Bændablaðið - 02.12.2021, Side 18

Bændablaðið - 02.12.2021, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 LANDSJÁ Ríkisstjórnar- og ráðherraskipti boða alltaf nýtt upphaf þótt margt fari öðruvísi en ætlað er áður en varir. Ný pólitísk forysta tekur við málaflokki landbúnaðarins í öðru ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Lyklaskipti voru í ráðuneytinu við Skúlagötu á mánudaginn, þar sem Svandís Svavarsdóttir tók við lyklavöldum af Kristjáni Þór Júlíussyni. Hún er þekkt fyrir að vera atkvæðamikil sem ráðherra. Ítarleg aðgerðaáætlun Það er fagnaðarefni hversu ítarleg aðgerðaráætlun fylgir stjórnarsáttmálanum og því höfum við allnokkurn leiðarvísi um hvert þessi stjórn hyggst stefna í matvæla- og landbúnaðarmálum. Landbúnaðarstefna fyrir Ísland verður lögð fram á fyrri hluta kjörtímabilsins og byggð á grunni umræðuskjals sem varð til undir lok síðasta þings. Einnig er það vel að ráðast eigi í heildstæða endurskoðun á fyrirkomulagi matvæla- og heilbrigðiseftirlits. Allir sem hafa komið að landbúnaði og matvælum þekkja hversu mótsagnakennt það getur reynst að eiga við opinberar eftirlitsstofnanir sem í grunninn túlka sömu löggjöfina án þess að henni sé beitt á sama hátt í öllum sveitarfélögum. Þetta þarf að samræma. Þá er ljóst að til þess að tryggja fæðuöryggi þarf að stórauka og efla grænmetis- og kornrækt í landinu. Samkvæmt skýrslu um fæðuöryggi sem kom út fyrr á þessu ári er fæðuöryggi Íslands lakast þegar kemur að kornmeti, hvort sem er fyrir menn eða skepnur. Afkomutrygging í kornrækt Þó að hnattlega Íslands setji kornframleiðslu ákveðnar skorður eru aðstæður til landbúnaðar á Íslandi mun hagfelldari en ætla má af opinberri umræðu, vaxtartími er langur og framleiðni mikil vegna langrar ljóslotu. Íslenskur jarðvegur er afar frjósamur þótt hann sé einnig viðkvæmur og rofgjarn. Auk þess eru mikil tækifæri til að bæta ræktunarmöguleika með nútímalegum plöntukynbótum, með landbótum, t.d. skjólbeltarækt, og með bættum ræktunaraðferðum. Því er mikilvægt að setja strax af stað vinnu sem hefur það að markmiði að setja fram tillögur um hvernig best megi efla kornrækt. Um það er talað í stjórnarsáttmála, að heildstæð og tímasett aðgerðaráætlun verði mótuð um eflingu akuryrkju. Þar hlýtur að verða kannað hvernig það stuðningskerfi sem er til staðar fyrir landbúnað sé aðlagað að þeim markmiðum að efla kornrækt. Þar er margt sem hægt er að gera, en fyrst og fremst tel ég að huga þurfi að einhvers konar afkomutryggingu fyrir þá sem stunda ræktun á korni. Slíkar fyrirmyndir eru til erlendis frá og þarf að greina hvernig hægt sé að koma þeim á fót hér á landi. Öðrum kosti er ólíklegt að bændur taki þá áhættu að fara í stórfellda kornrækt ef ekki er tryggt með einhverjum hætti að þeir séu ekki launalausir ef svo illa fer að uppskera spillist. Loftslagsvænn landbúnaður Rannsóknum fleygir fram á mörgum vígstöðvum í baráttunni við að draga úr losun landbúnaðar á gróðurhúsalofttegundum. Til þess að unnt verði að taka nýjustu tækni og nýjustu þekkingu í notkun á íslenskum búum þarf að vera til markviss þekkingarmiðlun. Þar gefur verkefnið loftslagsvænn landbúnaður gott fordæmi. Sams konar metnaðarfull verkefni þyrftu að fara af stað til þess að gera gróffóðuröflun eins skilvirka og hugsast getur þannig að draga megi úr notkun á áburði og þannig minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Landnýtingarmál í sama ráðuneyti Þá eru mikil tækifæri í því fólgin að landnýtingarmál séu nú öll í sama ráðuneytinu. Með nýjum áherslum á bindingu kolefnis í gróðri má ætla að mikil tækifæri séu fyrir nýja búgrein í landinu, kolefnisbændur. Útfæra á ramma um framleiðslu vottaðra kolefniseininga í landbúnaði. Slíkt er forsenda fyrir því að hægt sé að selja þá vöru þeim aðilum sem vilja jafna út þeirri losun sem þeir ekki geta jafnað sjálfir. Hægt er að hugsa sér marga möguleika í þeim efnum. Nokkurs konar samlagsfélag bænda gæti séð um utanumhald, útvegun vottunaraðila og samtengingu kaupenda og seljenda. Þannig gætu kolefnisbændurnir sjálfir lagt fram land og vinnu við að setja niður plöntur. Gríðarlegur vöxtur er í svokölluðum valfrjálsum kolefnismörkuðum um heim allan og því er mikilvægt að hafa hraðar hendur til að grípa þau tækifæri. Annars munu fyrirtæki leita á alþjóðlega markaði og þar með glatast störf sem annars hefðu getað orðið til í íslenskum sveitum. Kári Gautason Höfundur er sérfræðingur í úrvinnslu hagtalna hjá Bændasamtökum Íslands. Nýr ráðherra með leiðarvísi Kári Gautason. FRÉTTIR HROSS&HESTAMENNSKA Fjölmennur fundur var haldinn í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri þann 18. nóvember síðastliðinn. Myndir / LbhÍ. Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst: Nýsköpunar- og þróunarsetur verði byggt upp á Vesturlandi – Byggi á sjálfbærni og umhverfisvænum landbúnaði og matvælaframleiðslu Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Þetta er í samræmi við sýn ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Hún telur að þörf sé á því að hér á landi verði til öflug stofnun sem styrkir samvinnu og nýsköpun á sviðið landbúnaðar og matvælaframleiðslu með umhverfis- og loftslagsmál að leiðarljósi. Mikilvægt að fá alla að borðinu þegar horft er til framtíðar Fjölmennur fundur var haldinn í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri þann 18. nóvember síðastliðinn með aðilum frá fyrirtækjum og stofnunum sem lýst hafa yfir áhuga á að styðja við uppbyggingu nýsköpunar- og þróunarseturs háskólasamfélagsins á Vesturlandi. Um 30 manns mættu til að ræða um framtíð íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Mikill hugur var í þátttakendum sem allir lýstu yfir áhuga á að vera í öflugu samstarfi við háskólana tvo á Vesturlandi í að móta aðgerðaáætlun og framtíðarsýn fyrir matvælalandið Ísland með áherslu á landbúnað. Forsvarsmenn frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Orkustofnun, Landsvirkjun, Bændasamtökum Íslands, Rannsóknarmiðstöð landbúnaðarins, Háskóla Íslands, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, Borgarbyggð, Breið þróunarfélag, Símenntunarmiðstöð Vesturlands, Hugheima, Orkídeu, Auðnu tæknitorgi og Íslandsstofu tóku þátt í fundinum auk fulltrúa Landbúnaðarháskólans og Bifrastar. Ísland hefur alla burði til að vera leiðandi á sviði sjálfbærrar matvælaframleiðslu Að sögn Áshildar Bragadóttur, nýsköp unar- og þróunarstjóra Land búnaðarháskóla Íslands, sem meðal annarra hefur unnið að undirbúningi stofnunar nýsköpunar- og þróunarsetursins er framtíð íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu björt. Tækifærin liggja meðal annars í því að horft sé til þeirra sóknarfæra sem felast í hreinni orku og auðlindum íslenskrar náttúru. Hagnýting nýrrar tækni, sjálfvirknivæðing, vöruþróun og nýsköpun í öllu starfsumhverfi landbúnaðar getur skipt greinina miklu máli og haft gríðarleg áhrif á tækifæri Íslands á sviði sjálfbærrar matvælaframleiðslu. Þannig velja neytendur um allan heim matvæli út frá þáttum eins og gæðum og umhverfisvitund og uppruni matvæla skiptir neytendur sífellt meira máli. Áshildur bendir einnig á að íslensk matvæli séu þekkt á erlendum mörkuðum fyrir að vera fyrsta flokks og áherslan á lúxusferðamennsku hefur gert það að verkum að fjöldi ferðamanna sækir Ísland heim með það fyrir augum að njóta þess besta sem landið hefur upp á að bjóða. „Það var virkilega ánægjulegt að finna að fjölmargir deila þeirri sýn sem við höfum til þessara greina atvinnulífsins, en á sama tíma er mikilvægt að til staðar sé stuðningur við nýsköpun og þróun á þessu sviði. Með stuðningi tveggja öflugra háskóla á Vesturlandi teljum við nýsköpunar- og þróunarsetrinu vel komið fyrir á þessu landsvæði þó setrið muni þjóna landinu öllu,“ segir Áshildur að lokum. /ÁB/HKr Frá vinnufundum á Hvanneyri. Kemur næst út 16. desember

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.