Bændablaðið - 02.12.2021, Page 28

Bændablaðið - 02.12.2021, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 LANDBÚNAÐARANNSÓKNIR Þverfaglegt stórverkefni um sjálfbæra áburðarvinnslu: Kúamykja kemur best út í samanburði við annan lífrænan áburð – Fyrstu niðurstöður benda til þess að forvinna þurfi seyru og fiskeldisúrgang til að næringarefni verði plöntum aðgengilegar Kúamykja skilar mestri uppskeru samanborið við annan lífrænan áburð samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr stóru þverfaglegu verkefni sem ætlað er að þróa leiðir við nýtingu innlendra auðlinda til að framleiða áburð fyrir landbúnað og landgræðslu. Það er risavaxið verk að ætla að finna lausnir á áburðarvanda íslenskrar jarðræktar. Löngun og þörf bænda til að draga úr notkun tilbúins innflutts áburðar er tví- mælalaust til staðar. Engu að síður er notkun á honum enn sem komið er óumflýjanlegur hluti hefðbund- ins landbúnaðar og matvælafram- leiðslu í dag. „Framleiðsla á tilbúnum áburði er ekki sjálfbær. Nitur er framleitt með jarðefnaeldsneyti. Fosfór og kalí er unnið úr námum sem munu á endanum tæmast. Í búskap hér á landi, sem og annars staðar, er líf- rænn áburður nýttur í ræktun. Þörf er á meira magni næringarefna í jarðveginn til þess að tryggja sjálf- bæra landnýtingu. Áburðarefnin fara nefnilega alltaf burt frá búinu í formi afurða. Þess vegna þarf að endurnýja þessi áburðarefni í rækt- uninni,“ segir Friederike Danneil, verkefnastjóri á sviði fóðurjurta hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Hún stýrir verkþáttum Jarðræktarmiðstöðvar LbhÍ í verk- efninu Sjálfbær áburðarvinnsla. Verkefnið er þverfaglegt með aðkomu stofnana og fyrirtækja á sviði landbúnaðar, líf- og efnafræði, verk- fræði og matvælafræða. Matís leiðir verkefnið en það er gert í samstarfi við nýsköpunarfyrirtækið Atmonia, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Landgræðsluna og Landsvirkjun auk Landbúnaðarháskólans. Verkefninu er ætlað að leita bestu leiða til að nýta íslenskar auðlindir, aukaafurðir frá ýmsum iðnaði og þróa framleiðsluferla til að framleiða sjálfbæran áburð fyrir íslenskan landbúnað og landgræðslu. Verkefnið er til tveggja ára og hlaut 150 milljóna króna fjármögnun frá nýjum samkeppnissjóði stjórnvalda, Markáætlun um samfélagslegar áskoranir. „Aðalmarkmið verkefnis er að finna þessi verðmætu næringarefni í mismunandi tegundum landbúnaðar- og iðnaðarúrgangsefna og gera þau eins aðgengileg plöntum og þau eru í tilbúnum áburði. Við hugum að meðhöndlun og notkun lífræna áburðarins og samhliða prófunum á vörum sprotafyrirtækisins Atmonia vonumst við til að finna viðeigandi, verðmætar áburðarlausnir fyrir íslenska bændur,“ segir Friederike. Innlendur áburður styrkir sjálfbæran búskap Næringarefnaástand túna ákvarða heilbrigði þess, vöxt og uppskeru. Tún þurfa óhjákvæmilega áburðar- efni til að viðhalda næringarefnum og sum þessara efna eru hvarfgjörn, s.s. fosfór og nitur. Í ljósi hækkandi framleiðslu- kostnaðar á tilbúnum áburði erlend- is hafa margir framleiðendur hætt starfsemi. Framboð áburðar hefur því minnkað og verð hækkað úr öllu valdi. Í stað þess að treysta algjör- lega á innfluttan áburð er verkefninu því ætlað að finna leiðir til að nýta næringarefni sem nú þegar eru til staðar í íslensku vistkerfi. „Bændur endurnýta nú þegar lífræn hráefni með því að dreifa mykju og taði á túnin. En við viljum finna fleiri leiðir til að vinna næringarefnin inn í hringrásarhagkerfið. Það að nota staðbundin efni og þróa úr þeim áburð hefur marga grundvallarkosti. Framleiðsla á slíkum áburði gæti skapað störf hér á landi, notkun á innlendum áburði í stað innflutts dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda og byggir undir sjálfbæran búskap,“ segir Friederike. Lífrænn áburður gæti þurft lengri tíma Hlutverk LbhÍ í verkefninu er að blanda áburð til vettvangsrannsókna, framkvæmd í felti og mæla áhrif áburðarefna á jarðveg og uppskeru. Þau lífrænu hráefni sem unnið var með voru kjötmjöl, molta, kúa- mykja, úrgangur úr fiskeldi, manna- seyra og hænsnaskítur. Öll áburðar- sýni voru efnagreind og sýndu þau Friederike Danneil, verkefnastjóri á sviði fóðurjurta hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ), stýrir verkþáttum Jarðræktarmiðstöðvar LbhÍ í verkefninu Sjálfbær áburðarvinnsla. Hún er hér í felti rannsóknarinnar við uppskeru áburðartilraunarinnar. Myndir/ LbHÍ Hér má sjá myndrænt fyrstu niðurstöður úr verkefninu. Hér sjást áhrif áburðar á heildaruppskeru, sem er tonn þurrefnis á hektara. Efsta línan er viðmið, reitir sem fengu engan áburð. Þeir reitir gáfu að meðaltali 3-4,5 tonn á ha. Fyrir neðan má svo sjá uppskeru reita sem fengu mismunandi áburð. Eins og sjá má varð uppskeran mest á reitum sem voru meðhöndluð með kúamykju (4,5 - 5,5 tonn/ha). Uppskeran varð svo minni og varð minnst uppskera af reitum sem fengu á sig úrgang úr fiskeldi. Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Hlutverk LbhÍ í verkefninu var m.a. að sjá um blöndun áburðarins. Starfsmenn slógu tilraunareiti tvisvar í sumar, mældu uppskeru og tóku sýni.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.