Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.04.1953, Blaðsíða 107
105
8. Afbrigðatilraunir með kartöflur 1938—'50.
Síðan árið 1938 hafa verið gerðar allvíðtækar tilraunir með saman-
burð á kartöfluafbrigðum víðs vegar að. Aðallega hafa þau verið flutt
inn frá nágrannalöndum okkar: Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Englandi
og Hollandi, en svonefndar innlendar tegundir lítið verið reyndar. Gul-
ar Akraneskartöflur og Bleikrauðar íslenzkar hafa verið reyndar, einkum
á árunum 1932—1940, en þær reyndust að ýmsu leyti lakari til ræktunar
en beztu afbrigðin, sem fengust erlendis frá, og var því tilraunum hætt
með þær. í köldum árum og meðalárum varð smælkismagn íslenzku af-
brigðanna miklum mun meira en þeirra erlendu. Einnig varð uppskera
þeirra af söluliæfum kartöflum minni, og næmi þeirra fyrir myglu meira
en margra erlendra afbrigða.
Verður ekki frekar gerð grein fyrir íslenzku afbrigðunum og heldur
ekki mörgum afbrigðum erlendis frá, sem reynd lrafa verið skamman
tíma, heldur er þar aðeins greint frá árangri þeirra kartöfluafbrigða, sem
hafa reynzt það góð, að rétt hefur virzt að halda áfram samanburði á
þeim um nokkur ár. í þeim töflum, sem hér fara á eftir, er uppskeran
greind svo: I fyrsta lagi söluhæfar kartöflur. Eru þar innifaldar stórar,
og söluhæfar miðlungskartöflur. í öðru lagi uppskera alls, og er þar upp-
skeran öll í einu lagi, þ. e. söluhæfar og smáar.
í töflu XCIX er árangur fjögurra ára tilrauna með sjö kartöfluaf-
brigði, og er eitt árið, 1940, slæmt kartöfluár. Hin árin þrjú eru góð og
ágæt fyrir allan jarðargróður.
Gullauga hefur gefið langbeztu uppskeru í þessum tilraunum, enda
voru engir sjúkdómar, er ásóttu þetta afbrigði þessi fjögur ár að öðru
en því, að vart varð stöngulveiki, en þó mjög lítið. Duke of York gefur
minnsta uppskeru, og stafar það nokkuð af því„ að allmikið varð vart
við tiglaveiki á blöðum, og liefur það vafalaust rýrt uppskerumagnið.
Up to Date, sem er allgóð matarkartafla, var aðeins reynd í þrjú ár, og
er því samanburðurinn ekki öruggur. Gefur liann öll þrjú árin nokkuð
góða uppskeru, þó að út af því bregði árið 1940. Tidlig Rosen, sem er
snemmvaxin kartafla, er ekki sambærileg við Gullauga, hvorki að upp-
skeru eða matargæðum, því að hér reynist hún léleg matarkartafla og
gefur mun minni uppskeru en ýmsar aðrar tegundir. Akurblessun er
seinvaxin kartafla, sem getur gefið ágceta uppskeru í hlýjum og góðum
sumrum,, en hins vegar litla í köldum árum. Hún er allgóð matarkartafla
og var hraust í tilraununum. King Edward hefur reynzt allvel í tilraun-
um, þótt hún gefi ekki eins rnikla uppskeru og Gullauga. Hér hefur þetta