Bændablaðið - 11.03.2021, Side 1
Búnaðarþing 2021 verður hald ið á
Hótel Sögu dagana 22. og 23. mars að
öllu óbreyttu. Gunnar Þorgeirsson,
formaður Bændasamtaka
Íslands, segir að helsta málið
á dagskrá séu breytingar á
félagskerfi landbúnaðarins og
að efla stöðu Bændasamtakanna
sem hagsmunasamtök fyrir alla
bændur á landinu.
„Megináherslan á þinginu eru
félagskerfisbreytingar þar sem
stjórn Bændasamtaka Íslands mun
leggja fram tillögu að tvenns konar
sviðsmyndum. Annars vegar óbreyttu
fyrirkomulagi, sem okkur hugnast
illa, og hins vegar fyrirkomulagi þar
sem búgreinafélögin renna undir
Bændasamtökin og starfsemi því
tengdu. Slík sameining gerir okkur
kleift að ná fram áherslubreytingum
í starfsemi samtakanna og um leið
verulegri hagræðingu í tengslum
við hagsmunagæslu fyrir bændur í
landinu.“
Samþætting vinnu
Gunnar segir að við það að
búgreinafélögin renni undir
Bændasamtökin þýði að megin
áherslur verði lagðar af stjórn
samtakanna með stuðningi
búgreinadeilda.
„Gert er ráð fyrir að starfs
menn búgreinafélaganna muni
með breytingunni færast til
Bændasamtakanna og búgreina
deildirnar yrðu þannig til stuðnings
fyrir mál sem varða hverja búgrein
fyrir sig.
Á sama tíma er hægt að
samþætta vinnuna þegar kemur
að sameiginlegum málum þannig
að það séu ekki margir að vinna
sömu vinnuna hver í sínu horni og
á það til dæmis við vinnu við gerð
athugasemda við lagafrumvörp,
í sambandi við umhverfismál,
matvælamerkingar og önnur
mikilvæg verkefni. Með þessu tel
ég að við munum efla starfsemi
Bændasamtakanna og gera vinnu
innan þeirra mun skilvirkari.“
Hugnast ekki óbreytt ástand
Gunnar segir að honum hugnist
það illa ef breytingarnar á félags
kerfinu verða ekki
samþykktar og að
þá verði bændur að
fara að gera upp við
sig hver tilgangur
Bændasamtakanna
sé og hvert sé hlut
verk þeirra í framtíðinni.
„Eitt af því sem þarf að
skoða, verði ástandið óbreytt,
er hvernig verkaskipting á að
vera milli Bændasamtakanna og
búgreinafélaganna. Það er gersamlega
ótækt til lengdar að það séu allir að
grauta í sama pottinum.“
Að sögn Gunnars hafði stjórn BÍ
talsverðar áhyggjur af því hversu
margir mundu skrá sig í samtökin
eftir að tekið var upp veltutengt
félagsgjald en ánægjulegt að bændur
sjái sér hag í að tilheyra samtökum
bænda. „Þrátt fyrir þær áhyggjur eru
félagar í samtökunum svipað margir
og þeir voru, þó að mínu mati séu
of margir bændur enn fyrir utan
samtökin þrátt fyrir að njóta góðs af
starfsemi þeirra.“
Umhverfismál og
búvörusamningar
„Ef breytingarnar verða samþykktar
taka þær gildi 1. júlí og í framhaldinu
verða umhverfismál tengd íslenskum
landbúnaði tekin til skoðunar og
dregin saman í eina heildstæða
skýrslu svo hægt verði að gera
áætlun um hvað þurfi að gera á næstu
árum til að bæta stöðuna og helst að
kolefnisjafna allan landbúnað og alla
bændur í landinu.
Annað er að horfa til
endurskoðunar á búvörusamningnum
2023 og hverjar áherslur Bænda
samtakanna eiga að vera og hvað
verður um búvörusamninginn 2026
þegar hann rennur út og hvaða sýn
við höfum til framtíðar eftir það,“
segir Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands. /VH
5. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 11. mars ▯ Blað nr. 582 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Vetrarhátíð var haldin í Mývatnssveit um liðna helgi og tókst einkar vel, fjölmenni mætti og fylgdist með viðburðum sem á dagskrá voru í blíðskapar vetrarveðri. Greinilegt var að menn kunnu
vel að meta að gera sér dagamun. Vetrarhátíðin við Mývatn er einstakur viðburður þar sem bæði hefðbundnar og óhefðbundnar vetraríþróttir eru stundaðar úti í náttúrunni. Hið árlega hestamót,
Mývatn Open – Hestar á ís, var á dagskrá, til að byrja með á Mývatni en var svo fært frá Stakhólstjörn yfir á Skútustaðaengi þar sem ísinn var ekki nægilega traustur á vatninu. Dorgveiði var
einnig á dagskrá og fylgdust um 120 manns með þeirri keppni, en fyrir henni stendur Veiðifélag Mývatns, elsta veiðifélag landsins, stofnað í febrúar árið 1905. Myndir / Marcin Kozaczek
Gunnar Þorgeirsson.
Breytingar á félagskerfi landbúnaðarins verður helsta málið á Búnaðarþingi 2021:
„Hugnast ekki óbreytt ástand“
– segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sem vill efla stöðu BÍ sem hagsmunasamtaka fyrir alla bændur á landinu
Heimaslátrun og
markaðssetning
heimil næsta haust
102
Ný Oddakirkja verður byggð
og Sæmundarstofa verður
menningar- og fræðasetur
28–29
Áframhaldandi stuðningur
við smáframleiðendur