Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 59

Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 Tilfellið er að ótrúlega nákvæma greiningu má gera á heilsufarsstöðu kúabús út frá því einu að rýna í PCR niðurstöður frá viðkomandi kúabúi og út frá slíkri greiningu má svo setja upp drög að júgurheilbrigðisáætlun sem tekur á þeim þáttum sem vitað er að hafa áhrif á megin smitvaldinn Þannig má t.d. geta sér nokkuð vel til um ástand fjósanna og má nefna sem dæmi að ef megin orsaka- valdurinn er Uberis, þá eru miklar líkur á því að fara þurfi yfir það hvernig viðkomandi bóndi vinnur í fjósinu, en ef megin smitvaldurinn er t.d. Aureus myndi ég ekki nota mikinn tíma í að ræða vinnubrögðin í fjósinu en þess í stað horfa meira á mjaltirnar. Sé E. coli megin vandamálið (sem ætti ekki að vera algengt) þarf að fara yfir almennt heilsufar kúnna og fóðr- un en sé Dysgalactiae vandamálið þarf að skoða vel hvernig húðhirðu er háttað svo nokkur dæmi séu tekin. Smitefnið Þegar framangreind gögn liggja fyrir og gerð hefur verið almennileg úttekt á aðstöðu og vinnubrögðum á kúa- búinu er svo tiltölulega einfalt mál að setja upp júgurheilbrigðisáætlun búsins. Slík áætlun leggur línurnar varðandi helstu forvarnir til þess að draga úr líkum á því að algengustu smitvaldar viðkomandi bús nái að hafa veruleg áhrif, í raun má líta á þetta eins og inngrip í lífshringrás smitvaldanna. Allir hafa þeir ákveðin einkenni og þurfa ákveðið umhverfi til þess að lifa af og áætlunin snýst um að rjúfa þessa hringrás og koma þannig í veg fyrir útbreiðslu smitefnanna. Algengustu atriðin í lífshringrás smitefnanna, sem reynt er að grípa inn í, eru næringarskilyrðin, hita- stigið, rakastigið og sýrustigið. Með því að fjarlægja einn þessara þátta úr hringrás smitefnanna lifa þau ekki af. Þannig er í raun óþarfi að ráðast á alla þættina í einu, mun skilvirkara að reyna að taka einn þeirra fyrir og gera það almennilega! Snýst um bóndann Það eru engar töfralausnir til og t.d. notkun á alls konar sótthreinsi- efnum er klárlega ekki leiðin til þess að ná tökum á ástandinu, en getur þó í ákveðnum tilfellum hjálpað til, eins og t.d. með því að nota rétta spenadýfu eftir mjaltir. Langoftast er þó megin skýr- ingarþátturinn fólginn í því hvernig staðið er að vinnu og hvernig vinnu- lagið er á búinu. Það getur stundum snert bændurna þegar þessi liður er gagnrýndur en hjá því verður ekki komist að líta í eigin barm og skoða með opnum huga hvort eitthvað við vinnulagið megi gera öðruvísi. Þetta geta verið atriði eins og hvernig umhverfi kúnna er haldið þannig að smitefni eigi erfitt með að fjölga sér eða t.d. hvernig hlúð er að sjúk- dómavörnum kúnna. Krefst vinnu Ég held að ég geti fullyrt að flestir bændur sem ég hef unnið með, bæði hérlendis og erlendis, hafi allra helst viljað fá það svar að hægt sé að ná árangri hratt og auðveldlega, en reynslan sýnir að til þess að ná góðum árangri þarf að leggja á sig töluverða vinnu. Margir hafa sagt við mig að þeirra fjós sé svo gamalt og illa hannað að það sé ekki hægt að ná árangri eða að mjaltakerfið sé ekki nógu gott og þar fram eftir götunum. Tilfellið er að aðstaðan sjálf, þótt hún sé gömul og slitin, ætti ekki að vera nein hindrun fyrir því að ná árangri enda snýst málið oftar en ekki um bóndann sjálfan. Það sem reynist nefnilega langerfiðast er að breyta vinnulaginu sjálfu. Að breyta því hvernig við gerum ákveðna hluti og stöndum að vinnu er ekki eitthvað sem hægt er að gera svo auðveldlega, en það geta samt allir náð árangri í alls konar fjósum, sé einbeittur vilji til staðar. Að koma í veg fyrir eldinn Það er komin afar góð reynsla með júgurheilbrigðisáætlanir í nágranna- löndum okkar og mögulega líka á Íslandi. Best er að gera skriflega áætlun fyrir búið, skrifa niður hvaða smitvaldar eru „óvinurinn“ og vinna svo markvisst að því að uppræta hann. Fylgja því svo eftir með reglu- legu eftirliti og a.m.k. mánaðarlegum PCR prófum á tankmjólkinni. Með því er hægt að fylgjast með þróun smitefnanna í fjósinu og þá hvernig innbyrðis hlutfall þeirra sé að þróast auk þess sem tíðni þeirra mælist um leið. Þegar svo líður á baráttuna gerist það iðulega að aðrar bakteríur ná sér á strik þ.e. verða meira áberandi í sýnunum og þá þarf að aðlaga áætlunina að þeim aðstæðum. Með öðrum orðum þá er markviss júgurheilbrigðisáætlun breytileg og á að þróast með búinu enda er hlutverk hennar á hverjum tíma að hjálpa bóndanum að koma í veg fyrir að eldurinn kvikni í stað þess að hann/hún þurfi að standa í slökkvistarfi. Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Grammer sæti Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is VETRARBÚNAÐUR Salt- og sanddreifarar. Amerísk gæðatæki sem endast. Júgurbólgu valda ótal smitvaldar og alls hafa verið greindir 130 í heiminum til þessa en við horfum þó aðallega á tiltölulega fáar bakteríur sem meginorsakavalda tilfellanna sem kýrnar lenda í. VÖLDUM SKEMMUM TILBOÐ Á TIL ÁRAMÓTA BOGAHÚS ÓDÝR 12-15-18-20 M SKEMMUR TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is BOGAHÚS Stærðir frá 40 m², fást með og án einangrunar. Erum að bóka hús og uppsetningu fyrir vor og sumar 2022. Boghúsin fást óeinangruð og nú einnig einangruð. Breiddir frá 12m og upp í 20m. Erum að bóka hús og uppsetningu fyrir vor og sumar 2022. Smáauglýsingar 56-30-300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.