Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Side 167
165
H. hóf skólagöngu á eðlilegum tíma, en kvaðst hafa verið ávallt
fremur latur, lítið lagt sig fram og því hafi árangur verið eftir
því, ekki mjög góður. Hins vegar telur hann samband sitt við kenn-
ara og skólafélaga hafa verið gott og telur sig reyndar aldrei
hafa átt í neinum félagslegum erfiðleikum við leikfélaga, kunningja
og aðra þá, sem hann hefur mest samskipti við, hvorki fyrr en síðar
H. lauk gagnfræðaprófi úr ... skóla 1968, Eftir það fór hann sem
aðstoðarkokkur á ... um tíma, en hann hefur unnið við ...bankann
hér í Reykjavík síðan í febrúar 1969, síðustu árin sem gjaldkeri.
19 ára gamall kvæntist H. stúlku sér jafnaldra, en þau slitu sam-
búðinni fyrir nokkrum mánuðum. Skilnaður þessi fór fram í mesta
bróðerni, báðir aðilar töldu, að þau ættu ekki sem best saman.
Þau voru barnlaus.
H. telur andlega og líkamlega heilsu sína hafa verið góða, fyrir
utan þau einkenni, sem hann vill rekja til ofannefnds slyss.
H. man nær ekkert um tildrög þess, er hann varð fyrir bifreiðinni
á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar hinn 4. janúar 1966
nema það, að hann veit, að hann var að fara heimleiðis eftir að
hafa farið í Tónabíó kl. 17. Gerir hann því ráð fyrir, að slysið
hafi átt sér stað skömmu eftir kl. 19 um kvöldið. Hann segist
ekkert muna hvers efnis kvikmyndin hafi verið, sem hann sá, og seg-
ist ekkert muna eftir sér, fyrr en hann kom til meðvitundar á Landa-
kotsspítala að morgni hins 5. janúar. Jafnframt telur H. sig muna
óljóst eftir ýmsum atvikum, sem eiga að hafa átt sér stað síðustu
tvö árin fyrir slysið og vill kenna slysinu um. H. segist hafa
dvalist á Landakotsspítala í eina og hálfa viku, og fór síðan heim
og hóf skólagöngu u.þ.b. viku síðar. Kveðst lítið hafa getað beitt
sér við námið sökum einbeitingarskorts, kvað minni sitt hafa verið
lélegt, þurfti mun meiri svefn en áður, var úthaldslítill, þreyttist
fljótt, var jafnframt oft með höfuðverk, sem lýsti sér í stingjum
um allt höfuð. Sótti hann því skólann illa, jafnframt sagðist hann
hafa fengið margar umgangspestir um þetta leyti og fyrir þær sakir
var hann ennþá meira frá námi. Afleiðing alls þessa var sú, að H.
náði ekki 3. bekkjar prófi um vorið og settist hann því næsta haust
í ...skóla og lauk 3. bekkjar prófi þaðan vorið 1967. Sumarið 1966
gat hann hins vegar stundað almenna verkamannavinnu á Keflavíkurflug-
velli. Veturinn sem H. var á ...skóla, segir hann, að námsárangur
sinn hafi verið með besta móti. Sumarið 1967 vann hann almenna
verkamannavinnu og lauk síðan gagnfræðaprófi frá ...skóla í Reykjavík
vorið 1968. H. segir, að sér hafi gengið vel í starfi í ... bankanum
Hann byrjaði að vinna í millifærsludeild bankans, en síðustu 2 ár
hefur hann unnið sem gjaldkeri. Hann finnur ekki fyrir neinu sér-
stöku óeðlilegu álagi í starfi eða spennu, telur minni sitt sæmilegt
og segist eiga auðvelt með að muna þá hluti, sem hann leggur á sig
og þurfi að muna. Hann telur sig ekki vera sérlega færan í því að
reikna í huganum en notar mest reiknivélar og telur sig miðlungi
færan í meðferð þeirra.
óþægindi þau, sem hann kvartar mest um nú, eru nær eingöngu, að honum
finnst hann þurfa meiri svefn heldur en eðlilegt sé og hann sé e.t.v.
fremur úthaldslítill og þreytist fljótar en aðrir. Hins vegar telur
hann þetta ekki koma neitt niður á starfi sínu eða tómstundum eða
hamla honum að öðru leyti, svo sem að njóta félagsskapar kunningja
og skyldmenna eða eiga áhugamál, sem eru helst veiðitúrar og íþróttir