Bændablaðið - 11.03.2021, Page 41

Bændablaðið - 11.03.2021, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 11. mars 2021 41 | S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s | | B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 | Límtré-Timbureiningar Stálgrind Yleiningar PIR Steinull SAMFÉLAGSRÝNI Garðyrkjuskólinn að Reykjum: Hingað og ekki lengra Um leið og Garðyrkjuskólinn á Reykjum var sameinaður LBHÍ fór að halla undan fæti, reyndar í smáum stíl í fyrstu en síðustu árin hefur staða skólans versnað. Fjárveitingar til skólans hafa stundum ekki skilað sér og lítið verið hlustað á óskir þeirra sem bera hitann og þungann af daglegu starfi. En í tíð núverandi rektors LbhÍ hefur ríkt algjört einræði af hennar hálfu. Hún hefur frá fyrstu tíð sýnt frábæru starfsfólki skólans og þeirra skoðunum lítilsvirðingu og á stundum jafnvel lagt það í einelti. Henni er algjörlega fyrirmunað að eiga samstarf við alla, já alla sem bera hag skólans fyrir brjósti. Þessi hrokafulla afstaða hennar og óbilgirni er að eyðileggja allt skólastarf. Fyrir rúmu ári síðan var nefnd skipuð til að finna farsæla lausn og undir lok síðasta árs ákvað menntamálaráðherra að færa skólann frá LbhÍ og hefja samstarf við FSU á Selfossi. En hvað gerist þá? Ragnheiður rektor á Hvanneyri, ekki á Reykjum, færist öll í aukana og virðst róa öllum árum að ná undirtökum á skólanum sjálfum og einu aðstöðunni sem til er á landinu fyrir garðyrkjumenntun. Með fullri virðingu fyrir Hvanneyringum og af fenginni reynslu á aðkomu þeirra að skólanum síðustu ár treysti ég þeim alls ekki. Framkoma menntamálaráðherra er óþolandi. Hún ræður þessu. Hvað ætlar þú, Lilja, með þetta fallega blómanafn, að leyfa Ragnheiði að ganga langt? Hvað er hún að skipta sér af garðyrkju þegar búið er að taka skólamálin frá henni? Og hvað er hún sífellt að erindast upp á Reykjum þegar búið er að færa skólann frá henni? Hún virðist ætla að sölsa staðinn undir sig. Reynslan á Reykjum hefur sýnt að samstarf við háskólasamfélagið hefur reynst vel en það hefur ekki reynst eins vel að láta það stjórna. Allt síðasta ár hef ég vonast eftir að heyra opinberlega frá þingmönnum, samtökum atvinnulífsins, Samiðn og stjórnendum tækni- og fjölbrautaskóla. Ég veit að þið hafið eitthvað komið nálægt þessu en þið verðið að tjá ykkur opinberlega. Og þið, garðyrkjufólk, látið í ykkur heyra, annars fljótum við sofandi að feigðarósi. Höldum fund á Reykjum sem fyrst Sannleikurinn í þessu máli verður að koma í ljós og það fyrr en seinna. Sumardagurinn fyrsti er hátíðardagur skólans. Látum þann dag verða þann fyrsta í endurreisn skólans og staðarins alls. Garðyrkjufólk, sameinumst í baráttu skólanum til heilla. Lifið heil, Brandur Gíslason, skrúðgarðyrkjumeistari Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og L or em ipsum Stál og stansar stalogstansar.is 2012 2020 Varahlutir í kerrur Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR í flestar gerðir dráttarvéla Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300 Garðyrkjufélag Íslands (G.Í.) fagnar 136 ára afmæli á þessu ári og hefur því ákveðið að bjóða sama fjölda fólks kost á að gerast meðlimir með fríu árgjaldi fyrsta árið, í gegnum skemmtilegan leik á Facebook. Aðrir úr garðyrkju- samfélaginu gefa einnig vinninga og má þeirra á meðal finna yfir 100 plöntur, ásamt vorlaukum, súrkáli, gróðurpokum og bókum. Aðild að G.Í. felur meðal annars í sér afslátt hjá ýmsum verslunum og heimsent eintak af hinu veg- lega ársriti félagsins. Einnig njóta félagar aðgengis að klúbbum og deildum GÍ auk viðburða á borð við plöntuskiptadaga, garðagöngur og hópferðir innanlands sem utan. Garðyrkjusamfélagið er ekki síður á netinu en úti í náttúrunni og er því leikurinn framkvæmdur í samstarfi við tvo helstu Facebook hópa garðyrkju- og plöntuunnenda landsins: Ræktaðu garðinn þinn í umsjá Vilmundar Hansen og Stofublóm-inniblóm-pottablóm hópurinn í umsjá Hafsteins Hafliðasonar. Get ég virkilega valið á milli Teslu og Massey Ferguson? Nei, engin vélknúin farartæki eru meðal vinninga, en það er um að gera að taka þátt engu að síður. Í stuttu máli þarf bara að smella inn mynd af sér eða sínum í gróður-, garð- eða garðyrkjuumhverfi. Myndin má vera eldgömul, glæný eða allt þess á milli og rétt að taka fram að dýr teljast hér með í hópnum „sér eða sínum“. Það verður því vonandi gott úrval af bráðskemmtilegum og fallegum myndum sem hægt verður að dást að. Leikurinn stendur yfir til kl. 23.59 sunnudaginn 21. mars 2021 og í framhaldinu verða vinningshafar valdir á þrenna vegu: myndir sem flestir hafa líkað við, myndir sem dómnefnd metur sem fallegastar eða skemmtilegastar og svo verður einnig valið af handahófi. Vinningsmyndir gætu einnig átt von á að vera birtar í umfjöllun tímaritsins Sumarhúsið&Garðurinn síðar á árinu, svo það er til mikils að vinna og um að gera að taka þátt. Nánar um leikinn og alla þessa frábæru aðila sem leggja leiknum lið á https://www.gardurinn.is. Garðyrkjufélag Íslands: „Viltu vinna Garðyrkjufélag?“ Björgunarsveitin Brák starfar í Borgarnesi og nágrenni. Sveitin stendur nú í stórræðum en sl. sumar hófst bygging á nýju húsi fyrir starfsemi sveitarinnar að Fitjum 2 í Borgarnesi. Nýja húsið verður um 760 fermetrar að stærð, þar verður fundasalur, búningsaðstaða, búnaðargeymsla og tækjasalur. Auk þess verður þar skrifstofa sem hægt verður að nota sem aðstöðu fyrir aðgerðastjórn í stærri björgunaraðgerðum. Nú er Brák að hefja átak til að safna fé vegna húsbyggingarinnar því bygging björgunarmiðstöðvar er augljóslega stórvirki fyrir fámenna björgunarsveit, kostnaðaráætlun hljóðar upp á um 120 milljónir. Þeir sem vilja láta eitthvað af hendi rakna geta millifært á söfnunarreikning Brákar, 0326-22- 2220. kt. 570177-0369. Einnig má benda á að Brák hefur stofnað síðu á Facebook þar sem má fylgjast með ýmsu varðandi húsbygginguna og söfnunina, slóð á síðuna er https:// www.facebook.com/ fjaroflunBrak. Björgunarsveitir Landsbjargar og Brák þar með hafa notið góðs stuðnings landsmanna í gegnum tíðina og fyrir það skal þakkað. Brák leitar nú til velunnara sveitarinnar og með að styrkja byggingu þessa nýja og glæsilega húss. Núverandi hús í Brákarey sem keypt var með myndarlegum stuðningi fyrirtækja og einstaklinga var stórt framfaraskref fyrir Brák á sínum tíma en er orðið þröngt fyrir starfsemina. Einnig eru við það ókostir, sem dæmi má nefna staðsetninguna neðst í bænum og aðstöðuleysi á útisvæði. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um nauðsyn björgunarsveitanna hér á landi. Þær hafa marg-ítrekað sannað gildi sitt. Er þar bæði um að ræða beina aðkomu að leitar- og björgunarstörfum og stuðning við löggæslu og aðra starfsemi sem heldur innviðum landsins í lagi. Björgunarsveitin Brák stendur í stórræðum

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.