Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Page 85
83
Tafla LXXIX. Tilrann með Jifrarmjöl og hvafmjöl 1935—1937.
(Uppskera hey hkg/ha).
a. b. c. d.
300 kg 300 kg sup. 237 kgsup. 873.6 kg
Ar superfosfat 350 kg kalks. 657.6 lifrarm. hvalmjöl
1935 .................... 9576 118.0 983) 90.0
1936 .................... 96.7 113.9 99.6 100.1
1937 .................... 60.3 88.4 70.9 85.2
Meðaltal ................. 84.3 106.8 89.5 91.8
Hlutföll ................... 100 127 106 108
Grunnáburður á alla liðina var 200 kg af kalí.
notkun tilbúins áburðar. Kemur hér einkum til, að bera þarf á bæði kalí
og nokkuð af fosfóráburði með mjöltegundunum, svo að þær séu full-
gildar til áburðar (þ. e. fosfór með síldarmjöli og lifrarmjöli). Köfnunar-
efnisinnihald þeirra er mun lægra en í kalksaltpétri, og þarf því að bera
allt að helmingi meira á af rnjöli en af saltpétri, til þess að ná sama áburð-
armagni. Af þessu leiðir það, að verð þess áburðar, sem þarf að bera á í
innlendu síldar- og fiskimjöli, verður 70—80% dýrara en verzlunaráburð-
ur, miðað við þann tíma, sem tilraunirnar voru gerðar á. Eftir núgildandi
verðlagi. verður áburðarkostnaður i tilraunum rneð sildar- og fiskimjöl i
b-lið (útlendur áburður) um kr. 970, en i c-lið (þ. e. sildarmjöl) kr. 2076.
Sé notagildi köfnunarefnisins í síldarmjöli borið saman við sama efnis-
magn í kalksaltpétri og það sett sem 100, verður N-notagildið í síldar-
mjöli 80 en í fiskimjöli 82.
Tilraunin með lifrarmjöl og hvalmjöl var gerð með sömu aðferð. Var
borið á eftir N-innihaldi beggja mjtiltegunda, og jafn mikið og borið var
á af N í saltpétri. Tafla LXXIX sýnir árangurinn, og er hann sýnu óhag-
stæðari fyrir mjöltegundirnar, samanborið við útlendan áburð. Lifrar-
mjöl og hvalmjöl verður því of dýr áburður við töðuframleiðslu.
Árið 1938 var borið sem svaraði 300 kg nitrophoska á ha á alla liði
beggja mjöltilrauna, og sýndu mjölreitirnir engan teljandi vaxtarauka
fram yfir þá liði, sem borinn var á áður tilbúinn áburður.
Má því telja, að enginn fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir notkun
þessara mjöltegunda til túnræktar, ef annar áburður er fáanlegur, en hins
vegar sýna tilraunirnar greinilega, að allar mjöltegundir má nota sem
áburð og fá með notkun þeirra viðnnandi uppskeru af túnum.
6*