Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Side 181
179
2/1975
Armann Kristinsson, sakadómari í Reykjavík, hefur með bréfi, dags.
28. maí 1975, leitað umsagnar læknaráðs í sakadómsmálinu: Akæru-
valdið gegn M.E-dóttur.
Málsatvik eru þessi:
Föstudaginn 12. janúar 1973 urðu átök milli M.E-dóttur, .../Reykja-
vík/ og E.A-dóttur, ..., Reykjavík, og særðist E. í átökunum af
völdum hnífsstungu.
Aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar 1973 veitti ákærða T.Þ-syni,
..., Reykjavxk, áverka með vasahníf. Þetta gerðist að ... hér í
borg.
Aðfaranótt föstudagsins 25. október 1974 kom til átaka milli ákærðu
og J.Þ-sonar, ..., Reykjavík, með þeim afleiðingum, að J.Þ-son beið
bana. Atökin urðu á heimili M.
Réttarkrufning fór fram á líki J.Þ-sonar. Krufningarskýrslan er
dagsett 28. október 1974, undirrituð af ... lækni og hljóðar svo:
"Samkvæmt beiðni yfirsakadómarans í Reykjavík er í dag, þ.28. okt.
1974, framkvæmd krufning á líki J.Þ-sonar, er lést þ. 25. október
1974.
Rannsóknarlögreglan í Reykjavík upplýsir, að lögreglan hafi verið
kvödd að húsinu .../heimili M./ um kl. 02:30 þ. 25. október 1974.
Hafi þá maður (J.Þ-son) legið í anddyri hússins, og höfuð hans hvílt
á þröskuldi útidyra og einnig annar handleggur mannsins og vísaði
hann út úr húsinu. Líkami mannsins lá nokkuð beinn frá höfði í átt
að eldhúsdyrum, sem eru að anddyri og gegnt útidyrahurð. Skurður
var á hálsi mannsins frá barka og aftur fyrir vinstra eyra.
Sjúkrabifreið var þegar kvödd á vettvang og maðurinn fluttur á slysa-
deild Borgarspítalans. Maðurinn var þá á lífi og virtist anda reglu-
bundið en vera meðvitundarlaus. Eftir að J. hafði verið fluttur á
brott, kannaði lögreglan nánar húsakynni og kom í ljós, að í herbergi
sem var innangengt í úr eldhúsi til norðurs, var kona. Kona þessi
var nakin að öllu leyti nema því, að hún var í nærbuxum. Konan var
alblóðug, hafði áverka á höfði og einhverja skurði og marin. Hún
var einnig flutt á slysadeild Borgarspítalans. Samkvæmt upplýsingum
lækna slysadeildarinnar var komið með J. þangað kl. 03:00, og var
hann þá í losti. Honum var gefinn \ lítri af macrodex, og hækkaði
þá blóðþrýstingur fljótt. Athugun á skurði á hálsi leiddi í ljós,
að hann var grunnur, en rétt ofan við vinstra viðbein var stungusár.
Yfirlitsmynd var tekin af thorax og sýndi hún mikla blæðingu v. megin.
Rétt eftir að komið var með J. úr myndatöku, kastaði hann upp tivsvar
sinnum og snöggdó, og var klukkan þá 03.30. Lífgunartilraunir voru
reyndar í eina klst., en báru ekki árangur.
Konan, sem áður er getið, heitir M.E-dóttir og mun hún hafa veitt
J. áverkana.
A staðnum fundust: Eldhúshnífur með tréskafti, 25,5 cm á lengd.
Blaðlengd 14,5 cm, oddmjótt og smáskörðótt við egg, aðeins bogið