Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Síða 194
192
1. Hvort S.J-son hafi hlotið tímabundna og varanlega örorku af völd-
um meiðsla þeirra, er hann hlaut 9. júlí 1967 og í málinu grein-
ir?
\
2. Verði svo talið, hverju ,nemi þá tímabundin og varanleg örorka
S.J-sonar, sem eingöngu verður rakin til meiðsla þessara?
Tillaga réttarmáladeildar um
Alyktun læknaráðs:
Ad 1: Já.
AD 2: Örorka S.J-sonar telst skv. framlögðum gögnum hæfilega metin
sem hér segir:
Frá slysdegi í 6 mánuði: 100%
Næstu 11 mánuði: 75%
Næstu 7 mánuði þar á eftir: 50%
Varanleg örorka: 35%
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 21. október
1975, staðfest af forseta og ritara 20. nóvember s.á. sem álitsgerð
og úrskurður læknaráðs.
4/1975
Hæstiréttur hefur með úrskurði, kveðnum upp 10. júní 1975, leitað
umsagnar læknaráðs í málinu nr. 15/1974: G.K-son vegna sín og ófjár
ráða barna sinna: G., H., K. og J. gegn S.B-syni, F.L-syni og
Sjóvátryggingarfélagi Islands h.f.
Málsatvik eru þessi:
Aðfaranótt laugardagsins 3. júlí 1971, milli kl. 1:30 og 2:00,
varð árekstur á Vatnskarðsvegi milli bifreiðanna Ö... og R....
Við áreksturinn beið Þ.K-dóttir, eiginkona stefnanda, bana, og enn-
fremur stúlkubarnið S.S-dóttir, dóttir stenfda, S.B-sonar, en Þ.K-
dóttir hélt á S. /stúlkubarninu/ í framsæti bifreiðarinnar, er slys-
ið varð.
Ökumaður bifreiðarinnar Ö... var F.L-son, ..., Keflavík, f. ... 1946
Blóðsýni til alkóhólákvörðunar var tekið úr ökumanni að beiðni lög-
reglunnar kl. 6:00 að morgni eftlr slysið. Blóðsýnistökuna fram-
kvæmdi Friðrik J. Friðriksson, héraðslæknir á Sauðárkróki, sbr.
vottorð hans, dags. 26. ágúst 1971.
Blóðsýnið var sent Rannsóknarstofu próf. Jóns Steffensen, þar sem
sýnið var rannsakað hinn 12. júlí 1971, og fundust í því reducerandi
efni samsvarandi 0.55 o/oo af alkóhóli.