Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 19
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
FJÓSAINNRÉTTINGAR
Tímabókanir í síma 568 6880
VANTAR ÞIG
HEYRNARTÆKI?
Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880
Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet
skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum.
Í júlí bjóðum við upp á heyrnarmælingar og ráðgjöf á:
Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík,
Ísafirði, Selfoss og Vestmannaeyjum.
Á nýliðnum 93. ársfundi
Sambands sunnlenska kvenna
(SSK), sem var haldinn í Íþrótta
húsi Þykkvabæjar í umsjón
Kvenfélagsins Sigurvonar, var
tilkynnt um val á Kvenfélagskonu
ársins 2020.
Þann heiður hlaut Magðalena
K. Jónsdóttir, kvenfélagskona
í kvenfélaginu Fjallkonu undir
Austur-Eyjafjöllum.
Magðalena er jafnframt bóndi
á bænum Drangshlíðardal. Hún
er svo sannarlega vel að þessari
viðurkenningu komin enda hefur
hún starfað ötullega með kvenfélagi
sínu í áraraðir og einnig fyrir SSK og
Kvenfélagasamband Íslands.
Gegn fíkniefnaneyslu barna
Á ársþinginu samþykktu kvenfélags-
konur einnig eftirfarandi ályktun:
„Ársfundur Sambands
sunnlenskra kvenna, haldinn í
Þykkvabæ 5. júní 2021, skorar
á hæstvirtan barnamálaráðherra,
Ásmund Einar Daðason, að setja af
stað landsátak gegn fíkniefnaneyslu
barna og ungmenna sem og
forvarnafræðslu til foreldra og
forráðamanna strax.“ /MHH
Magðalena K. Jónsdóttir (t.h.) að taka á móti viðurkenningunni frá Elínborgu
Sigurðardóttur, formanni SSK. Mynd Pálína Magnúsdóttir
Samband sunnlenskra kvenna:
Magðalena K. Jónsdóttir bóndi
er Kvenfélagskona ársins 2020