikurnar.
Niðurstaða: Hér er um 41 árs gamlan mann að ræða, sem haft hefur
einkenni um geðrænar truflanir frá fermingaraldri og talinn geð-
sjúkur frá 25 ára aldri. Hann hefur af og til haft ranghugmyndir
og getur, að mínu áliti, ekki talist sakhæfur."
Málið er lagt fyrir læknaráð á þá leið,
að óskað er umsagnar um álitsgerð Ólafs Jóhanns Jónssonar deildar-
læknis, dags. 14. janúar 1974, og þeirri spurningu beint til ráðs-
ins, hvort það fallist á niðurstöður læknisins.
Tillaga réttarmáladeildar um
Alyktun læknaráðs
Læknaráð fellst á niðurstöður ólafs Jóhanns Jónssonar deildarlæknis,
eins og þær koma fram í álitsgerð hans, dagssettri 14. janúar 1974.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 28. mars
1974, staðfest af forseta og ritara 18. apríl s.á. sem álitsgerð
og úrskurður læknaráðs.
5/1974
Stefán M. Stefánsson, borgardómari í Reykjavík, hefur með bréfi,
dags. 14. maí 1973, skv. úrskurði kveðnum upp á bæjarþingi Reykja-
víkur s.d., leitað umsagnar læknaráðs í málinu nr. 5504/1970:
H.G-son gegn V.V-syni og Samvinnutryggingum g.t.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 4. janúar 1966 varð stefnandi máls þessa, H.G-son, ..., Reykja-
vík, fyrir bifreiðinni A ...., eign stefnda, V.V-sonar, ..., Reykja-
vík, á Miklubraut í Reykjavík, þar sem hann var á leið yfir götuna,
með þeim afleiðingum, að hann hlaut meiðsli.
1 málinu liggja fyrir þessi læknisvottorð:
1. Örorkumat Páls Sigurðssonar ráðuneytissjóra, fyrrverandi yfir-
læknis Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 25. apríl 1969, svohljóð-
andi: