Bændablaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202140
LÍF&STARF
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Angus holdanaut frá NautÍs fædd 2020
Hér er nú kynntur þriðji árgangur
Angus-holdanauta frá Nautgripa-
ræktarmiðstöð Íslands á Stóra-
Ármóti. Þessir gripir eru eins
og fyrri árgangar tilkomnir
með innflutningi fósturvísa frá
Noregi og því um að ræða sérvalda
úrvalsgripi. Innflutningur
fósturvísa er ekki einfalt mál
og mikið ferli sem til þarf þar
sem gætt er ítrustu smitvarna
enda er stöðin á Stóra-Ármóti
einangrunarstöð í strangasta
skilningi þess orðs.
Holdanautakynið Aberdeen
Angus er óþarft að kynna enda
kjötgæði þess rómuð og kjötnýting
mjög góð. Kynið hentar vel þar
sem áhersla er lögð á nýtingu
beitar og gróffóðurs ásamt góðum
móðureiginleikum, mjólkurlagni
og léttan burð. Það hentar því
vel í t.d. blendingsrækt þar sem
burðarerfiðleikar eru fremur fátíðir.
Við val á fósturvísum til upp-
setningar hérlendis hefur frá því
Nautgriparæktarmiðstöð Íslands
(NautÍs) var stofnuð verið sérstak-
lega horft til nauta sem gefa góða
móðureiginleika til uppbyggingar á
Angus-holdagripastofni hérlendis.
Á árinu 2018 fæddust kálfar undan
Li‘s Great Tigre NO74039 og First
Boyd fra Li NO74033 og á árinu
2019 var um að ræða gripi undan
Hovin Hauk NO74043 og Horgen
Erie NO74029. Á árinu 2020 var
eingöngu um að ræða kálfa undan
Emil av Lillebakken NO74028.
Allt eru þetta naut sem gefa góðar
mæður.
Emil av Lillebakken, f. 2. jan-
úar 2009, hjá Jan Håvard Refsethås
í Haltdalen í Þrændalögum. Þess
má geta í framhjáhlaupi að í
Vestmannaeyjum stendur eftirgerð
stafkirkjunnar í Haltdalen.
Emil er gott alhliða kynbótanaut
sem gefur ríflega meðalstóra kálfa
með léttan burð, bæði hjá kúm og
kvígum, góðan vaxtarhraða, mikinn
fallþunga og góða flokkun sem á
við um hvort tveggja, holdfyllingu
og fituflokkun. Mæðraeiginleikar
dætra Emils eru einnig mjög miklir.
Til samanburðar við tölur um
vöxt gripa á Stóra-Ármóti má
nefna að Aberdeen Angus gripir á
uppeldisstöðinni á Staur í Noregi
voru að vaxa um 1.415-1.669 g/
dag við uppgjör í mars 2021. Í
þeim hópi voru fjórir synir Emils
av Lillebakken. Nautin sem fæddust
á Stóra-Ármóti árið 2019 uxu um
1.442-1.842 g/dag frá fæðingu til
og með maí 2020.
Þegar þetta er skrifað er sæðis-
taka úr þessum nautum ekki hafin
og því liggur ekki fyrir hver árangur
úr henni verður. Það er þó von allra
sem að verkefninu standa að síðar í
sumar standi þessi naut kúabændum
til boða við sæðingar um land allt.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Emmi 20401 - ET (1662742-0027)
Fæddur 22. júní 2020 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti
Ætt:
F. Emil av Lillebakken NO74028 M. Hovin Nora NO103702
Ff. Betong av Dagrød NO74017 Mf. Junior av Nordstu NO74060
Fm. Mairin NO24738 Mm. Hovin Felippa NO31018
Fff. Kincaid ET av Dagrød NO53755 Mff. Paringa Iron Ore E27 AUHKFE27
Ffm. NO17799 Mfm. Fiona av Nordstu NO33057
Fmf. Arctic‘s Samson NO74001 Mmf. Hovin Velixir NO74011
Fmm. Erin av Holthe NO21886 Mmm. Hovin Vimse NO25829
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með miklar og
vel holdfylltar herðar. Hásinn er stuttur, sver og vöðvamikill. Bakið breitt og holdmikið, malir
langar og ákaflega breiðar og holdfylltar. Lærvöðvinn gríðarmikill og vel kúptur. Fótstaða
bein, sterkleg, rétt og gleið. Emmi er ákaflega vel gerður, holdmikill og glæsilegur gripur.
Umsögn: Fæðingarþungi var 48 kg. Við vigtun 15. júní 2021 vóg Emmi 608 kg og hafði því
vaxið um 1.560 g/dag frá fæðingu. Emmi hefur alla tíð sýnt mjög mikla vaxtargetu.
Erpur 20402 - ET (1662742-0028)
Fæddur 24. júní 2020 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti
Ætt:
F. Emil av Lillebakken NO74028 M. Hovin Nora NO103702
Ff. Betong av Dagrød NO74017 Mf. Junior av Nordstu NO74060
Fm. Mairin NO24738 Mm. Hovin Felippa NO31018
Fff. Kincaid ET av Dagrød NO53755 Mff. Paringa Iron Ore E27 AUHKFE27
Ffm. NO17799 Mfm. Fiona av Nordstu NO33057
Fmf. Arctic‘s Samson NO74001 Mmf. Hovin Velixir NO74011
Fmm. Erin av Holthe NO21886 Mmm. Hovin Vimse NO25829
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur með miklar útlögur, hálsinn
stuttur sver og vöðvaður. Bakið er breitt og vel holdfyllt. Malirnar langar, breiðar og
holdmiklar. Mikill og kúptur lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Langvaxinn og
ákaflega vel gerður gripur með mikla holdfyllingu.
Umsögn: Fæðingarþungi var 49 kg. Við vigtun 15. júní 2021 vóg Erpur 562 kg og hafði því
vaxið um 1.537 g/dag frá fæðingu. Erpur hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.
Eðall 20403 - ET (1662742-0029)
Fæddur 29. júní 2020 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti
Ætt:
F. Emil av Lillebakken NO74028 M. Nanne av Høystad NO104656
Ff. Betong av Dagrød NO74017 Mf. Lord Rossiter av Høystad NO62302
Fm. Mairin NO24738 Mm. Kira av Høystad NO48643
Fff. Kincaid ET av Dagrød NO53755 Mff. Donaumoos King Rossiter G182 DE0985921182
Ffm. NO17799 Mfm. Hermine av Høystad NO36330
Fmf. Arctic‘s Samson NO74001 Mmf. Ilir av Høystad NO60252
Fmm. Erin av Holthe NO21886 Mmm. Beate v Teigen NO19157
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og feikilega útlögumikill með
stuttan, sveran og holdugan háls. Mikil holdfylling í breiðu bakinu. Malirnar eru ákaflega
breiðar og sérlega vel holdugar. Gríðarmikill og kúptur lærvöðvi. Fótstaða bein, sterkleg, rétt
og gleið. Breiðvaxinn, holdmikill og glæsilegur gripur.
Umsögn: Fæðingarþungi var 44 kg. Við vigtun 15. júní 2021 vóg Eðall 582 kg og hafði því
vaxið um 1.533 g/dag frá fæðingu. Eðall hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.
Emil av Lillebakken, f. 2. janúar 2009, hjá Jan Håvard Refsethås í Haltdalen í Þrændalögum. Mynd / Jan Arve Kristiansen
Erpur. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir
Emmi. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir
Eðall. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir