Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Blaðsíða 46
44
sem vel mætti nota í fræblöndur, og þá einkum þar sem um mýrarjarðveg
er að ræða. F.nskur hvítsmári óx lítið fyrstu árin, og var aðallega hásveif-
gras í reitunum, en það hvarf fyrir língrösum, vingli og vallarsveifgrasi.
Smári þessi var þó ávallt 25—30% af uppskerunni og hélt vel velli.
Tafla XXXV. Samanburður fimm grastegunda Í934—194f.
(Uppskera hey hkg/ha).
1. 2. 4. 4. 5.
Háliðagras Túnving. Vallarsveifgr. Snarrót Hávingull
Ár A.pratensis F.rubra P.prat. D.caespit. F.prat.
1934 .............. 66.1 82.2 79.3 71.1 86.4
1935 .............. 59.7 67.3 62.8 66.7 81.0
1936 .............. 90.9 79.1 71.2 79.3 83.1
1937 .............. 52.3 45.6 56.4 54.1 51.8
1938 .............. 74.5 58.5 64.5 66.8 86.9
1939 .............. 60.3 47.3 46.1 42.8 54.0
1940 .............. 53.7 61.3 60.2 51.4 53.1
1941 .............. 58.6 51.8 55.2 56.8 49.4
Meðaltal 8 ára . . 64.5 61.6 62.0 61.1 68.2
Hlutföll ............ 100 95 96 94 105
í töflu XXXV er greint frá átta ára uppskeru fimm grastegunda af
íslenzk-rœktuðu frcei frá Sámsstöðum.. Allar tegundirnar voru alráðandi
í grassverðinum, en á sjötta ári fór að bera á nokkurri íblöndun í nr. 2—5,
en nr. 1, háliðagras, var alveg ráðandi öll árin.
Eftir átta ára ræktun var tilrauninni hætt vegna íblöndunar annars
gróðurs. Hins vegar sýnir tilraun þessi, að vel má nota íslenzkt fræ þess-
ara tegunda til túnræktar, og einnig, að hávingull, sem yfirleitt hefur ekki
verið talin þolin grastegund, gefur að meðaltali 5% nreira hey en lráliða-
gras, en nr. 2—4 mun minni uppskeru. Annars er munurinn á þessum
fimm grastegundum ekki stórvægilegur. Uppskeran varð ekki sérstaklega
mikil síðustu fimm árin, en það stafar af of litlum áburði, því að þá var
aðeins borið 356 kg kalknitrophoska á ha.
Á árunum 1931 — 1938 voru gerðar fjórar tilraunir með samanburð á
stofnum af innlendum og erlendum grastegundum. Sáð var í þessar til-
raunir 1,—12. júní 1930, og án skjólsáðs.
í töflu XXXVI er að finna samanburð á innlendu og erlendu fræi af
háliðagrasi.