Morgunblaðið - 29.07.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 29.07.2021, Síða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2021 VIÐTAL Hólmfríður Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Það eru þrjár leiðir til þess að skrifa sögu. Það er að skrifa í gegnum eigin reynslu, skrifa í gegnum reynslu annarra og að lokum er það hreinn skáldskapur. Þessi bók er blanda af öllu þrennu,“ segir Kristján Hreins- son, skáld og rithöfundur, um bókina sína Lökin í golunni sem kom út fyrr í sumar. Bókin er ellefta skáldsagan sem hefur verið gefin út eftir Krist- ján en hún segir örlagasögu tveggja systra sem verða viðskila við föður sinn þegar móðir þeirra deyr. Að- spurður segist höfundur meðal ann- ars vilja vekja athygli á umsjá fóstur- barna á sínum tíma en þegar kemur að þeim efnum sem lúta að meðferð barna segir hann pottinn enn víða brotinn. „Ég hef í gegnum tíðina margoft lesið um slæma meðferð á börnum sem hafa verið tekin í fóstur og þekki marga sem hafa komið illa út úr þessu. Í seinni tíð hef ég einnig frétt af slæmri meðferð barna sem voru send í svona vist þannig að ég vildi vekja athygli á þessu núna og ýta við því að þessi bók yrði gefin út.“ Boðskapur í brennidepli Ytri tími sögunnar eru stríðsárin á Íslandi og byggir rithöfundur bókina að hluta til á frásögnum sem hann hefur sankað að sér, þar með talið frá nánustu fjölskyldu. Engu að síður vill Kristján ekki að litið sé á bókina sem sannsögulega frásögn heldur sé þetta fyrst og fremst skáldskapur sem á sér stoðir í raunveruleikanum. Vekur hann þá athygli á að oft sé hægt að nota skáldskap til að sýna sannleikann. „Ég vildi hafa þetta skáldskap, ég vildi ekki hafa þetta of nærri mér þannig að ég myndi sjá þetta sem fjölskyldusögu. Engu að síður þá eru nokkrar sterkar stoðir sem eru sótt- ar í veruleikann og fjölskyldu mína. Það eru ákveðin kennileiti sem hægt er að koma auga á en þetta er fyrst og fremst skáldskapur reistur á örfá- um punktum sem að ég hef úr minn- ingunni.“ Kristján segir skáldskapinn blöndu af einhvers konar raunsæi og því að vilja koma ákveðnum boðskap á framfæri, notar höfundur verk sín bæði til að benda á réttlæti og rang- læti. Er það svo í höndum hvers og eins lesanda að túlka efnið sem hefur verið lagt fram. „Það lesa engir ein- staklingar sögu með sama hætti en maður vonar að sem flestir nái þeim kjarna sem maður leggur upp með og þá er gott að hafa í brennidepli einhvers konar boðskap, þema eða kjarna sem maður reiknar með að allir geti komið auga á.“ Kyngervi ekki hindrun við skrif Að sögn Kristjáns fer bókin með lesendur í gegnum ferli þar sem þeir fá að kynnast tveimur systrum sem opinbera sig í gegnum áföll. Spurður hvort það hafi nokkurn tímann verið upp á teningnum að skrifa út frá sjónarhóli karla segir Kristján það alveg hafa getað orðið. Kveður rit- höfundurinn þó mikilvægt að bókin sé skrifuð út frá sjónarhóli kvenna frekar en karla. Segir hann ákveðna dýpt felast í því en í hans huga eru tengsl systra sterkari en tengsl bræðra. Auk þess telur hann margt fólgið í reynslu stúlkna sem eru sendar í sveit sem ekki er hluti af reynsluheimi karla. Réðst þessi ákvörðun einnig út frá persónu- legum forsendum og tekur hann fram að hugmyndin hafi aldrei verið sú að skapa samhúðarhjúp meðal kvennanna. Spurður hvort hann hafi upplifað það sem áskorun að skrifa út frá sjónarhóli tveggja systra segir Krist- ján höfundum allir vegir færir svo lengi sem þeir séu tilbúnir að setja sig í stellingar og vanda sig. „Ég er alveg í stakk búinn að skrifa út frá sjónarhóli kvenmanna eða hvers sem er. Ég hef skrifað út frá sjónarhóli kattar. Maður þarf bara að lesa sig til, umskrifa og jafnvel fá leiðbein- ingar frá vinum og vandamönnum. Ég sé þetta aldrei sem einhvers kon- ar hindrun að ég skrifi út frá konu eða karli.“ Bætir Kristján þá við að hug- myndir um kyn og kyngervi séu margslungnar og ekki verði hent reiður á þeim í fljótu bragði. „Ég get alveg þess vegna haldið því fram að á jörðinni séu núna sjö milljarðar kynja vegna þess að þetta er miklu meira róf heldur en bara kona og karl. Hitt er aftur á móti annað mál að í dag virðist fólk gera tungumálið ábyrgt fyrir ansi mörgu sem ekki er hægt að gera tungumálið ábyrgt fyrir. Kyn í tungumáli er í raun eitthvað allt annað en kyn í kyn- hegðun eða kynjamynstri eða hvað við viljum kalla þetta.“ Telur Kristján jafnframt mikil- vægt að hafa í huga að dæma ekki söguna út frá stöðlum samtímans. Samskipti kynjanna í fortíðinni og mótun tungumálsins hafi þróast út frá ákveðnum forsendum sem ekki séu til staðar í dag. Telur hann ólík- legt að feðraveldinu hafi verið komið á fót viljandi til þess að undiroka konur. Þykir honum trúlegri skýring að völd karla í sögunni hafi verið neyðarbrauð sem gripið hefði verið til þegar forfeður okkar voru að berj- ast fyrir lífsviðurværi á erfiðum tím- um. Skipulag við skriftir lykilatriði Líkt og fyrr segir varð Lökin í gol- unni ellefta útgefna skáldsaga Krist- jáns í sumar en hún er þó ekki ný af nálinni. Að sögn Kristjáns var bókin næstum fullklár til útgáfu fyrir tæp- um tíu árum. Hafði hann velt því fyr- ir sér að gefa hana út áður, en aldrei látið af því verða fyrr en nú. Að- spurður segir hann tímasetninguna að hluta til hanga saman við umræðu sem hann hefur orðið var við í seinni tíð um slæma meðferð barna sem voru send í vist. Vildi hann leggja hönd á plóg við að vekja athygli á þessu málefni sem varð til þess að hann ýtti fyrst nú á eftir útgáfu bók- arinnar. Ekki leið á löngu eftir að Kristján sendi verkið á útgáfufélagið Nýhöfn þar til símtal barst honum. „Hann var varla kominn á síðustu blaðsíðu þegar hann hringdi og sagð- ist vilja gefa hana út,“ segir Kristján. Þrátt fyrir að hafa beðið með að gefa út verkið í tæpan áratug hefur bókin þó ekki legið rykfallin inni á skrifstofu rithöfundar heldur hefur hún gegnt því mikilvæga hlutverki síðustu ár að vera skólabókardæmi í ritlistaráfanga um hvernig megi skrifa og byggja upp skáldsögu. Beitir Kristján sjálfur miklu skipu- lagi við skrif sín og þótti honum þessi bók einstaklega vel upplögð til að kenna í áfanganum sínum. „Ég var með klárt skipulag, setti hana upp í stikkorðaformi og bjó síðan til kafla- heiti, setti alls konar orðalista inn í kaflana og gerði það með gríðarlega miklu skipulagi. Þetta varð til þess að ég fór að kenna hana. Í átta ár hef- ur hún verið kennsluefni án þess að hún hafi verið lesin af nemendum.“ Orti tvær barnabækur í vikunni Spurður hvort hann beiti svipaðri formfestu við gerð allra verka sinna segir Kristján svo vera. Kveðst hann setja niður orðalista með hverjum kafla. Er vinnan við bækurnar bæði markviss og ómarkviss og er þetta oft og tíðum einungis spurning um að koma skipulag á óreiðuna. „Stundum er maður með hundrað síðna sögu í höfðinu og maður veit svona innst inni nokkurn veginn allt sem gerist, maður er bara ekki búinn að komast að því nákvæmlega í hvaða röð. Maður veit plottið, kjarna málsins og hver niðurstaðan er en maður er ekki búinn að sjá hvert þráðurinn liggur og þá byrjar maður á að koma skipulagi á orðræðuna.“ Líkir hann bókarskrifum við golf- leik þar sem markmiðið snýst fyrst og fremst um að byrja og taka í fram- haldinu næstu skref út frá því. „Þú ákveður að kúlan eigi að fara frá ein- um stað yfir í annan og síðan er bara að slá fyrsta höggið og reyna að vanda sig.“ Kveðst Kristján jafnframt standa í þeirri trú um að ritstífla sé blekking sem eigi sér ekki stoð í raunveruleik- anum, heldur sé hún eingöngu til í heimi kvikmyndanna og birtist okkur þegar A4-blað er sett saman í kúlu og kastað ofan í ruslakörfu. Segir hann ritstífluna einungis verða að veru- leika þegar við teljum okkur trú um að hún sé til staðar. Segir hann form- festuna og skipulagið við skriftir koma honum hjá þessu vandamáli. Hefur þetta kerfi reynst Kristjáni vel en hann hefur nú verið einkar duglegur að yrkja og koma hug- myndum sínum niður á blað. Kveðst hann vera með lager af efni á tölv- unni sinni. Á hann hátt í 20 ljóðabæk- ur óútgefnar og sex skáldsögur ásamt fjöldanum öllum af smásögum. Tekur hann fram að einungis í þess- ari viku hafi hann ort tvær barna- bækur. Meðfram skrifum vinnur hann nú meðal annars við að ritstýra bók og segist hann alltaf vera með verkefni milli handanna. Ekki er því mikið um auðar stundir en líkt og Kristján bendir á er skáld og rithöf- undur alltaf í vinnunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skáldsaga Kristján Hreinsson, skáld og rithöfundur, segir ritstíflu tilbúning kvikmyndanna og telur hann rithöf- undum alla vegi færa svo lengi sem þeir vandi vel til verka og skipuleggi sig laglega frá upphafi til enda. Skáldskapur sem sýnir sannleikann - Rithöfundurinn og skáldið Kristján Hreinsson gefur út sína elleftu skáldsögu Lökin í golunni - Fléttar saman skáldskap og persónulegum frásögnum til að vekja athygli á slæmri meðferð barna vfs.is SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is EIN RAFHLAÐA + öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.