Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 4

Bændablaðið - 11.03.2021, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 20214 FRÉTTIR Krapaflóðið í Jökulsá á Fjöllum: Sauðfjárveikivarnagirðing að mestu ónýt Ljóst er að töluvert tjón hefur orðið á sauðfjárveikivarnagirð­ ingu eftir að krapaflóð varð í Jökulsá á Fjöllum í janúar. Flóðið skemmdi stærstan hluta girðingar­ innar sem nefnist Fjallalína og fer eftir Jökulsá á Fjöllum. Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið á girðinguna, Matvæla- stofnun sér um viðhaldið með fjár- magni sem ráðuneytið úthlutar árlega og sér MAST um að forgangsraða þeim fjármunum í girðingar út frá ástandi þeirra og sjúkdómastöðu hvort sínum megin línunnar, að sögn Sigrúnar Bjarnadóttur, sérgreinadýra- læknis nautgripa- og sauðfjársjúk- dóma hjá MAST. Um 80% girðingarinnar er ónýt Landgræðslan hefur séð um við- hald girðingarinnar. Héraðsfulltrúar Landgræðslunnar, þær Berglind Ýr Ingvarsdóttir og Salbjörg Matthías- dóttir, sem hafa starfsstöð á Húsavík, fóru nýverið ásamt Jóhannesi Guðmundssyni girðingarmanni og gerðu úttekt á skemmdunum. Stærstur hluti girðingarinnar virðist hafa eyðilagst í flóðinu, en þær áætla að um 80% hennar sé ónýt. Því þurfi að setja upp nýja girðingu á stórum parti, að því er greint var frá á Facebook-síðu Landgræðslunnar. Sigrún segir að óskað verði eftir úttekt verktaka og verði það gert þegar fer að vora og greiðfærara verði um svæðið. Í kjölfar úttektar muni liggja fyrir hver kostnaðurinn verður. /MÞÞ Krapaflóð sem varð í Jökulsá á Fjöllum í janúar eyðilagði stóran hluta sauðfjárveikivarnagirðingar, svonefnda Fjallalínu. Myndir / Landgræðslan Um 80% sauðfjárveikivarnargirðingar, sem nefnd er Fjallalína, er ónýt. Látrabjarg friðlýst Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis­ og auðlindaráðherra skrifaði fyrir skömmu undir frið­ lýsingu Látrabjargs. Látra bjarg er eitt stærsta fugla bjarg Evrópu og flokkast sem alþjóðlega mikil­ vægt fuglasvæði. Árið 2004 samþykkti Alþingi þingsályktun um náttúruverndar- áætlun 2004 til 2008, en svæðið heyrir undir áætlunina og þar með var samþykkt að unnið yrði að frið- lýsingu svæðisins. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla. Þar er að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem byggist meðal annars á fjöl- breyttu fæðuframboði. Á svæðinu er mesta sjófuglabyggð landsins, til að mynda stærsta þekkta álku- byggð í heimi. Fjölmargar tegundir fugla verpa á svæðinu, þar á meðal tegundir sem eru á válista, svo sem lundi og álka. Við Látrabjarg er líka að finna búsetu- og menningarminj- ar. Þá speglast jarðsaga Vestfjarða í bjarginu. Sveitarfélagið Vesturbyggð, sem fer með skipulagsábyrgð á svæðinu, hefur fagnað áformum um friðlýs- ingu Látrabjargs, en sveitarfélagið hefur um árabil hvatt til friðlýsingar svæðisins, með sérstakri áherslu á sjófuglabyggðir, fjörusvæði, minjar, útivist og fleira. /VH Ístex annar ekki eftirspurn í Léttlopa og Álafosslopa Þrátt fyrir COVID­19 hefur sjaldan verið jafnmikið að gera hjá Ístex eins og nú og segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Sigurður Sævar Gunnarsson, að líkja megi ástandinu við tímabilið eftir efnahagshrun. Sala á íslenskum lopa til Finnlands eykst ár frá ári á meðan Bretlandsmarkaður er nánast stopp í augnablikinu. „Okkar staða er mjög sérstök eins og í útflutningsullinni. Á Bretlands- markaði, sem hefur jafnan verið okkar stærsti utanlandsmarkaður, er markaðurinn erfiður og verðið er lágt. Það er reyndar aðeins að skána varðandi sölu en verðið hefur staðið í stað. Við höfum aðallega verið að selja í gólfteppaband til Bretlands en sá markaður er stopp eins og staðan er núna út af COVID-19 því ullin okkar hefur þá mest verið að nýt- ast í gólfteppi í skemmtiferðaskip, hótel og skóla sem dæmi,“ útskýrir Sigurður. Finnlandsmarkaður ört stækkandi Innanlandsmarkaður hefur verið líflegur undanfarið ár og eins sala á íslenskum lopa til Finnlands og Skandinavíu, svo borið hefur við að ákveðnir litir hafa verið uppseldir um nokkurt skeið, sérstaklega í Léttlopa og Álafosslopa. „Ístex hefur fimm tekjulindir og núna er það lopinn sem heldur öllu uppi því mikið er að gera í sölu á honum. Það er að stórum hluta drifið af Finnlandi og Skandinavíu. Það er eitthvað skrýtið að gerast í Finnlandi en frá árinu 2017 hefur sala tvöfaldast á hverju ári þangað,“ segir Sigurður og bætir við: „Við erum með ákveðið magn á innanlandsmarkaði og það hefur breyst mikið undanfarið, eða frá fyrirtækjum til einstaklinga. Áður fór töluvert mikið í ferðamanna- iðnaðinn sem hægði verulega á þegar kórónukrísan skall á en þó eru staðir niðri í miðbæ veit ég sem eru mikið í netsölu á lopa erlendis. Við erum með rúmlega fjögurra mánaða sölupantanir á Léttlopa og Álafosslopa og við náum ekki að anna eftirspurn en það tekur okkur upp í mánuð að framleiða lit í þess- um vöruflokkum. Því höfum við sett á kvöldvaktir og erum að leita allra leiða til að anna eftirspurninni og erum með í skoðun að kaupa auka dokkuvél til að auka afköstin. Við héldum að þetta myndi róast núna eftir jólin en það hefur frekar aukist í og það er prjónafólkið hér heima sem ýtir þessu öllu áfram, þetta er svipuð þróun og við sáum eftir efnahagshrunið.“ /ehg Sigurður Sævar Gunnarsson. Matvælasjóður og smáframleiðendur: Einstaklingar og sprota- fyrirtæki sett til hliðar „Matvælasjóður skiptir okkur smáframleiðendur matvæla miklu máli og því er afar mikilvægt að atvik eins og það sem fjallað var um í frétt Bændablaðsins endur­ taki sig ekki. Mikilvægi slíkrar umfjöllunar felst í þeim lærdómi sem hægt er að draga af henni sem nýtist vonandi í umbætur á ferlinu áður en farið er í næstu úthlutun,“ segir Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smá­ framleiðenda matvæla. Fjöldi félagsmanna hefur sett sig í samband við hana eftir að umræð- ur um úthlutun úr Matvælasjóði komust í hámæli eftir umfjöllun blaðsins um umsögn frá sjóðnum vegna höfnunar á styrk til eins félagsmanns Geitfjárræktarfélags Íslands. Margir smáframleiðendur velta að sögn Oddnýjar Önnu vöng- um yfir umsögnum og eins úthlutun úr Matvælasjóði. Bændablaðið tók nokkra þeirra tali. Sjóðurinn úthlutaði 480 milljón- um króna skömmu fyrir jól til 62 fyr- irtækja eða einstaklinga. Einn þeirra smáframleiðenda sem Bændablaðið ræddi við segir að sjóðurinn hafi í upphafi verið kynntur sem hluti af viðspyrnu vegna afleiðinga kórónu- veirufaraldursins á Íslandi og menn því fullir bjartsýni á að styrkja ætti einstaklinga og sprotafyrirtæki með góðar hugmyndir og verkefni á sviði nýsköpunar í matvælum. Niður staðan eftir úthlutun hafi hins vegar verið sú að stór hluti þeirrar upphæðar sem til ráðstöfunar var rann annars vegar til stórfyrirtækja sem sum hver hafi greitt sér millj- arða í arðgreiðslur undanfarin ár og hins vegar til hálfopinberra stofnana. Einstaklingar og sprotafyrirtæki sem svo sannarlega hefðu þurft á styrk að halda til að koma sínum góðu hugmyndum áfram hafi á sama tíma verið sett til hliðar. Stóru sjávarútvegsfyrirtækin fengu mest Smáframleiðandinn nefnir að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafi sem dæmi fengið ríflega 21 milljón króna í styrk vegna verk- efnis sem snýst um markaðssókn fyrir þorsk á Bretlandsmarkað og Íslandsstofa sem sér um markaðsmál fyrir íslenskan sjávarútveg fengið 6,3 milljónir króna í styrk vegna kynningarátaks fyrir saltaðan þorsk í Suður-Evrópu. Verkefni af því tagi hafi staðið yfir í áratugi og teljist varla nýnæmi eða nýsköpun, en við mat á styrkhæfni verkefna er að sögn sjóðsins mikil áhersla lögð á nýnæmi þeirra. Nýsköpunarfyrirtæki hafi á sama tíma gjarnan fengið í umsögn við höfnun á styrk að verkefni þeirra þættu ekki nægilegt nýnæmi. Hann bætti við að hann hefði frekar talið að stór sjávarútvegs - fyrirtæki sem greitt hefðu eigendum sínum ríflegan arð á umliðnum árum myndu með stolti greiða pening í Matvælasjóð frekar en sækja um og þiggja úr honum styrk. Neikvætt viðhorf til nautgriparæktar Einn viðmælandi, kúabóndi sem er með heimavinnslu, sótti um styrk til að gera heimasíðu með vefsölu og tók fram í umsókninni að þau keyrðu út vörur á rafmagnsbíl til að minnka kolefnissporið. Hans gagn- rýni snýst ekki um að þau hafi ekki fengið styrk, heldur það sem stóð í umsögninni. Það var á þá leið að þar sem þau væru kúabændur skipti ekki máli hvort þau keyrðu vörurnar út á rafmagnsbíl, kolefnisspor nautgripa- ræktar væri svo hátt. Misvísandi upplýsingar Annar félagsmaður kveðst hafa fagnað mjög tilkomu Matvælasjóðs, lesið sér vel til um hann og mætt á fundi og spurt vandlega hvað væri styrkhæft og hvað ekki. Iðulega hafi svar við spurningum verið á þá lund að það sem um var spurt væri ekki styrkhæft og því lagði hann ekki í að sækja um. Við úthlutun styrkja hafi hins vegar fyrirtæki sem ætl- aði að gera nákvæmlega sama hlut fengið tveggja milljón króna styrk. Upplýsingar um hvað væri styrk- hæft og hvað ekki hafi því greinilega verið mjög misvísandi. Nokkrir viðmælendur nefndu að það væri einkennilegt að miða við að fyrirtæki geti ekki verið eldri en fimm ára til að geta sótt um í Bárunni. Margir frumkvöðlar eigi fyrirtæki sem eru eldri, en verkefnið sem þeir séu að sækja um styrk fyrir sé glænýtt og jafnvel ótengt núver- andi starfsemi. Til að geta fengið styrk fyrir þá nýsköpun geti þau ekki nýtt kennitölu þess fyrirtækis þó það væri einfaldast og ódýrast. Eins veltu nokkrir fyrir sér hvers vegna stuðningur við smáframleið- endur, m.a. í formi fræðslu og hand- leiðslu, væri undanskilinn þar sem hann sé oft forsenda fyrir því að þeir nái árangri. /MÞÞ Oddný Anna Björnsdóttir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.