Morgunblaðið - 29.07.2021, Page 34

Morgunblaðið - 29.07.2021, Page 34
VESTMANNAEYJAR34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Von er á því að lundapysjutímabilið í Vestmannaeyjum muni hefjast strax eftir helgi en allar líkur eru á því að mikið af stórum og flottum pysjum, sem þarfnast björgunar, lendi í bæn- um á tímabilinu. Þetta staðfestir Gígja Ósk- arsdóttir sem hefur lengi komið að umsjón pysjueftirlitsins svokallaða en ferlið verður eingöngu rafrænt í ár líkt og í fyrra. Nú verður hins vegar í fyrsta skipti reynt að fækka þeim pysjum, með skipulögðum hætti, sem lenda á bryggjunni og eiga því meiri hættu á að verða olíublautar. Lífslíkur pysja sem lenda í höfninni og verða olíu- blautar eru því miður ekki miklar og þurfa þær því oftast hreinsun og umönnun í einhvern tíma. Verður þetta gert með því að minnka ljósmagn við höfnina og lýsa upp svæði ofar í bænum en birtan er það sem dregur pysjurnar inn í bæ- inn. Algjörlega áttavilltar „Það er talað um um það bil eitt prósent pysja sem kemur í bæinn og þær halda að ljósin frá bænum sé tunglið að endurspeglast í sjónum. Svo lenda þær og eru algjörlega áttavilltar,“ segir Gígja í samtali við Morgunblaðið og K100.is. „Þá komum við til sögunnar. Pysj- urnar lenda yfirleitt þegar það fer að dimma því þá sjá þær náttúrulega ljósin betur,“ segir Gígja. Segir hún að margt aðkomufólk leggi leið sína til Vestmannaeyja í lok sumars til að leita að og bjarga pysjum þó að margir séu aðkomu- mennirnir með tengsl við eyjarnar. „Þetta er rosa mikið einhverjir sem hafa tengingar við Eyjar. Við sjáum fullt af brottfluttum Eyja- mönnum koma og afkomendum þeirra en svo er fullt af fólki sem á enga tengingu,“ segir Gígja og bætir við að þegar erlendir ferðamenn voru sem mest á landinu hafi pysju- eftirlitið átt fullt í fangi með að fara í viðtöl hjá stórum erlendum frétta- miðlum um pysjutímabilið, svo sem BBC og ABC. Vasaljós og fullt af kössum „Fullorðnir verða aftur börn. Þeim finnst þetta alveg jafn skemmtilegt og börnunum,“ segir Gígja. Gígja segir mikilvægt fyrir þá sem ætli sér að leggja leið sína til Vestmannaeyja til að taka þátt í að bjarga pysjunum að hafa með sér rétta „búnaðinn“, sem þó er alls ekki flókinn. „Það er rosa gott að fara út með vasaljós og kassa og því fleiri kassar því betra. Það er langbest að vera með eina pysju í hverjum kassa. Það virkar náttúrulega ekki alltaf en við reynum að ganga út frá því,“ segir Gígja. „Svo virkar þetta bara þannig að þú keyrir eða labbar um bæinn og leitar og það þarf að leita vel af því að pysjurnar fela sig. Þær eru kannski bara á miðri götu þegar þær eru nýlentar en svo leita þær skjóls,“ segir Gígja og bætir við að það geti til dæmis verið gott að fara niður á bryggju og líta undir kör. „Þetta er ótrúlega gaman og það er alveg smá vertíðarfílingur yfir þessu,“ segir hún. Gígja staðfesti að margir væru spenntir yfir komandi pysjutímabili enda líti tímabilið vel út. Segir hún marga jafnframt hafa glaðst við að heyra að tímabilið væri að hefjast og að fólk hafi haft orð á því að það væri svo gaman að fá „loksins“ jákvæðar fréttir nú þegar svo mikið er um nei- kvæðar fréttir af heimsfaraldri. Býst Gígja við að tímabilið byrji rólega á næstu dögum en hápunktur tíma- bilsins verði um miðjan ágúst. Þar sem varpið virðist hafa gengið vel hjá lundanum í sumar og hann hefur náð að bera mikið af síli í pysj- una er von á því að tímabilið byrji svona snemma og að pysjurnar sem lendi í bænum verði vel á sig komnar og tilbúnar að lifa sjálfstæðu lífi á sjónum. „Þetta byrjar rólega í svona tvær vikur og svo kemur hápunkturinn og svo minnkar þetta aftur. Þetta eru svona fimm til sex vikur þannig að það má alveg ætla að ef þetta byrjar núna fljótlega eftir Þjóðhátíð, í byrj- un ágúst, þá verði hápunktuirnn um miðjan ágúst sirka,“ segir hún. „Það er búist við þungum og flott- um pysjum og í miklu magni. Við er- um að búast við mjög góðu pys- juári,“ segir Gígja. Rafrænt pysjueftirlit Pysjueftirlitið, sem fram til 2020 hefur séð um að telja og mæla pysj- ur sem almenningur bjargar og fer með til eftirlitsins, áður en þeim er sleppt út í sjó, mun, eins og áður kom fram, fara fram rafrænt eins og í fyrra vegna ástandsins í samfélag- inu. Mun almenningur þá geta skráð pysjurnar sjálfur inn í kerfi á vefsíð- unni lundi.is. Þar verður jafnframt hægt að skrá þyngd pysjanna og setja mynd með. „Svo verður tekið á móti slösuðum og olíublautum fuglum á Sea Life Trust,“ segir Gígja sem segist vona að aðgerðirnar varðandi birtuna í bænum muni verða til þess að minna verði um olíublauta fugla. „Fullorðnir verða aftur börn“ - Von er á því að hið skemmtilega lundapysjutímabil hefjist fljótlega eftir verslunarmannahelgina - Verður þetta í fyrsta sinn sem reynt verður að fækka olíublautum pysjum með skipulögðum hætti Frelsi Bæði fullorðnir og börn hafa gaman af pysjutímabilinu en margir að- komumenn leggja leið sína til Vestmannaeyja á haustin til að taka þátt. Pysjur Gígja hefur mikinn áhuga á fuglum og hefur komið að starfi pysjueftirlitsins í nokkur ár. Pysju- eftirlitið verður þó rafrænt í ár. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Vestmannaeyingar eru brattir og framtíð bæjarfélagsins virðist björt. Sem dæmi um þróunina á svæðinu nefnir Íris Róberts- dóttir bæjarstjóri uppbyggingu nýsköp- unar- og frumkvöðlastarfsemi á þriðju hæð Fiskiðjunnar, en sá „kostur“ fylgdi kór- ónuveirufaraldrinum að fleiri möguleikar opnuðust fyrir fjarvinnu og þar með tæki- færi fyrir fólk í sérhæfðum störfum til að setjast að í Vestmannaeyjum en vinna hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Veruleg uppbygging hefur líka verið í ferðaþjónustugeira bæjarins enda Vest- mannaeyjar spennandi staður til að heim- sækja. „Þá fengum við stóran styrk úr Lóu- sjóðnum sem er eyrnamerktur nýsköpun á landsbyggðinni og verður fjármagnið nýtt til að setja á laggirnar Sjávarlíftæknisetur Íslands í Vestmannaeyjum,“ segir Íris. „Einnig eru áform um landeldi á fiski vel á veg komin og góðar horfur í atvinnusköpun, og loks fengum við smá loðnuvertíð eftir tveggja ára loðnubrest sem var ágætisinn- spýting í hagkerfi Vestmannaeyja.“ Voru langt komin með undirbúning Þjóðhátíðar Íris segir að það hafi vissulega verið mik- il vonbrigði fyrir heimamenn að Þjóðhátíð verður ekki haldin um veslunarmannahelg- ina annað árið í röð. Fyrsta bylgja kór- ónuveirufaraldursins barst til Eyja en bæj- arbúum tókst fljótt að ná góðum tökum á smitvörnum. „Það komu upp smit um dag- inn, hjá fólki sem var þegar í sóttkví, og þar áður hafði ekki greinst smit í Vest- mannaeyjum síðan í september eða október á síðasta ári. En auðvitað kemur þetta upp hér eins og um allt land,“ segir Íris. Tilhlökkunin í bænum var mikil enda Þjóhátíð hápunktur ársins. Segir Íris að ef Horfurnar góðar fyrir atvinnulíf og samfélag Ljósmynd/ Ásta Kristjánsdóttir Metnaður Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir ýmis verkefni fram undan í Vestmannaeyjum. - Mikil uppbygging er fram undan í Vestmannaeyjum og sýndi nýleg könnun að hvergi á landinu er fólk ánægðara með búsetuskilyrði sín Ljósmynd/Sea Life Trust Bros Af nýlegum íbúum í Vestmannaeyjum má nefna mjaldrana sætu sem búa í Klettsvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.