Bændablaðið - 08.07.2021, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 43
hannað til söfnunar á regnvatni,
sem eftir hreinsun er boðið kúnum
til drykkjar.
Hið fljótandi fjós getur svo
hreyfst upp og niður samhliða
sjávarföllunum en til þess að
tryggja stöðugleika þess, gagnvart
öldugangi og vindi, er það í raun
fasttengt við stálbita sem reknir
hafa verið niður í sjávarbotninn.
Þessir bitar gera það að verkum
að fjósið er mjög stöðugt og nær
það t.d. aldrei að halla nema um
að hámarki tæpa 30 cm þrátt fyrir
öldugang eða vind.
Franskar kýr
Kýrnar á búinu eru af hinu franska
kyni Montbéliarde en þetta er
nokkuð harðgert kyn og þekkt
fyrir hreysti. Kynið er ekki sér-
lega afurðamikið, miðað við t.d.
hið þekkta Holstein kyn, en þykir
henta betur við þessar aðstæður þar
sem fóðurgæðin geta verið með
ýmsum hætti og dægursveiflur
geta verið á gæðum þess. Þá er
mjólk Montbéliarde próteinrík
sem hentar vel fyrir afurðavinnslu
búsins.
Nýta það sem til fellur
80% af fóðrinu sem kýrnar fá
kemur frá alls konar vinnsluað-
ilum í Rotterdam og nýta þær í
raun úrgang og hliðarframleiðslu
frá annarri matvælavinnslu í
borginni. Dæmi um þetta er hýði
af kartöflum, uppsóp og úrgangur
frá kornvinnslum og brugghrat.
Þá fá kýrnar einnig nýslegið gras
sem kemur frá íþróttavöllum og
grænum svæðum borgarinnar!
Allt fóðrið sett í fóðurblandara
og kúnum gefið heilfóður með
sérstöku færibandakerfi. Til við-
bótar hafa kýrnar svo aðgengi að
beitarsvæði sem þær geta farið á
með því að rölta um landgang frá
fjósinu og upp á land.
Fjölbreyttari framleiðsla
fram undan
Ef fram fer sem horfir þá munu á
næstunni bætast við fleiri bú við
hlið kúabúsins og er stefnan sú að
þetta svæði í höfninni í Rotterdam
verði í raun töluvert stórt mat-
vælaframleiðslusvæði. Þannig
hefur nú verið hannað fljótandi
kjúklingabú auk þess sem gert er
ráð fyrir fljótandi lóðréttu garð-
yrkjubúi á svæðinu.
Kýrnar geta farið í land og á beit þegar þær vilja.
Samkvæmt grunnskipulagi svæðisins mun iðnaðarsvæðið við höfnina í
Rotterdam breytast í umfangsmikið matvælaframleiðslusvæði á komandi árum.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR
gerðir dráttarvéla
Bænda
bbl.is Facebook
STRÚKTÚR ehf | Bæjarflöt 9 | 112 Reykjavík | struktur@struktur.is | Sími: 588 6640
Nú á allt að seljast. Eigum þessa lengd á lager.
Litað bárujárn
Þykkt: 0,60 mm
Breidd: 1045 mm
Klæðir: 988 mm
3.600 kr m ² m/vsk.
40% afslá�ur meðan birgðir endast
2.160 kr m² m/vsk
RAL 9005 Svart
Lengd: 4.800 mm
Plata = 4,8 * 0,988 = 4,74 m2
Nánari upplýsingar hjá sölumönnum.