Bændablaðið - 11.03.2021, Page 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 23
Landbúnaðarráðuneyti Banda
ríkjanna fór yfir stöðu landbún
aðarmála á ráðstefnu um horfur
í greininni sem haldin var á netinu
18. og 19. febrúar síðastliðinn.
Þemað þetta árið var seigla.
Þar kemur fram að fólk hafi
upplifað mikla seiglu í landbúnaði
og matvælaiðnaðinum vegna
vanda sem takast þurfti á við
vegna COVID-19. Bændum hafi
tekist að halda áfram að halda uppi
nægu framboði öruggra matvæla
á viðráðanlegu verði. Jafnvel þó
mjög hafi reynt á aðfangaöflun og
dreifingarleiðir.
„Við höldum með bjartsýni inn í
2021,“ sagði í inngangi hagfræðinga
ráðuneytisins á ráðstefnunni.
„Þrátt fyrir áframhaldandi
áskoranir virka markaðir vel og
fæðuframboð er áfram nægilegt,
matvæli örugg og á viðráðanlegu
verði. Vöruverð er hátt og endur-
speglar í sumum tilvikum sögulega
litlar birgðir og ótrúlega mikla eft-
irspurn eftir útflutningi þrátt fyrir
hækkandi verð. Við höldum áfram
að einbeita okkur að vera leiðandi
til skamms tíma í áframhaldandi
heimsfaraldri samhliða áskorun-
um til lengri tíma litið til að bæta
framleiðni landbúnaðarins. Einnig
til að vaxa á erlendum mörkuð-
um fyrir bandarískar afurðir og
viðhalda stöðu Bandaríkjanna með
lágt kostnaðarhlutfall, sem og mestu
og öflugustu matvælaframleiðslu í
heiminum.“
Hækkandi verð
á korni og olíufræi
Bent er á að verð á korni og olíu-
ríkum jurtum hafi farið vaxandi
vegna samdráttar í framleiðslu og
aukinnar eftirspurnar. Dregið hafi úr
ræktun á 8 helstu korntegundum og
hafi hekturum í ræktun fækkað um
8 milljónir ekra síðan 2014 (um 3,2
milljónir hektara), eða úr 257 millj-
ónum í 249 milljónir ekra. Á síðasta
ári hafi veður líka leikið bændur grátt
í sumum hlutum Bandaríkjanna. Allt
hefur þetta leitt til minna framboðs
og hækkandi afurðaverðs.
Ráðuneytið býst við að plantað
verði í flesta þá akra á árinu 2021
sem ekki voru nýttir á síðasta ári.
Búast megi við að uppskeran í ár
af korni, hveiti og sojabaunum í
Bandaríkjunum verði sú mesta síðan
2016. Mögulegt sé að lagðar verði
227 milljónir ekra undir slíka ræktun
á þessu ári, eða sem svarar um 90,8
milljónum hektara.
Að mati landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna hefur þó aukin
eftirspurn eftir landbúnaðarafurðum
í Kína haft einna mest áhrif á
hækkandi verðlag. Þá hafi birgðir í
heiminum í upphafi árs 2021 á korni,
sojabaunum og hveiti ekki verið
minni í mörg ár. Því megi búast við
meiri verðhækkunum fram á næsta
ár. Mögulegt sé þó að samdráttur í
hagvexti víða um heim geti dregið
verðið niður.
Ráðuneytið bendir á að miklir
erfiðleikar hafi komið upp í mjólkur-
og kjötframleiðslu vegna áhrifa af
COVD-19. Vandi við slátrun og
markaðssetningu á kjöti hafi riðlað
markaðnum en haft mismunandi
áhrif á mismunandi kjötgreinar.
Betur hafi þó gengið að komast yfir
þessa erfiðleika en búist var við, en
hækkandi verð á fóðri muni þó áfram
hafa mikil áhrif á kjötframleiðsluna.
23 milljarðar dollara í
neyðaraðstoð til bænda
Yfirvöld hafa gripið til margvíslegra
ráðstafana til að styðja við
bandarískan landbúnað í COVID-19
faraldrinum. Þannig var sett í gang
verkefni undir nafninu Coronavirus
Food Assistance Program (CFAP)
og annað undir heitinu Farmers to
Families Food Box Program, eða
matarpakkar bænda til fjölskyldna.
Undir CFAP var veitt 23,6 millj-
örðum dollara í aðstoð með beinum
greiðslum til bænda til að takast á
við tjón vegna faraldursins. Þetta
samsvarar um 3.037 milljörðum
íslenskra króna.
Matarpakkaverkefnið miðaði
einkum að því að tengja bænd-
ur betur við neytendur. Í gegnum
þetta verkefni voru framleiddir yfir
100 milljón matarpakkar fyrir fólk í
neyð. Svipaðar aðgerðir voru settar
í gang fyrir skóla.
Spáð 5,5% samdrætti
í veltu landbúnaðar
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna reiknar með að velta
í landbúnaði dragist saman úr
136,2 milljörðum dollara árið
2020 í 128,3 milljarða dollara á
árinu 2021, eða um 5,5%. Inni í
þessum samdrætti er tekið tillit
til lækkaðs verðmats á innviðum
í landbúnaði upp á 9,8 milljarða
dollara. Samt er búist við 2,2%
verðmætaaukningu fasteigna og
lands sem standa undir 82,6%
af eignastöðu landbúnaðarins.
Er því spáð að verðmæti þessara
eigna fari í 2,63 billjónir dollara
á árinu 2021. Eignaskuldir munu
líka aukast um 3,1% á árinu 2021
og fara í 287,4 milljarða dollara.
Hafa fasteignaskuldir í landbún-
aði verið að aukast á hverju ári
síðan 2014 og búist er við að
þær skuldir standi fyrir 65,1% af
heildarskuldum landbúnaðarins
á árinu 2021. Hrein eign í grein-
inni er þó enn margföld umfram
skuldir. /HKr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
UTAN ÚR HEIMI
Bandarískir bændur reyna að ná vopnum sínum á ný eftir áföll vegna óveðurs og COVID-19 á árinu 2020:
Búist við áframhaldandi hækkunum á kornverði
– Hafa fengið sem svarar 3.037 milljörðum íslenskra króna í beina fjárhagsaðstoð
FÆRIBÖND
RYÐFRÍ
STÁLSMÍÐI
JÁRN-
SMÍÐI
fyrir allan matvælaiðnað í öllum stærðum og gerðum
Sérsmíðum
úr hágæða efnum
Hönnum og
smíðum eftir
þínum
óskum.
SÉRSMÍÐI
OG FÆRI-
BÖND
PLAST
SMÍÐI
Fyrir
matvæla-
iðnaðinn.
Hönnun,
smíði,
uppsetning
og þjónusta.
Við
sérsmíðum
lausn sem
hentar þér!
Hafðu
samband
í síma
587 1300
Miðhraun 2 • 210 Garðabær • Sími 587 1300 • kapp@kapp.is • www.kapp.is
Bændur í Bandaríkjunum fengu mikla fjárhagsaðstoð til að takast á við
margvíslegan vanda á síðasta ári, m.a. vegna óveðurs og COVID-19. Þeir
komu löndum sínum líka til aðstoðar með því að dreifa 100 milljónum
matarpökkum til þeirra sem á þurftu að halda.
Stoltur bandarískur bóndi við dráttarvél sína á akrinum. Mynd / Kissed A Farmer
jardir.is