Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 29
ÖFLUG VÖKVADRIFIN VERKFÆRI FRÁ HYCON
DÖNSK GÆÐASMÍÐI OG ÁRATUGA REYNSLA
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
Brothamrar Kjarnaborvélar Steypusagir Vatnsdælur GlussadælurNiðurrekstarhamrar
Erlendir sem og íslenskir nem
endur sækja skólann og í haust
munu 20 nýir nemendur hefja BS
nám við Hestafræðideildina.
Það var í framhaldi af því að
Hólaskóli varð formlega háskóli
árið 2007, sem var ákveðið að efla
hestanámið sem fyrir var og bjóða
upp á námsleið til BSgráðu í reið
mennsku og reiðkennslu. Fyrsti
árgangurinn í það nám var síðan
innritaður haustið 2010 og eru því
átta ár síðan fyrstu nemendurnir
með BS gráðu í reiðmennsku og
reiðkennslu útskrifuðust frá skól
anum vorið 2013. Á þessum átta
árum hafa útskrifast 132 nemendur
með þessa BS gráðu. Þar af eru 75%
konur og 43% erlendir nemendur
frá alls 11 þjóðlöndum.
(Sjá nánar frétt á vefsíðu
Háskólans á Hólum; https://www.
holar.is/is/moya/news/brautskran
ingarathofnhaskolansahol
um11juni2021).
/HáH
Reiðsýningin markar í hugum margra lokapunktinn í námi við Hestafræðideild. Stundin, þegar væntanlegir reiðkennarar klæðast bláa jakkanum í lok sýningar, er fyrir mörgum jafngildi
brautskráningar og koma fjölskyldur og vinir nemendanna heim að Hólum til að fagna með sínu fólki.
Góða vinkonur, talið frá vinstri: Birna Olivia Ödqvist, Karin Emma Emerentia Larsson, Pernilla Therese Göransson
og Seline Bauer.
Góðir vinir, talið frá vinstri: Guðbjörn Tryggvason, Carolin Annette Boese, Seline Bauer, Valdís Björk Guðmundsdóttir
og Gunnlaugur Bjarnason.
Svipmyndir af reiðsýningunni.