Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Leikfélag Keflavíkur býður upp á lifandi tónlist, söng og dans
í Fyrsti kossinn sem frumsýndur var 22. október síðastliðinn, en
síðasta sýning verður sunnudaginn 5. desember næstkomandi.
√ Leikfélag Mosfellsbæjar sýnir nú fjölskyldusöngleikinn Stúart
litla, en flestir ættu að kannast við söguna um músina sem heillar svo
marga. Sýnt er alla sunnudaga í nóvember og desember kl. 16:00 í
Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Miðapantanir í síma 566 7788.
√ Leikfélag Húnaþings vestra býður upp á líflega og
skemmtilega sýningu um grallarann Pétur Pan dagana 11.-14.
desember næstkomandi. Sýnt verður í Félagsheimili Hvammstanga
en sýningartímar eru klukkan 19 og miðasala við innganginn eða á
vefsíðunni www.leikflokkurinn.is/midi/petur-pan.
Hvað er í gangi?!
NEATA samtökin (North European
Amateur Theatre Alliance) eru
norður-evrópsk áhugaleiklistar-
samtök sem stofnuð voru í Noregi
árið 1998 er sameining NAR
(Norræna áhugaleiklistarráðið)
og samtök leiklistaráhugafólks í
Eystrasaltslöndunum hófu form-
lega samstarf sitt.
Við sameiningu varð NEATA eitt
af átta samtökum sem eiga aðild að
alþjóðasamtökum áhugaleiklistarfólks
(AITA/IATA).
Þau lönd sem í NEATA eru, auk
Íslands, eru Færeyjar, Noregur,
Svíþjóð, Finnland, Danmörk,
Eistland, Lettland og Litháen, en
starf samtakanna er meðal annars
að samræma og framkvæma sam-
eiginlega hagsmuni áhugaleikhúsa.
Fram að stofnun NEATA hafði NAR (
Norræna áhugaleiklistarráðið) staðið
fyrir alþjóðlegum leiklistarhátíðum
annað hvert ár og þá ein haldin í
Reykjavík árið 1986.
NEATA samtökin standa fyrir
leiklistarhátíð annað hvert ár og
skiptist á milli aðildarlanda hvar
hún er haldin hverju sinni. Síðasta
NEATA-hátíð hérlendis var haldin á
Akureyri árið 2010 undir yfirskrift-
inni Art of the Heart.
Þá voru valdar, fyrir hönd Íslands,
sýningarnar Umbúðalaust í leikstjórn
Vigdísar Jakobsdóttur og svo Birtingur
og Vínland, báðar í leikstjórn Ólafs
Jens Sigurðssonar leikstjóra en sú
síðarnefnda vakti mikla athygli og
var valin athyglisverðasta áhugaleik-
sýningin af Þjóðleikhúsinu og fór þar
á fjalirnar þann 11. júní árið 2011.
Höfundur Vínlands er Helgi Þórsson
sem í samstarfi við Beate Stormo konu
sína, kom að öllu frá hugmyndavinnu
til tónlistar, leikmyndar og búninga
sem vöktu mikla athygli enda hand-
gerðir úr smiðju þeirra hjóna.
Mátti til dæmis á líta fagurt perlu-
verk á búningum þeirra er léku skræl-
ingja auk þess sem sérstaklega bar á
buxum Eiríks rauða gerðum úr rauðu
latexi og gáfu ímyndunarafli áhorf-
enda lausan tauminn. Hljómsveitin
Helgi og Hljóðfæraleikararnir sáu
svo um tónlistina, en þeir spiluðu
undir af hjartans lyst eins og þeim
einum er lagið.
Sýningar á hátíðum NEATA eru
sýndar á tungumáli hvers lands fyrir
sig, þá ekki þýddar á neinn hátt en
tjáningu og sjónrænum þáttum leyft að
njóta sín og fá í kjölfarið aukið vægi.
Þó almennt séu sýningar áhuga- eða
leikhúsa almennt ekki gerðar með það
fyrir augum að ekki skiljist textinn,
þá er áhugavert að kynnast því hve
fagleg listræn gildi sýninga skila sér
alltaf óháð tungumáli. Í lok sýninga
er svo vaninn að opna fyrir umræður
þar sem áhorfendur fá að varpa fram
spurningum sínum eða vangaveltum.
NEATA hátíðin má segja að hafi
valdið þó nokkrum viðbrigðum í
íslensku áhugaleikhúslífi, en í kjöl-
far hátíða hafa meðlimir leikhópa
oftar en ekki fengið boð á aðrar
hátíðir. Hafa meðlimir þannig notið
þess að fá að kynnast bæði leikend-
um áhugaleikhúsa annarra landa svo
og fjölbreyttu starfi, þá meðal annars
á alþjóðlegum leiklistarhátíðum IATA
samtakanna.
Að auki hafa önnur samtök
áhugaleikhúsa í Evrópu, svo sem
CEC (Central European Committee)
og CIFTA (Conseil International des
Fédérations de Théâtre Amateur de
Culture Latine) fengið boð um að vera
með gestasýningar á NEATA og er
gaman að nefna að á hátíðinni sem
haldin var á Akureyri árið 2010 voru
sýningar frá báðum samböndunum,
rúmenska stúdentaleikhúsið frá Ludic
fyrir hönd CEC og Leikhópurinn
L´asse du Coin frá Frakklandi sem
gestur frá CIFTA.
NEATA hátíðirnar hafa verið
bæði hvatning og innblástur auk
þess sem vinabönd og tengingar
myndast. Því einstakt tækifæri
fyrir áhugafólk um leikhús að
láta slíkar hátíðir ekki framhjá
sér fara. /SP
Norður-evrópsk áhugaleiklistarsamtök:
NEATA samtökin standa fyrir leik-
listarhátíðum annað hvert ár
Saga leiklistar í Húnaþingi vestra
spannar allt frá upphafi 20. aldar
enda mikið lista- og hæfileikafólk
þar á svæðinu.
Samkvæmt „Nýja Dagblaðinu“ í
marsbyrjun árið 1934 kemur eftirfar-
andi fram. „Ungmennafélagið Grettir
í Ytri-Torfustafahreppi hefir í vetur
æft sjónleikinn Skugga-Svein eftir
Matthías Jochumsson, og sýndi hann
dagana 17.–21. febrúarmánaðar við
ágæta aðsókn og þótti leikurinn takast
vel. Leikið var í nýja samkomuhúsi
félagsins við Reykjalaug.“
Ungmennafélagið Grettir var
annars stofnað árið 1928 og stóð
fyrir uppbyggingu félagsheimilisins
Ásbyrgis á Laugarbakka sem reist var
árið 1933. Verulegt líf færðist í leik-
starfsemina á Hvammstanga árið 1969
með tilkomu félagsheimilisins sem
var vígt það ár, en þar er eitt af betri
leiksviðum landsins, allavega hvað
varðar pláss og hljóðvist. Á árunum
1969 og 1970 settu Ungmennafélagið
Kormákur og Kvenfélagið Björk upp
leikrit í samstarfi félaganna. Árið
1971 sameinuðust þessi tvö félög og
stofnuðu Leikfélagið á Hvammstanga.
Í september 2018 sameinuðust
svo Leikfélag Hvammstanga og
Leikdeild Ungmennafélagsins Grettis
í eitt og ganga nú
undir sameiginlegu
nafni, Leikflokkur
Húnaþings vestra.
Ári seinna
vann uppsetning
þeirra á verkinu
Hárið mikinn leik-
sigur, var valin
athyglisverðasta
áhugasýning ársins
2019 og í kjöl-
farið sýndar tvær
sýningar á fjölum
Þjóðleikshússins
en í umsögn dóm-
nefndar kemur fram
að mikill metnaður og sterk heild leik-
hópsins hafi átt stóran þátt í að fanga
athygli áhorfenda.
Nú á vetrarmánuðum hefur undir-
búningur leiksýningar um Pétur Pan
staðið yfir og má búast við afar líf-
legri og skemmtilegri sýningu á
frumsýningunni þann 11. desember
en verða sýningar a.m.k. fjórar tals-
ins. Ævintýrið um Pétur Pan fjallar
um drenginn sem vildi aldrei verða
fullorðinn en býr í Hvergilandi ásamt
öðrum drengjum sem heldur vilja ekki
vaxa úr grasi. Dag einn týnir hann
skugganum sínum á ferðum sinum
um Lundúnir og rekst þá á Vöndu sem
kemur honum til aðstoðar. Hann býður
henni til Hvergilands ásamt bræðrum
hennar og ásamt Skellibjöllu vinkonu
hans lenda þau í ótal ævintýrum þar
sem sjóræningjar, tifandi krókódílar
og illmennið Krókur kafteinn koma
við sögu.
Leikarar í sýningunni eru 19, þar
af 10 krakkar, og gaman er að sjá
áhugann hjá þeim aukast með hverju
ári að sögn formannsins, Arnars
Hrólfssonar. Að sýningunni koma
auk þess um 13 manns (miðað við
síðustu talningu) en í raun teljast allir
í sveitarfélaginu vera í leikflokknum,
enda allir tilbúnir til að aðstoða ef
þörf er á þeirra hæfileikum eða þekk-
ingu. Fyrirtæki á svæðinu eru að sama
skapi opin fyrir því að aðstoða, hvort
sem er að hliðra til vinnutíma vegna
æfinga, hjálpa til með efni í leikmynd
eða koma með mat á langar æfingar.
Áætlað er að áhorfendur fái að
njóta upplifunarinnar um ævin-
týri Péturs Pan í Félagsheimili
Hvammstanga dagana 11.-14. des-
ember næstkomandi. Sýningartímar
eru klukkan 19 og er miðasala við
innganginn. (Til gamans má nefna að
Leikflokkur Húnaþings vestra er byrj-
aður að undirbúa páskasöngleikinn
sem stendur til að sýna á því herrans
ári 2022. Leikfélagið fékk Ármann
Guðmundsson til að skrifa fyrir sig
handrit að söngleik með lögum eftir
Gunnar Þórðarson. Mikil eftirvænting
er fyrir því verkefni og undirbúningur
kominn á gott ról!) /SP
Ævintýrið um Pétur Pan:
Leikflokkur Húnaþings vestra
Vala Eiríksdóttir í hlutverki Freydísar
og Hallur Örn Guðjónsson eða Tyrkir,
þá að aftanverðu má sjá þrælana Haka
og Gunnar í höndum Hjálmars Arin-
bjarnarsonar og Daníels Freys Jóns-
sonar ásamt veiðimanninum Stefáni
Guðlaugssyni.
Leiksýningin Vínland eftir Helga Þórsson frá Freyvangsleikhúsinu var önnur
tveggja í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar. Hér sjást Stefán Guðlaugsson
og Ingólfur Þórsson í hlutverkum sínum sem Þórhallur veiðimaður og Eiríkur
rauði ... í latexbuxunum margfrægu.
Sýningin Umbúðalaust var unnin í samvinnu leikstjórans Vigdísar Jakobsdóttur og Leikfélags Kópavogs, en þar
mátti finna óræðar persónur á óljósum stað sem knúnar voru til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber
að garði! Sýningin hlaut mikið lof og var ein þriggja sem valin var á hátíð NEATA er haldin var á Akureyri árið 2010.
Birtingur, einnig í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðarsonar, frá Leikfélagi Selfoss
var í hópi þeirra þriggja sem fóru á leiklistarhátíðina á Akureyri í ágúst 2010.
Þessi viðamikla sýning fór því í ferðalag landshorna á milli og þótti með
eindæmum skemmtileg. Hér má sjá Brynjólf Ingvarsson í hlutverki Birtings
og greifann litríka af Vestfalíu eða Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson.
Þarna flytja leikendur lokalagið í Hárinu sem valin var
besta áhugamannasýningin árið 2019. Fremst stendur
Aldís Olga Jóhannesdóttir, boðberi ljóss og friðar.
Á myndinni má sjá þau Gerði Rósu Sigurðardóttur (Pétur Pan) og Hörð
Gylfason (Krók) að berjast um hvor eigi betur heima í Bændablaðinu.