Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
FRÉTTIR
Ræktunarbú Birnu Tryggvadóttur
og Agnars Þórs Magnússonar,
Garðshorn á Þelamörk, var valið
ræktunarbú ársins 2021 á ráð
stefnunni Hrossarækt 2021 sem
fór fram á sunnudag.
Ræktun þeirra Birnu og Agnars
hefur verið tilnefnt til verðlaunanna
nær árlega síðan 2014, þegar þau
hlutu þennan sama titil.
Þau eru sammála um að góðar
ræktunarhryssur væri grunnurinn að
vel heppnaðri hrossarækt. En margt
fleira spilar þó inn í. „Viljinn til að
gera vel, gott atlæti hrossanna, sjálfs-
gagnrýni, reynsla, þekking og vinnu-
semi þeirra sem eiga í hlut, þ.e.a.s.
okkar og þeirra sem hafa starfað með
okkur,“ segja þau.
„ Auk þess spilar ákveðin tilviljun
og heppni inn í því við veljum
ekki kaupendur af okkar hrossum
heldur velja kaupendur hrossin.
Það er því algjör tilviljun og heppni
sem felst í því að hitta inn á góða
kaupendur sem ná góðum árangri á
hrossunum. Ekkert útpælt excel skjal
heldur samspil margra liða, dass af
skemmtilegri tilviljun og heppni sem
leiðir til þessarar góðu niðurstöðu,“
bætir Birna við.
Sjö hross úr ræktun þeirra voru
sýnd í kynbótadómum á árinu.
Meðalaldur þeirra er fimm ár.
Þrjú fjögurra vetra hross voru
sýnd frá búinu og hlutu þau öll fyrstu
einkunn, þau Ómar, Aðalheiður og
Afródíta. Sú síðastnefnda hlaut þar
hæstu einkunn fjögurra vetra hryssna
á landsvísu, 8,33 en endurreiknuð
aðaleinkunn án skeiðs er 8,36.
Afródíta er undan tveimur hrossum
frá búinu, en móðir hennar er
stofnræktunarhryssan Elding frá
Lambanesi og faðirinn Grímur frá
Garðshorni á Þelamörk.
Stóðhesturinn Glundroði var hæst
dæmdi hestur búsins á árinu, hlaut
8,50 í aðaleinkunn. Hann er undan
Ágústu frá Garðshorni á Þelamörk
og Konsert frá Hofi.
Stóðhesturinn Kastor hlaut hæstu
einkunn fyrir kosti, 8,62 þar af hlaut
hann einkunnina 10 fyrir skeið í
báðum kynbótasýningunum sem
hann tók þátt í.
„Við höfum verið heppin að seld
hross lenda í góðum höndum. Í ár
voru tveir stóðhestar sem við höfðum
selt sýndir og hlutu báðir um 8,50 í
aðaleinkunn hjá nýjum eigendum,“
segir Birna.
Meðaltal aðaleinkunna fimm
efstu hrossa úr búinu er 8,36
en uppreiknuð aldursleiðrétt
aðaleinkunn mun vera 8,51.
Fjórtán bú tilnefnd
Fagráð í hrossarækt tilnefndi
eftirfarandi bú til þessarar
h e i ð u r s v i ð u r k e n n i n g a r
Bændasamtaka Íslands, auk
sigurvegaranna: Austurás, Efri-Fitjar,
Efsta-Sel, Fákshólar, Flugumýri,
Hemlu II, Hjarðartún, Ketilsstaðir/
Syðri-Gegnishóla, Prestsbæ,
Ragnheiðarstaði, Sauðanes,
Skipaskaga og Stuðla. /ghp
Garðshorn á Þelamörk er ræktunarbú ársins:
Dass af skemmtilegri
tilviljun og heppni
Nafn Aldur Sköpulag Kostir Aðaleinkunn Faðir Móðir
Kastor 7 8,22 8,62 8,48 Kiljan frá Steinnesi Vissa frá Lambanesi
Glundroði 6 8,49 8,50 8,50 Konsert frá Hofi Ágústa frá Garðshorni á Þelamörk
Ómar 4 8,21 8,24 8,23 Jarl frá Höskuldsstöðum Vissa frá Lambanesi
Afródíta 4 8,43 8,27 8,33 Erill frá Einhamri 2 Elding frá Lambanesi
Aðalheiður 4 8,3 8,21 8,24 Organisti frá Horni Hremmsa frá Akureyri
Meðaltal 5 8,33 8,37 8,36 Grímur Elding frá Lambanesi
Ölnir frá Akranesi Garún frá Garðshorni á Þelamörk
Þetta er í annað sinn sem Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir hljóta verðlaunin ræktunarbú ársins.
Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir.
Birna sýnir hér Afródítu frá Garðshorni á Þelamörk. Mynd /Kolbrún Grétarsdóttir.
Afkvæmahross verðlaunuð
Á ráðstefnunni voru eigendur
afkvæmahesta verðlaunaðir.
Sjóður frá Kirkjubæ hlaut
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.
Sjóður er 14 vetra gamall, undan
Sæ frá Bakkakoti og Þyrnirós
frá Kirkjubæ. Kynbótamat Sjóðs
er 122 stig í aðaleinkunn kynbóta-
mats og á hann 50 sýnd afkvæmi,
hæst dæmdur er Kveikur frá
Stangarlæk.
Hringur frá Gunnarsstöðum og
Hreyfill frá Vorsabæ hlutu fyrstu
verðlaun fyrir afkvæmi. Hringur
er með 115 stig í kynbótamati og
á 19 sýnd afkvæmi. Aðaleinkunn
kynbótamats Hreyfils er 114 og
hafa 21 afkvæmi hans verið sýnd.
Átta hryssur hlutu heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi í ár, en til að
hljóta verðlaunin þarf hryssa að eiga
að lágmarki fimm dæmd afkvæmi
og vera með 116 stig eða hærra í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn.
Hæsta kynbótamatið og handhafi
Glettubikarsins í ár er Ösp frá
Hólum. Hún er fædd árið 2000
undan Markúsi frá Langholtsparti
og Þokkabót frá Hólum. Hún á
sex dæmd afkvæmi. Auk Aspar
hlutu Nótt frá Oddsstöðum I, Sefja
frá Úlfljótsvatni, Sunna-Rós frá
Úlfljótsvatni, Hrísla frá Sauðárkróki,
Rán frá Þorkelshóli 2, Framtíð frá
Ketilsstöðum og Sædís frá Stóra-
Sandfelli 2 heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi.
Hringur frá Gunnarsstöðum.
Góð þátttaka í Matsjánni
Góð þátttaka verður í Matsjánni, verk
efni á vegum Samtaka smáframleið
enda matvæla (SSFM) og landshluta
samtaka sveitarfélaga um allt land.
Alls hafa 84 smáframleiðendur mat
væla skráð sig til þátttöku í verkefn
inu, sem telst tæplega helmingur allra
skráðra félaga í SSFM, en markmið
þess er að efla hæfni þeirra á ýmsum
sviðum.
Verkefnið hlaut rúmlega fimm
milljóna króna styrk í síðustu
úthlutun Matvælasjóðs. Það hefst
formlega í byrjun næsta árs og stend-
ur í 14 vikur.
Margvísleg ráðgjöf og fræðsla
með fjarfundum
Fá þátttakendur ráðgjöf og fræðslu
í gegnum fjarfundarfyrirkomulag
í þeim tilgangi að efla leiðtoga-
færni sína, öðlast aukna getu til
að þróa vörur og þjónustu og efla
tengslanetið sitt í greininni.
Matsjáin er byggð upp að fyrir-
mynd Ratsjárinnar, sem er verkefni
fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu
og er þróað og stjórnað af Íslenska
ferðaklasanum. /smh
Bændahöllin, Hótel Saga, við Hagatorg í Reykjavík. Mynd / HKr.
Fjárlagafrumvarpið 2020:
Fjármálaráðherra vill skoða
kaup á Hótel Sögu
Í frumvarpi fjármálaráðherra til
fjárlaga fyrir árið 2020 er lagt til
að skoða möguleikann á að ganga
til samnings um kaup á Hótel Sögu.
Húsnæðið er sagt geta hentað til að
koma starfsemi Menntavísindasviðs
Háskóla Íslands fyrir á háskóla
svæðinu en sú deild er nú staðsett
í Stakkahlíð og Skipholti.
Þar segir einnig að forsenda fyrir
því að til álita kæmi að ganga til
kaupa á Hótel Sögu er að eignin bjóð-
ist á hagstæðum kjörum. Kostnaður
við kaupin er talinn vera um fimm
milljarðar króna.
Gunnar Þorgeirsson, formað-
ur Bændasamtaka Íslands, segir að
Bændasamtök Íslands og ríkisvaldið
hafi átt í viðræðum um hugsanleg
kaup ríkisins á Hótel Sögu undir
starfsemi Háskóla Íslands undan-
farnar vikur.
„Eins og kemur fram í frumvarp-
inu er gerður fyrirvari um að kaupin
verði á ásættanlegu verði fyrir ríkið
og viðræður í gangi um það og hvað
sé verið að kaupa. Við eru að skil-
greina hvaða lausamunir muni fylgja
húsinu og það hefur tekið tíma fyrir
Háskólann að gera það upp við sig
hvað þeir vilja fá.
Að öllum líkindum mun
Félagsstofnun stúdenta fá hluta
hússins til umráða og Háskólinn
restina og ekki enn ljóst hvað þess-
ir aðilar vilja hafa í húsinu við
afhendingu.
Ég ítreka að kaupin eru enn á
umræðustigi og ekki komin á blað
enn.“ Gunnar segir að Bændasamtökin
hafi leitast eftir að vera í húsinu í að
minnsta kosti ár gangi kaupin eftir og
hefur Háskólinn tekið vel í það. /VH