Bændablaðið - 11.03.2021, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 25
Matvælastofnun skimar fyrir
PRRS-veiki (Porcine Respira-
tory and Reproductive Synd-
rome) í svínum á Íslandi í ár,
líkt og undanfarin ár. Sýni verða
tekin frá 8 bæjum við slátrun
að vori og hausti. Niðurstöður
verða sendar til eigenda dýra,
hvort sem þau eru jákvæð eða
neikvæð.
PRRS er einn af þeim
sjúkdómum sem mikilvægt er
að koma í veg fyrir að berist til
landsins og bregðast þarf skjótt
við ef það gerist, því hann getur
haft alvarlegar afleiðingar. Ástæða
þess að sýni eru tekin árlega er að
einkenni geta verið óljós og því
uppgötv ast seint. Sjúkdómurinn
getur því breiðst út án þess að
vart verði við hann til að byrja
með. Skimunin er liður í því að
reyna að uppgötva sjúkdóminn
snemma í ferlinu og kemur til
viðbótar almennri árvekni og
eftirliti svínabænda.
PRRS er veirusjúkdómur með
fyrst og fremst tvö birtingarform:
Frjósemisörðugleikar hjá gyltum/
göltum og öndunarerfiðleikar hjá
grísum.
• Helstu einkenni hjá gyltum
eru minnkuð matarlyst, hiti,
slappleiki og einkenni frá
öndunarfærum. Einkenni
tengd frjósemisörðugleikum
geta verið færri grísir í goti,
fósturlát seint á meðgöngu,
fæddir grísir geta verið veik-
burða og átt erfitt með öndun
og dánartíðni spenagrísa
eykst.
• Helstu einkenni hjá grísum
geta verið slappleiki, hiti,
einkenni frá lungum, hnerri
og öndunarerfiðleikar.
PRRS-veiki hefur aldrei greinst á
Íslandi og er mikilvægt að vera laus
við þennan sjúkdóm þar sem hann
veldur töluverðum vandræðum hjá
svínum og svínabændum víða um
heim. Til þess að halda honum og
öðrum smitsjúkdómum fjarri er
mikilvægt að beita fyrirbyggjandi
aðgerðum eins og góðum smit-
vörnum hjá öllum þeim sem halda
svín og vinna með svín. Einnig
er mikilvægt að dýraeigendur,
almenningur og dýralæknar séu
vel á verði til þess að geta fljótt
stöðvað útbreiðslu smitsjúkdóma
ef þeir koma upp. Samkvæmt
lögum um dýrasjúkdóma og varnir
gegn þeim ber hverjum þeim sem
hefur ástæðu til að ætla að dýr sé
haldið smitsjúkdómi sem lögin ná
yfir eða áður óþekktan sjúkdóm
að tilkynna það til dýralæknis eða
lögreglu.
Thelma Dögg Róbertsdóttir,
sérgreinadýralæknir svína
hjá Matvælastofnun
Sjá nánar á
landstolpi.is
Nýjungar! Própíonsýra og iðnaðarhampur
SÁÐVÖRULISTINN
2021
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Vantar þig
heyrnartæki?
Opn S eru ný tegund heyrnartækja frá Oticon sem hjálpa þér að heyra margfalt betur í fjölmenni og klið.
Þú getur fengið Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Heyrnartækni hefur um árabil veitt þjónustu
víðs vegar á landsbyggðinni. Í mars bjóðum við upp á heyrnarmælingar, ráðgjöf og þjónustu á eftirfarandi stöðum:
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Akureyri | Borgarnes | Egilsstaðir | Reykjanesbær | Sauðárkrókur | Selfoss | Vestmannaeyjar
Sjúkdómaskimun í svínum 2021
...frá heilbrigði til hollustu