Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Síða 103
101
Tafla XCV. Tilraun með moldspírun og venjulega spírun kartaflna.
(Uppskera hkg/ha).
Meðal- Hlut-
1919 mo 1941 uppskera föll
Venjulega spíraðar kartöflur . .. . 229.9 87.8 230.6 182.8 100
Moldspíraðar kartöflur . 284.3 132.7 247.2 221.4 121
Teknar upp . 3/8 9/8 12/8 8/8
Árangurinn kemur fram í töflunni, og sýnir hann, að moldspírunin
hefur að meðaltali í þrjú ár gefið vaxtarauka 38.6 tn af ha, eða 21%
vaxtarauka. En hér er þó ekki allt sagt, því að á þeim tíma, sem upp-
takan fór fram, voru kartöflurnar frá moldspíruðu reitunum allt að því
20% stærri og smælkið minna en eftir venjulega spírun, og einnig voru
moldspíruðu kartöflurnar dálítið sterkjuríkari.
Tilraunin mælir með því, að moldspírunin geti verið hagkvæm til
þess að fá matarkartöflur snemma af góðri stærð. Hins vegar er mold-
spírun nokkuð fyrirhafnarsöm, en getur vel svarað kostnaði, til þess að
fá kartöflur snemma sumars, síðast í júlí eða fyrst í ágúst.
6. Tilraunir með sáðdýpi á kartöflum.
Gerðar hafa verið þrjár tilraunir með sáðdýpi á kartöflum á Sáms-
stöðum, og hafa þær allar verið gerðar á þriggja ára forræktuðu móalandi
í vel tilreiddum jarðvegi. Utsæðisstærð var um 50 g, og kartöflurnar settar
niður 20,—24. maí, en teknar upp 2.-6. september.
Tafla XCVI. Tilraun nieð sáðdýpi á kartöflum (Gullauga).
(Uppskera hkg/ha).
Grunnsetning
þykkt kartöflu 7 cm sáðdýpi 9 cm sáðdýpi 12 cm sáðdýpi
Ár Söluh. Alls Söluh. Alls Söluh. Alls Söluh. Alls
1938 ........ 128.0 164.7 158.0 172.7 153.4 166.7
1939 ........ 303.7 324.2 286.1 301.1 315.6 329.5 264.0 284.0
1941 .......... 161.1 187.5 166.7 202.8 181.9 220.8 161.1 187.5
Meðaltal .... 197.6 225.5 203.6 225.5 214.0 239.0 212.6 235.8
Hlutföll ...... 100 100 106 105