Bændablaðið - 08.07.2021, Síða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 20216
Í samræmi við samþykkt aukabúnaðarþings
Bændasamtaka Íslands frá 10. júní sl. hefur
nýtt skipulag samtakanna formlega tekið
gildi frá og með 1. júlí. Nýir starfsmenn
hafa gengið til liðs við samtökin frá
búgreinafélögunum.
Helstu breytingar á skipulagi skrifstofu
eru að tvö ný svið hafa litið dagsins ljós,
markaðssvið og fagsvið búgreina. Markaðssvið
samtakanna mun hafa heildarumsjón með öllu
markaðs- og kynningarstarfi landbúnaðarins í
heild, ásamt því að sinna starfsemi og verkefnum
sem tilheyra einstaka búgreinum sem er ætlað
að styðja og efla íslenskan landbúnað. Á
fagsviði búgreina er starfað í deildum sem hafa
það verksvið að annast um sérhæfð málefni
einstakra búgreina. Fagdeildirnar sjá m.a. um
ýmis málefni í ytra umhverfi búgreina, móta
áherslur í hagsmunagæslu, taka þátt í skipan
fagráða o.s.frv.
Loftslagsmálin tekin föstum tökum
Íslensk stjórnvöld hafa sett það markmið að
Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en
árið 2040 og bændur landsins ætla ekki að
láta sitt eftir liggja í þeim efnum. Bændasamtök
Íslands tóku nýverið þátt í vinnu við gerð
Loftslagsvegvísi atvinnulífsins ásamt Samorku,
Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum
fjármálafyrirtækja, Samtökum fyrirtækja í
sjávarútvegi, Samtökum iðnaðarins, Samtökum
verslunar og þjónustu og Grænvangs.
Við hjá Bændasamtökunum og bændur
áttum okkur á því að árangri verði ekki náð
nema atvinnulífið leiki þar stórt hlutverk,
einkum þegar kemur að tækniþróun, nýsköpun,
hönnun og umhverfisvænum lausnum. Því
höfum við fengið til liðs við okkur sérfræðing
í umhverfismálum og verkefnisstjóra yfir
Kolefnisbrúnni, en allar spár til framtíðar benda
til virks markaðar með kolefniseiningar og leika
bændur og landeigendur þar lykilhlutverki.
Kolefnisbrúin snýst um að ræktendur um
land allt geti, með plöntun og umhirðu skóga,
kolefnisjafnað sína eigin starfsemi og selt
þá þjónustu til annarra, jafnvel til stórra og
meðalstórra fyrirtækja. Áhersla er lögð á að
ferlið sé vottað og stuðli að umfangsmikilli
kolefnisbindingu um land allt til að mæta
skuldbindingu Íslands í alþjóðasamfélaginu
og stefnumörkun stjórnvalda.
Áfram veginn bændur!
Bændasamtök Íslands eru rótgróin og afar
mikilvæg samtök sem þó hafa ef til vill
verið föst í viðjum vanans um langa hríð.
Hlutirnir hafa verið gerðir eins án þess að
því sé velt upp hvernig eða hvers vegna,
sem hefur síðan ef til vill leitt til þess að
félagsmenn hafa talið hagsmunum sínum
betur borgið með öðru fyrirkomulagi og
því stofnað sérstök búgreinafélög. En núna
ætla bændur að horfa áfram veginn og nú
þegar sameining hefur gengið í garð nýtist
mannauður og fagleg þekking starfsmanna
betur, atvinnugreininni til heilla. En við
þurfum á stuðningi bænda og þeirra sem
starfa í frumframleiðslu matvara og búvara
til þess að ganga til liðs við samtökin og
tala til fólks sem er með okkur í liði. Við
erum öll sammála um mikilvægi þess að velja
íslenskt, núna þurfum við að einblína á að
sýna fram á sérstöðu íslenskrar framleiðslu
með gæðavitund og umhverfismál í huga.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 11.600 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 7.600 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Það er einkennilegt að Íslendingar skuli
ekki komnir lengra í matreiðslu yfirvalda
á sannleikanum en tíðkaðist á miðöldum.
Þá þótti ráðamönnum boðlegt að kynda
undir skefjalausum ótta almennings á
að lenda í hreinsunareldi í helvíti. Menn
gátu síðan komist hjá slíku með því einu
að kaupa aflátsbréf af yfirvöldum fyrir
drjúgan pening. Enn virðist slíkt kukl í
fullu gildi á Íslandi.
Orkustofnun skráir skilmerkilega ár hvert
áhrif samstarfs í orkumálum á milli Íslands
og Evrópusambandsins. Ein birtingarmynd
þess er heimild til sölu á því sem kallað
er upprunaábyrgða raforku. Þá eru menn
að selja pappíra sem votta að orkan sem
kaupandinn er að nota sé framleidd með
endurnýjanlegum orkulindum. Skiptir
þá engu máli þó staðreyndin sé að orkan
sem viðkomandi notar sé framleidd með
kolum, olíu, gasi eða kjarnorku. Líkt og
trúarbrögðin á miðöldum skýldu sér á bak við
baráttuna við djöfulinn sjálfan, þá er salan
á aflátsbréfum eða „upprunavottorðum“
nútímans rökstudd með baráttu gegn hlýnun
loftslags. Í báðum tilfellum er kynt undir
skefjalausum ótta almennings líkt og enginn
sé morgundagurinn.
Afleiðing sölu þessara aflátsbréfa
er að í bókhaldi Orkustofnunar fyrir
raforkuframleiðslu á Íslandi árið 2020
er skráð að 57% íslensku raforkunnar sé
framleidd með jarðefnaeldsneyti (kolum,
olíu og gasi) og 30% sé framleitt með
kjarnorku. Þá er sagt að fyrir framleiðslu
raforku á Íslandi séu Íslendingar að losa
377,91 gramm af koldíoxíði á hverja
einustu kílówattstund en þau voru
samtals rúmlega 19 milljarðar á árinu
2020. Það þýðir að losun Íslendinga af
koldíoxíði nam á pappírunum það ár um
7,2 milljónum tonna. Þá er líka sagt að
vegna orkuframleiðslu Íslendinga falli
til geislavirkur úrgangur sem nemi 1,08
grömmum á hverja kílówattstund. Það þýðir
tæplega 21 þúsund tonn af geislavirkum
úrgangi á ári. Samt segir Orkustofnun á
sama stað að raforka sem framleidd sé
á Íslandi sé 100% úr endurnýjanlegum
orkugjöfum!
Sennilega finnst vart á jarðríki sá
maður sem ekki er andsnúinn skefjalausri
mengun loftslags og óhóflegri losun á
mengunarefnum eins og koltvísýringi,
metangasi og fleiri lofttegundum. Því
meiri þekkingu sem menn öðlast á þessum
gastegundum, þeim mun betur skilja menn
áhrif þeirra í heildarsamspili ljóstillífunar
sem er undirstaða lífs á jörðinni.
Sennilega hafa engir betri skilning á slíkri
virkni lofttegunda en garðyrkjubændur sem
stunda sinn búskap í gróðurhúsum. Þeir
vita t.d. að ef hlutfall koltvísýrings í lofti í
gróðurhúsunum er of lágt þá eiga plönturnar
þeirra erfitt uppdráttar. Þó þessir bændur
og bændur í öðrum búgreinum viti vel að
koltvísýringur og metangas eru öllum gróðri
nauðsynleg, þá gera þeir sér trúlega manna
best grein fyrir skaðlegum afleiðingum
ofmettunar slíkra lofttegunda í lofthjúpi
jarðar. Það hefur því lítið upp á sig að hrópa
að þeim ókvæðisorðum um að þeir brenni í
vítislogum „Global Warming“ ef þeir kaupi
ekki svo og svo mikið af aflátsbréfum frá
íslenskum orkufyrirtækjum. Samt var reynt
fyrir nokkrum árum að stilla þeim upp við
vegg og skikka þá til slíkra kaupa, þó þeir
væru sannarlega að kaupa 100% hreina
raforku alla daga.
Þó hótanir um hræðilega tilvist eftir
dauðann á hreinsunareldinum hafi dugað
ágætlega á miðöldum til að hræða fólk til
að kaupa aflátsbréf, þá er erfitt að kyngja
því að almenningur láti nýja herra selja
sér sams konar blekkingarnar aftur. – Eða
höfum við kannski ekkert lært? /HKr.
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is –
Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 –
Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Blekkingar
Horft til suð-suðvesturs af Grafningsvegi við Jórukleif við suðvesturhluta ÞIngvallavatns. Hægra megin á myndinni blasa við Hátindur og
Jórutindur sem standa hlið við hlið. Hátindur er 425 metra hár móbergshryggur en Jórutindur, sem er 396 metra hár, er eins og skörðótt hnífsegg
séð frá austri. Jórutindur er nánast allur úr veðursorfnu móbergi. Af honum þykir afskaplega fallegt útsýni yfir Hestvík við Þingvallavatn og
hæðótt landslagið í kringum hana. Mynd / Hörður Kristjánsson
Eitt lið – ein stefna!