Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Blaðsíða 100
98
rúmlega tvöfalda uppskeru á við a-lið, enga hirðingu. Tröllamjöl, 250
kg, c-liður, dreift 18. maí, eða strax eftir setningu kartaflanna, reynist verr
en 250 kg tröllamjöl, dreift 17. júní eða rétt áður en grösin komu upp.
Þess má geta, að þar sem borið var á tröllamjöl 18. maí, varð lítil
vinna, sem fór í hirðingu og næstum engin þar sem tröllamjöli var dreift
rétt áður en grös komu upp. Virðist því mega dlykta, að bezt sé til út-
rýmingar arfanum, að dreifa tröllamjöli d döggvotan arfann rétt dður
en vœnta md að kartöflugrös fari að koma upp úr moldinni.
Þriðja tilraunin 1943 er með tvo dreifingartíma á tröllamjöli, 250 kg
og var dreift 26. maí og 6. júní. Sýnir tröllamjölið meiri verkanir við
síðari dreifinguna, sem er nær uppkomutíma kartöflugrasanna, en aukið
tröllamjöl, 400 kg, borið á 26. maí, gefur heldur minni uppskeru en síð-
ari dreifingartími á 250 kg af tröllamjöli. í öllum tröllamjölsliðum til-
raunarinnar var hirðingin með handverkfærum hverfandi lítil, og hrein-
ust jörð hvað arfa snerti við upptöku um haustið.
Tilraunin 1944 er með sömu viðfangsefni og tilraunin 1943. Þar varð
árangurinn í uppskeru ekki eins reglubundinn. Hins vegar hefur orðið
vaxtarauki fyrir tröllamjölið, sem stafar af betri hirðu en við venjulega
hirðingu og svo köfnunarefnisverkanir, enda var sama og enginn arfi í
þeim reitum, sem tröllamjölið fengu.
Það, sem þessar fjórar tilraunir sýna í aðaldráttum, felst í eftirfarandi:
1. Venjuleg hreinsun með illgresisherfi, raðhreinsara og arfasköfu
hefur reynzt nœgileg til pess að halda arfaríku landi pað vel hreinu fram
eftir sumri, að lítið tefji vöxt kartaflnanna, en oft vill verða svo, þó að'
garðarnir séu vel hirtir fyrra hluta sumars, pd sækir í þd arfi, þegar líður
á sumarið, einkum ef kartöflugrasið fellur, t. d. vegna frosta upp úr
miðjum ágúst.
2. Með notkun tröllamjöls md draga mjög úr vinnu við hirðingu. Ef
purrviðrasamt er í júní, eru 250 kg nægilegt magn af tröllamjöli á ha, en
ef tið er rakviðrasöm, þá þarf allt að 400 kg á ha. —- Hagkvœmasti dreif-
ingartimi tröllamjölsins er 2—3 vikum eftir setningu kartaflnanna, og
bezt er að dreifa pvi d döggvota jörð, þegar sól kemur d eftir. Verða pd
beztar verkanir tröllamjölsins við arfaeyðingu, pvi að tröllamjölið eyði-
leggur arfablöðin, pegar sólin skin d þau eftir dreifingu mjölsins.
3. Þar sem tröllamjölið er köfnunarefnisáburður, verður að gæta hófs
með annan köfnunarefnisáburð, par sem tröllamjöl er notað til arfa-
eyðingar.
4. Með réttri notkun tröllamjöls verður hirðingin auðveldari, og
garðarnir verða arfaminni við upptöku en ella. Gera má rdð fyrir, að N