Bændablaðið - 02.12.2021, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Undirritaður hefur nýlokið
meistaranámi í búvísindum við
Háskólann í Árósum í Danmörku
en lokaverkefnið fjallaði um
próteinfóðrun mjólkurkúa í
byrjun mjaltaskeiðsins. Með
aukinni áherslu á umhverfismál
hefur krafan um bætta nýtingu
á aðföngum og minnkun losunar
umhverfismengandi efna út í
umhverfið aukist. Umframfóðrun
á próteini leiðir af sér aukna losun
á köfnunarefni út í umhverfið og
því mikilvægt að próteinfóðra í
hæfilegu magni. Köfnunarefni í
náttúrunni getur við ákveðnar
aðstæður breyst í hláturgas sem
er öflug gróðurhúsalofttegund.
Við burð hefst mjólkurfram-
leiðsla hjá kúm sem eykur gífurlega
orku- og próteinþarfir þeirra. Kýrnar
ná ekki að innbyrða nægt fóður til að
uppfylla næringarþarfirnar og þurfa
að reiða sig á fitu- og vöðvaforða
eigin líkama til að viðhalda mjólkur-
framleiðslunni. Þetta ástand reynir á
kýrnar og er kallað neikvætt orku- og
próteinjafnvægi.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
að rannsaka neikvæða orkujafnvæg-
ið en nýlegar rannsóknir benda til
þess að neikvæða próteinjafnvægið
hafi jafnvel meiri neikvæð áhrif á
kýrnar en neikvæða orkujafnvægið.
Skýringin er talin vera sú að kýrnar
eigi auðveldara með að ná sér í orku
með því að brjóta niður fituvef frekar
en prótein úr vöðvavef. Rannsóknir
benda til þess að aukin próteinfóðr-
un fyrstu vikur mjaltaskeiðsins skili
meiri mjólk en auki ekki við efna-
skiptasjúkdóma.
Í lokaverkefni mínu voru notuð
gögn úr tilraun sem var framkvæmd
við Háskólann í Reading í Englandi.
Tilraunin byggði á þremur tilrauna-
hópum með mismunandi prótein-
fóðrun en til einföldunar verður í
þessari grein einungis rætt um tvo
þeirra. Annar hópurinn var við-
miðunahópur og fékk hann sama
fóðrið alla tilraunina sem innihélt
það próteinmagn sem oftast er
notað á dönskum búum (17 g AAT/
MJ NEL (amínósýrur frásogaðar í
mjógirni á nettóorku fyrir mjólkur-
framleiðslu)). Hinn hópurinn hafði
þrjá fasa yfir tilraunatímann með
mismunandi próteinmagni. Fyrsti
fasinn, sem hófst fjórum dögum eftir
burð, var í fjórar vikur með háum
próteinstyrk (20 g AAT/MJ NEL),
síðan sex vikna fasi í sama styrk og
viðmiðunarhópurinn (17 g AAT/MJ
NEL) og svo loks fimm vikna fasi
með próteinið í lágum styrk (15 g
AAT/MJ NEL).
Niðurstöðurnar voru ekki afger-
andi en gefa vísbendingar um
jákvæð áhrif af meiri próteingjöf
í byrjun mjaltaskeiðsins. Mikil
próteinfóðrun skilaði marktækt
meiri mjólk samanborið við við-
miðunarhópinn í fyrsta fasanum og
í öðrum fasanum þegar allar kýrnar
fengu sama próteinmagn þá hafði
tilraunahópurinn tilhneigingu til
að mjólka meira. Í þriðja fasa þar
sem tilraunahópurinn fékk fóður
með minna prótein en viðmiðuna-
hópurinn mjólkuðu þær samt jafn
mikið (þær mjólkuðu tölulega meira
en munurinn var ekki tölfræðilega
marktækur). Það sást enginn munur
á hlutfalli verðefna né fitumagni
milli hópa en próteinmagn hafði til-
hneigingu til að verða hærra í fyrsta
fasa hjá tilraunahópnum sem fékk
þá próteinríkt fóður en í hinum fös-
unum fannst enginn munur á milli
meðferða. Það fannst ekki marktæk-
ur munur milli hópa á orkuleiðréttri
mjólk (OLM) í þessari tilraun og
skýringin kannski sú að fjöldi mæl-
inga í uppgjöri hafi verið of fáar.
Einn galli á framkvæmd tilraunar-
innar var sá að það liðu fjórir til
fimm dagar frá burði þangað til að
kýrnar fengu tilraunafóðrið en margt
bendir til þess að kýrnar þurfi að fá
þetta aukna prótein strax eftir burð.
Það gæti skýrt af hverju við feng-
um ekki eins afgerandi niðurstöður
og búist var við. Í byrjun mjalta-
skeiðsins getur amínósýrusamsetn-
ing fóðursins einnig verið mikilvæg.
Fóðrið sem tilraunahópurinn fékk
var með heldur minna af amínó-
sýrunni lýsíni en viðmiðunarhópur-
inn. Rannsóknir benda til þess að
við niðurbrot á vöðvavef í amínó-
sýrur, til að uppfylla próteinþarfir
mjólkurkúnna vanti oft lýsín, sé
miðað við amínósýrusamsetningu
mjólkur. Íslenska fiskimjölið kemur
sterkt hér inn sem góður lýsíngjafi.
Að fóðra kýr með því að gefa
mikið prótein fyrsta mánuðinn eftir
burð og trappa síðan niður prótein-
styrk fóðursins í þrepum bendir
til að nýting próteins verði betri.
Hægt sé að komast upp með að gefa
minna prótein út mjaltaskeiðið með
tilheyrandi minni losun á köfnunar-
efni út í umhverfið. Prótein er oft-
ast dýrara fóðurefni en orka og ætti
þessi aðferð að skila meiri mjólk og
ódýrari fóðrun en flóknari umönnun
fyrir nýbærur. Þær eru einn við-
kvæmasti hópurinn í hjörðinni og
því mikilvægt að fylgjast vel með
þessum gripum.
Allar tilraunir með fasafóðrun á
próteini hafa verið framkvæmdar
með hópaskiptingu og heilfóðrun.
Þetta er erfitt í framkvæmd á Íslandi
vegna smæðar búa auk þess sem
heilfóðrun er ekki algeng fóðr-
unaraðferð á Íslandi. Hins vegar er
mjög algengt að kýr fái kjarnfóður
í kjarnfóðurbásum eða mjaltaþjón-
um og þar er vel hægt að útfæra
mismunun á próteinfóðrun með
mismunandi kjarnfóðurblöndum. Í
nútíma fóðrunarbúnaði er hægt að
setja upp sjálfvirkar fóðurtöflur sem
opnar góða möguleika á að finna
útfærslu fyrir fasafóðrun á próteini.
Fasafóðrun kallar á að hafa að lág-
marki tvö kjarnfóðursíló, annað
undir hápróteinblöndu og hitt undir
lágpróteinblöndu. Í miðjuprótein-
fasanum má gefa báðar tegundir
samtímis til að ná réttu prótein-
magni. Mikill fjárhagslegur ávinn-
ingur er af því að hafa möguleika
á að gefa tvær kjarnfóðurtegundir
þar sem hægt er að hafa prótein-
ríkari (hátt AAT) og gæðameiri
blöndu fyrir nýbærur og hámjólka
kýr en ódýra grunnblöndu fyrir kýr
komnar lengra fram á mjaltaskeiðið
sem í flestum tilvikum er meirihluti
hjarðarinnar.
Á tímabilinu um og eftir burð eru
kýr einstaklega viðkvæmar. Það er
mikið álag á þeim að byrja mjólk-
urframleiðsluna og jafna sig eftir
burðinn. Það þarf því að gera vel
við þær á þessum tíma til þess að
tryggja að þær fari sem best inn í
mjaltaskeiðið, en fóðrun og aðbún-
aður er þar lykilatriði. Erlendis er
töluvert verið að rannsaka þetta
tímabil varðandi próteinþarfirnar til
að auka skilninginn á þörfum kúnna
á þessu viðkvæma tímabili. Kröfur
um betri nýtingu á köfnunarefni
vegna umhverfissjónarmiða munu
fyrr en síðar einnig aukast töluvert
og er því mikilvægt að huga strax
að bættri nýtingu á próteini í fóðri.
Baldur Örn Samúelsson
fóðurfræðingur.
Fasafóðrun á próteini í byrjun mjalta-
skeiðsins hjá mjólkurkúm
LESENDARÝNI
Mynd 1. Meðalnyt kúnna í tilrauninni með öryggismörkum. Mynd 2. Meðal próteinframleiðsla kúnna í tilrauninni með öryggismörkum.
Baldur Örn Samúelsson.
Helstu upplýsingar
Heitt vatn frá samveitu. Ljósleiðari og þriggja fasa rafmagn. Á jörðinni er nú rekið stórt bú með á fjórða
hundrað nautgripum til kjötframleiðslu, þar af 40 holdakýr. Norðtunga og Norðtunga II eru taldar
vera rúmir 320 hektarar, allt vel nýtanlegt land. Heynytjar eru af um 140 hektörum. Bærinn stendur
á norðurbakka Þverár, við Berghyl. Allmikill sveigur er á ánni innan við bæinn. Norður frá bænum er
flatlend mýri, kölluð Norðtunguflaga, inn að Norðtunguskógi. Þetta land var ræst fram fyrir allmörgum
árum og er nú þurrt. Ræktunarland er mjög gott og túnin samfeld og þægileg í norðvestur frá bænum.
Austanvert við Þverá eru sléttur, uppgrónar eyrar sem áður voru nýttar til slægna. Upprekstrarréttur á
Þverárhlíðarafrétt. Norðtunga er mikil hlunnindajörð af laxveiðum í Þverá og Litlu Þverá, því landið liggur
í tungu á milli ánna og að ármótum þeirra. Varanlegt slitlag verður komið alla leið úr Reykjavík á næsta
ári ef allt gengur eftir. Norðtunga er þekktur sögustaður, þar er elsta hengibrú landsins byggð um 1900
og er nú friðuð. Í landi jarðarinnar er Kirkjustrengur, sem er einn af frægustu veiðistöðum landsins.
Jarðirnar eru til sölu í fullum rekstri ásamt bústofni, vélakosti og heybirgðum. Til greina kemur að selja
Norðtungu II sér, eða báðar jarðirnar saman án bústofns og véla.
Norðtunga og
Norðtunga II
í Borgarfirði
Til sölu jörðin Norðtunga og Norðtunga II í Borgarfirði, en þar eru tvö lögbýli auk kirkjustaðar
sem talinn er vera frá árinu 1200. Um er að ræða sögufræga hlunnindajörð, vel uppbyggða með
góðum húsakosti og umtalsverðum veiðihlunnindum.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson í síma 892 6000
eða magnus@fasteignamidstodin.is
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi s. 550 3000 er með
til sölu jörðina Goddastaði í Laxárdal Dalabyggð.
Húsakostur m.a. myndarlegt steinsteypt íbúðarhús byggt árið 1976. Húsið er á
tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr stærð samtals 299,1 fm.
Tvær íbúðir eru í húsinu. Á efri hæð er andyri og eldhús, þvottahú baðherbergi
og fjögur svefnherbergi og stofa. Á neðri hæð er andyri, tvö svefnherbergi, stofa,
eldhús og þvottahús. Einnig eru fjárhús, hlöður og geymslur allt eldri hús.
Kalt vatn frá samveitu. Landstærð er talin vera um 320 hektarar. Jörðin er aðili
að Veiðifélagi L xár og eru veiðitekjur töluv rðar.
Á Goddastöðum var búið með sauðfé. Gæti hentað vel m.a. í skógrækt og eða
ferðaþjónustu. Áhugaverð jörð á söguslóðum Laxdælu.
Nánari upplýsingar í síma 550 3000 eða
á netfangið magnus@fasteignamidstodin.is
Goddastaðir í Laxárdal
NYTJAR HAFSINS
Krókaaflamarkshlutdeild:
Samþjöppun veiðiheimilda
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
vakti athygli á áframhaldandi
samþjöppun veiðiheimilda í
króka aflamarkinu á aðalfundi
LS sem haldinn var fyrir skömmu.
Að sögn Arnar er ekkert lát á
samþjöpp uninni og er nú svo komið
að 50 stærstu bátar í krókaaflamark-
inu eru með 91% heildarúthlutunar
þorskígilda í kerfinu og hefur hlut-
deild þeirra hefði vaxið jafnt og þétt
á undanförnum árum.
Jafnframt kom fram að 202 bátar
hefðu fengið úthlutað meiru en 10
þorskígildum, þannig að 152 bátar
skipta með sér 9% hennar.
Fjölmargir eigendur krókaafla-
marksbáta hefðu kosið að bæta við
sig veiðiheimildum, en því miður
ekki haft árangur sem erfiði. Nánast
útilokað að keppa við stórar útgerðir
sem jafnframt hafa vinnslu á bakvið
sig.
Grunnur ehf. er með mestu
krókaaflamarkshlutdeildina 4,66%
en hámarkið er 5%. Tíu stærstu eru
með 38,6%. /VH
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300
Örn Pálsson.