Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Jólastjörnur eru fyrir löngu
orðinn hluti af jólaskreytingum
á heimilum Íslendinga yfir
skammdegið. Fátt minnir meira
á að eftir hátíðarnar fer sólin að
hækka á lofti og að halla fari að
vori en falleg blóm.
Þegar jólastjarna er keypt skal
gæta þess að henni sé pakkað inn
og muna að jólastjörnur þola illa
kulda og alls ekki að standa lengi í
köldum bíl og ráðlegt að stoppa ekki
til að versla jólagjafir eða í matinn á
leiðinni heim.
Jólastjörnur þrífast best við 12
til 21 °C og endast best við lægri
mörkin. Best er að vökva þær lítið
í einu en oft og með volgu vatni.
Moldin má aldrei þorna alveg en
það má heldur ekki standa í vatni
pottinum. Best er að láta pottinn
standa í djúpri pottahlíf sem fyllt er
í botninn með vikri. Þannig stendur
jólastjarnan ekki í vatni en nýtur
góðs af uppgufun og loftraki leikur
um hana.
Jólastjörnur þurfa góða birtu og
þrífast best í björtu herbergi eða í
austur- eða vesturglugga.
Ólíkt því sem ýmsir telja eru það
ekki blóm sem gefa jólastjörnunni
sinn fallega lit heldur svokölluð
háblöð.
Jólastjörnur eiga rætur sínar að
rekja til Mexíkó. Nánar tiltekið til
héraðsins Taxco þar sem hún vex
sem þéttur runni eða lítið tré og getur
náð þriggja til fjögurra metra hæð.
Löngu fyrir komu Evrópumanna
til Vesturheims ræktuðu innfæddir
þar jólastjörnur vegna litadýrðarinnar
og var litið á þær sem tákn um
hreinleika.
Jólastjörnur hafa verið í ræktun
á Íslandi frá því skömmu fyrir
1960. Í dag eru þær ræktaðar og
seldar í miklu magni fyrir jólin
enda sannkölluð jólablóm. Í dag
er hægt að fá rauðar, fölrauðar og
hvítar jólastjörnur.
Þjóðverjinn Albert Ecke,
sem settist að í Hollywood árið
1902, var gríðarlega heillaður
af jólastjörnunni og hóf ræktun
hennar í stórum stíl og seldi greinar
á aðventunni. Árið 1920 tókst syni
hans að framrækta dvergafbrigði
af jólastjörnu þannig að hægt var
að rækta hana í potti. Hann lagði
mikla alúð í að kynna hana og
tengja rauða litinn jólunum. Það
má því segja að Ecke yngri sé
faðir jólastjörnunnar eins og við
þekkjum hana í dag. /VH
LÍF&STARF
Jólastjörnur
Jólastjörnur hafa verið í ræktun á Íslandi frá því skömmu fyrir 1960. Í dag eru
þær ræktaðar og seldar í miklu magni fyrir jólin enda sannkölluð jólablóm.
jólablóm
Riddarastjarna, eða amaryll-
is, eins og þessi glæsilega lauk-
planta er oft nefnd, er upp-
runnin í Suður-Ameríku en
hefur dreifst þaðan sem potta-
planta vegna þess hversu harð-
ger og auðveld hún er í ræktun,
auk þess að vera blómviljug.
Blómin eru í mörgum litum,
rauð, hvít og bleik auk þess sem
þau geta verið marglit.
Áður en laukurinn er settur í
mold er gott að láta neðri hluta
hans standa í volgu vatni í nokkra
klukkutíma þar sem slíkt hraðar
rótarmyndun. Amaryllis-laukar
þrífast best í næringarríkum og
vel framræstum moldarjarðvegi
við 15 til 20 °C.
Þegar lauknum er komið
fyrir í potti skal láta helming
til einn þriðja af honum standa
upp úr moldinni en þrýsta henni
þéttingsfast að neðri hlutanum án
þess þó að skemma ræturnar séu
þær farnar að myndast.
Moldin í pottunum skal alltaf
vera rök yfir vaxtartímann en
laukurinn þolir nokkurn þurrk á
meðan hann er í hvíld. /VH
Amaryllis-laukar þrífast best í næringarríkum og vel framræstum
moldarjarðvegi við 15 til 20 °C.
Víðáttumiklar framræslur í Þykkvabæ á Suðurland. Mynd Kortavefsjá LbhÍ.
Landbúnaðarháskóli Íslands:
Nýr skurðauppdráttur
Innan Landbúnaðarháskóla
íslands (LbhÍ) hefur verið unnið
að nýju korti yfir framræsluskurði
á landinu. Eldri uppdráttur er til
frá árinu 2009.
Ástæða kortlagningarinnar er
þörf fyrir mat á umfangi framræstra
svæða í skilum til Loftslagssamnings
Sameinuðu þjóðanna.
Framræst land er sú landgerð sem
losar langmest af gróðurhúsaloft-
tegundum og því er afar mikilvægt
að hafa góðar upplýsingar um flat-
armál framræstra svæða.
Skurðakortin ásamt ýmsum
öðrum landfræðilegum gögnum
hafa verið nýtt til að áætla
hversu stórt framræsta landið er.
Tímabært var orðið að uppfæra
eldra skurðakort. Bæði hafa loft-
og gervihnattamyndir orðið mun
betri svo auðveldara er að greina
skurðina á myndunum og eins hefur
skurðakerfið breyst á þessum tíma.
Hægt er að skoða kortið á vefsjá
skólans lbhi.is Kortavefsjá og hlaða
því niður af vef Landmælinga
Íslands, Skurðakort. /VH
Samband íslenskra sveitarfélaga:
Skortur á yfirsýn í úrgangs-
og loftslagsmálum
Niðurstöður könnunar benda
til skorts á yfirsýn í úrgangs-
og loftslagsmálum. Samband
íslenskra sveitarfélaga fram-
kvæmdi nýlega könnun á
ýmsum þáttum tengdum tveim-
ur af sautján heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna. Annars
vegar heimsmarkmið 12, er
fjallar um neyslu og úrgang og
hins vegar markmið 13 um lofts-
lagsmál.
Heilt yfir má lesa út úr niður-
stöðum könnunarinnar að sveitar-
stjórnir vilja gera vel í úrgangs- og
loftslagsmálum og hafa gert það.
Þar er þó ekki öll sagan sögð því í
ljós kom að víða skortir á yfirsýn í
úrgangs- og loftslagsmálum.
Ályktanir út frá niðurstöðum
Á heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga segir að svo virðist
hins vegar að í sumum tilfellum
vanti meiri yfirsýn, stuðning
og fræðslu um þá ábyrgð sem á
sveitarfélögum hvílir og þekkingu
um þær bjargir sem til staðar eru
til að ná markmiðum og uppfylla
lagakröfur.
Athygli vekur hversu víða virð-
ist vanta yfirsýn yfir stöðu áætlana-
gerðar, gerð svæðisáætlana fyrir
meðhöndlun úrgangs og brunavarn-
aráætlana. Báðar þessar áætlanir er
skylt að vinna samkvæmt lögum
og eiga þær að liggja til grundvall-
ar í allri vinnu í málaflokkunum.
Miklar brotalamir eru á að þessar
áætlanir séu gerðar og uppfærðar
og leiðir könnunin í ljós ákveðið
ofmat meðal svarenda varðandi það
að þessar áætlanir séu til og í gildi.
Framkvæmd
Könnunin stóð yfir frá 22. sept-
ember til 21. október síðastliðinn
og var send til allra sveitarfélaga,
framkvæmdastjóra sveitarfélaga
og tengiliða Samstarfsvettvangs
sveitarfélaga um loftslagsmál og
heimsmarkmiðin. Óskað var eftir
einu svari við könnuninni frá hverju
sveitarfélagi og þá helst frá þeim
fulltrúa sveitarfélagsins sem þekkir
best til viðkomandi málaflokka. Alls
svöruðu 48 sveitarfélög og var
svarhlutfallið því um 70%. /VH
Athygli vekur hversu víða virðist
vanta yfirsýn yfir stöðu áætlana-
gerðar, gerð svæðisáætlana fyrir
meðhöndlun úrgangs.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðinu er dreift í 32 þúsund eintökum
á yfir 420 dreifingarstaði og ögbýli á Íslandi