Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Side 191
189
Arið 1932 var botnlangi tekinn á sjúkrahúsi Hvítabandsins, an nokk-
urra fylgikvilla. Árið 1946 fékk hann ofnæmisútbrot raeð bjúg í
andliti, og var ullarflík um kennt.
Slys: Árið 1938 hlaut S. byltu og brotnuðu báðir handleggir, báðar
pípur hægri framhandleggs og sá vinstri um olnboga. Lá hann þá í
3 mánuði, greru brotin vel, og engar functionstruflanir komu fram.
1 janúarmánuði 1954 lenti hann í bifreiðaslysi með þeim hætti, að
bifreið ók aftan á hann, þar sem hann var á gangi á götu ásamt eig-
inkonu sinni, er slasaðist einnig.
Hann var fluttur á handlækningadeild Landspítalans, og kom þar í ljós
blæðing frá vinstra nýra. Hann lá þar í 3 vikur, var eina viku heima,
en þá fluttur á sjúkrahús Hvítabandsins, þar sem hann lá milli 4 og
5 mánuði, hafði þá jafnan sára verki í baki og blóð í þvagi, en á
því bar allt upp í heilt ár öðru hvoru. Talið var víst, að vinstra
nýra hafi skaddast.
Árið 1959, þann 17. mars, veiktist S. af hálsbólgu með 40° hita.
Hann var vistaður á St. Jósefsspítala á Landakoti þann 26. s.m. og
lá þar til 6. júní. Sjúkdómsgreining var glomerulo-nephritis acuta.
Eftir brottför af spítalanum var hann rúmliggjandi heima á lyfjameð-
ferð, þar til hann var lagður inn á lyflækningadeild Landspítalans
þann 8. ágúst 1959, og dvaldi þar til 21. desember s.á. Sjúkdóms-
greining Landspítalans var: glomerulo-nephritis subchromica.
Hann lá í annað sinn á III. deild Landspítalans dagana 1. -8. sept.
1966. Sjúkdómsgreiningar:
Myalgia intercostalis (virus) (726.3)
Hypertensio arterialis (nephrogen) (444)
Glomerulo-nephritis chronica (592)
1 þriðja sinn var hann á sömu deild 17. -23. desember 1966 vegna
Bronchopneumonia (763.0) og Pyelonephritis obs. pro (600.0).
1 fyrstu legu á Landspítalanum tók ... læknir skemmda kokeitla
(Tonsillitis chronica) þ. 29. október 1959.
Röntgenmyndatökur á Landspítalanum leiddu aukalega í ljós byrjandi
hrörnunarbreyt. á hrygg (Arthrosis col. cervicothoraco-lumbalis).
Eftir veikindin 1959 var S. á profylaktiskri penicillinmeðferð £
allt að 4 ár.
Þess má geta, að í sambandi við objectiva skoðun í öll 3 skiptin á
Landspítalanum er tekið fram, að ekkert sé athugavert við útlimi,
og hreyfingar í öllum liðum séu eðlilegar.
Athugun nú leiðir í ljós hypertensivar augnbotnabreytingar ca. 11°
111°, allmikla blóðþrýstingshækkun 165/110 -170/115 (hypertensio) ,
og dálitla eggjahvítu í þvagi (albuminuria + til ++), en þvagrann-
sóknir annars negat. eins og er.
Hæmoglobin mælist: 16.7 g % )
Blóðuria mælist: 23 mg % ) Eðlilegt
Sökk er: 5 mm/klst.)