Bændablaðið - 02.12.2021, Page 58

Bændablaðið - 02.12.2021, Page 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 Það eru væntanlega ekki nein tíð- indi fyrir kúabændur að með því að bæta júgurheilbrigðið á búum sínum hefur það bein jákvæð áhrif á reksturinn. Það vefst þó fyrir mörgum hvern­ ig eigi að ná raunverulegum tökum á ástandinu, hvernig eigi að standa að því að bæta júgurheilbrigðið skref fyrir skref þar til ásættanlegri niður­ stöðu er náð. Það eru þó til allgóðar „þumalputtareglur“ sem hægt er að fylgja og komast þannig vel af stað á þessari leið. Hvenær er ástandið gott? Kúabændur hafa í áratugi notað frumutölu sem mælikvarða á júgur­ heilbrigði kúnna og þó svo að hægt sé að nota aðrar mæliaðferðir þá er þetta ágætis aðferð við að meta heildará­ stand búanna. Tankfrumutala, sér­ staklega þegar horft er til lengri tíma t.d. eins árs, gefur ágæta mynd af stöðu búsins og þumalputtareglan hér er að ef frumutalan er yfir 120.000 frumur/ml þá má bæta úr ástandinu með þekktum aðferðum. Það er þó svo að til þess að ná frumutölunni niður þarf markvissar aðgerðir og aðferðir. Mín reynsla er að því lægri sem maður vill ná frumutölunni því erfiðara er það. Þannig hefur flestum bændum reynst allauðvelt og fljótlegt að ná henni úr 300.000 í 200.000 og flestum reyn­ ist ekki mjög erfitt að ná henni úr 200.000 í 150.000 með skilvirkni. Það hefur svo reynst mörgum allerfitt að fara úr 150.000 í 120.000, svo ekki sé talað um lægra en það, en þeim snarfjölgar þó í þeim hópi sem eru með stórar hjarðir kúa en frumu­ tölu í tank um eða undir 100.000. 130 smitvaldar þekktir Júgurbólgu valda ótal smitvaldar og alls hafa verið greindir 130 í heim­ inum til þessa en við horfum þó aðal­ lega á tiltölulega fáar bakteríur sem meginorsakavalda tilfellanna sem kýrnar lenda í. Þetta eru mikið til sömu tegundir af bakteríum í öllum helstu framleiðslulöndum mjólkur og í dag eru til markvissar og þraut­ reyndar aðferðir til þess að útrýma þessum bakteríum úr fjósum. Það er þó oftast þannig að í hverju fjósi er ein ákveðin tegund af bakteríu sem er algengust og mesti skaðvaldurinn. Fyrst þarf s.s. að komast að því hver hinn raunverulegi óvinur er og því þarf að taka sýni úr sýktum kirtlum og senda í PCR greiningu. Ekki er nóg að nota einung­ is eitt PCR sýni til þess að búa til „hernaðaráætlun“ búsins, heldur hef ég miðað við að hafa a.m.k. 5 kýrsýni til grundvallar auk þess að hafa PCR tanksýni líka. Ef þetta liggur ekki fyrir, er ekki hægt að setja út góða áætlun að mínu mati. Hvert bú er einstakt Það er annað sem er mikilvægt að gera sér grein fyrir en það er að hvert kúabú er einstakt og því er ekki hægt að færa leiðbeiningar svo auð­ veldlega á milli búa. Þetta er vegna þess að hver flokkur smitvalda er einstakur og þarf að gera sérstakar ráðstafanir til þess að „útrýma“ þess­ um smitvaldi. Hér áður fyrr, áður en hægt var að fá nákvæma greiningu á bakteríum, voru ráð okkar til bænda að hlúa að öllum þekktum þáttum á viðkomandi kúabúi, þ.e. þeim þáttum sem sneru að því að bæta úr júgur­ heilbrigði. Þetta gátu verið þættir eins og að meðhöndla frumuháar kýr, halda nærumhverfi kúnna hreinu, mjólka kýrnar með ákveðnum hætti og nota sótthreinsiefni. Í dag, þegar vitað er hver hinn raunverulegi skaðvaldur er, getum við aftur á móti sett upp mun einfaldari og skilvirkari aðgerð­ aráætlun sem þá einblínir á þau atriði sem vitað er að virka í baráttunni gegn viðkomandi smitvaldi. Skrifborðsgreining kúabús Ég hef oft kallað þessar greiningar „skrifborðsgreiningar“ þ.e. ef til eru nógu góð gögn þá er hægt að mynda sér allgóða sýn á stöðu búsins og hvað þurfi að gera án þess svo mikið að koma í heimsókn á viðkomandi kúabú! Auðvitað er alltaf betra að ráðgjafi mæti á staðinn, fari yfir vinnubrögðin og skoði aðstæður. Á FAGLEGUM NÓTUM Aðventan er sérstakur tími. Tilhlökkunin til jólanna endurspeglast á ýmsan hátt í daglega lífinu. Nýr blær fær- ist yfir mannlífið, jólaljós eru hvarvetna og annar taktur yfir samfélaginu, hraður eða hægur eftir atvikum. En hvað hefur það með garðyrkjuna að gera? Jú, heilmikið. Fagurlega skreyttir aðventu­ kransar, kertaskreytingar og ýmislegt annað jólaskraut byggja á kunnáttu og list­ fengi blómaskreytingafólks úr garð yrkjugeiranum. Blóma­ verslanirnar fyllast af þeirra handverki, búðargluggar, kirkjur og stofnanir nýta sér það aldrei eins og á aðventu og jólum. Í s l e n s k blóm eru not­ uð til að gleðja augað í híbýl­ um lands­ manna, bæði af skorin blóm og pottaplöntur sem á einn eða annan hátt vísa til hátíðarinnar sem í vændum er. Rauðu jóla­ túlipanarnir fara að birtast, hinar fallegu hýasintur fylla húsin ilmi sem flestir tengja aðventu og jólum, margvísleg potta blóm eins og jólastjörnur, glæsilegur amaryllis, begoníur og jólakaktusar prýða heimili, fyrirtæki, veitingahús og stofn­ anir. Blómabændur hafa staðið í ströngu frá því síðsumars við að rækta þessi blóm, sum jafnvel allt frá fræi eða litlum græðlingum. Skógurinn og jólin Stafafuran ber höfuð og herðar yfir önnur íslensk jólatré, þau eru í sífellt auknum mæli höggvin í nágrenni þéttbýlis og skilja ekki eftir sig sótspor líkt og innflutt tré gera, svo ekki sé minnst á plast­ jólatrén. Nú heyrir það næstum sögunni til að hávaxin jólatré sem notuð eru á torgum eða til að fegra stærri byggingar séu flutt hingað frá öðrum löndum. Í skógum okkar er nægilegt fram­ boð af jólatrjám í öllum stærðum. Margar fjölskyldur gera það til hátíðarbrigða að sækja sitt eigið jólatré í skóga þar sem sú þjónusta er veitt. Sumir nota sérstök tröpputré eða þá greinar af sígrænum trjám til að skreyta, bæði utanhúss og innan. Greni­ og furukönglar, viðarplattar, börkur og birkigreinar eru einnig dæmi um skógarafurðir sem íslenskir framleiðendur útvega í auknum mæli. Skógræktarfélög og skógarbændur víða um land stunda þessa iðju og færa þannig tekjur heim í hérað sem annars færi í erlenda vöru. Margvíslegar aðrar skóg­ ar afurðir eru notaðar til skreyt inga um hátíðirnar. Garðplöntuframleiðendur koma að þessari ræktun með kunnáttu sinni við framleiðslu ungu plantnanna sem eru gróðursettar í upphafi. Svo skulum við ekki gleyma því að hangikjötið er oft reykt við eld frá íslenskum skógartrjám. Skrúðgarðyrkjan og jólin Skrúðgarðyrkjumenn bjóða þjónustu sína við að fegra garða og torg. Sumir þeirra hafa sér­ kunnáttu í garðaskreytingum og eiga sinn hlut í að setja upp hinar flóknustu ljósaseríur í runnum, trjám og um víðan völl. Sum þessara ljósa munu vonandi lýsa okkur veginn fram eftir vetri. Jólamaturinn Grænmetisbændur hafa líka margt fram að færa sem tengist hátíðunum. Ylræktarbændur bjóða fram sitt besta græn­ meti úr gróðurhúsum, tómata í ýmsum gerðum, gúrkur, sveppi, papriku, fjölbreytt úrval laufsal­ ats auk kryddjurta sem auka á hátíðleik matargerðarinnar og margt annað má finna hjá þeim. Útiræktað grænmeti eins og rauð­ kál, rauðrófur, hvítkál, kínakál, gulrófur og kartöflur eru í boði frá íslenskum matjurtaframleið­ endum. Þeir heppnu ná jafnvel í íslensk jarðarber um jólin. Áhugasamir garðeigendur geta líka lagt fram eigin fram­ leiðslu úr heimilisgarðinum á veisluborð jólanna. Þar má nefna heimafengnar gulrætur og aðra rótarávexti, grænkál, kryddjurtir og hver vill ekki bjóða íslenskar kartöflur úr eigin garði með hangikjötinu? Ingólfur Guðnason. Garðyrkjan og jólin Fallegir kransar tilheyra íslensku jólahandverki. GARÐYRKJUSKÓLINN Á REYKJUM Snorri Sigurðsson snorri.sigurdsson@outlook.com Með tilkomu PCR greiningartækni hefur skilvirknin við greiningar á sýkingarvöldum aukist verulega. Mynd / Lactnet Júgurheilbrigðisáætlun ætti að vera til á hverju kúabúi Það er komin afar góð reynsla með júgurheilbrigðisáætlanir í nágrannalöndum okkar og mögulega líka á Íslandi. Best er að gera skriflega áætlun fyrir búið, skrifa niður hvaða smitvaldar eru „óvinurinn“ og vinna svo markvisst að því að uppræta hann. Fylgja því svo eftir með reglulegu eftirliti og a.m.k. mánaðarlegum PCR prófum á tankmjólkinni. Stafafura er eitt vinsælasta íslenska jólatréð.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.