Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 63

Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 Fyrripart árs var gott hvað lága slysatíðni í umferðinni varðar og virtist stefna í óvenju fá dauðaslys. Svo kom nóvember með sínum myrkvuðu dögum og vondum birtuskilyrðum. Mörg alvarleg slys urðu í þessum mánuði sem öll áttu sér stað í myrkri eða við léleg birtuskilyrði og launhálku sem ekki var fyrirsjáanleg. Í nóvember létu þrír einstaklingar lífið í umferðinni og nokkrir slösuðust alvarlega. Eins og margoft hefur komið fram hér í þessum pistlum um vetrardekk, þá á enginn að gera sjálfum sér það eða öðrum að vera að þvælast um í vetrarumferð nema með góð dekk sem ætluð eru til aksturs í vetrarfærð. Minningardagur fórnarlamba umferðarslysa Sunnudaginn 21. nóvember var minn- ingardagur fórnarlamba umferðar- slysa og þann sama dag kom fram í samantekt að alls hefðu tæplega 1.600 manns látist í umferðarslysum frá 1915. Á svona degi minnist maður vina og kunningja sem hafa látið lífið í umferðinni með söknuði og sorg, en á sama tíma hugsar maður til þess hvað maður getur gert til að bæta um- ferðina og fækka slysum, eða koma í veg fyrir þau. Á þessum minningardegi kom einnig fram að um 25.000 Íslendingar nota ekki öryggisbelti við akstur bíla. Þetta er náttúrlega óboðlegt og ættu allir að hjálpast að til þess að venja þessa 25.000 af þessum ósóma því það er staðreynd að beltin bjarga. Lög og reglur vísvitandi brotnar Síðastliðið vor tók ég rafskutlu í prufuakstur, en við það tækifæri sagði sölumaður rafskutlunnar mér það að rafskutlur mætti aldrei keyra hraðar en á 25 km hraða. Hann sagði einnig að ef rafskutla lenti í um- ferðarslysi væri farið yfir hvort búið væri að „eiga við skutluna“ til að komast yfir leyfilegan hámarkshraða. Ef svo væri, þá falla allar tryggingabætur úr gildi og ábyrgðin væri þess sem breytti rafskutlunni. Því er umhugsunarefni hvort við- komandi sé borgunarmaður fyrir hugsanlegu tjóni eða dánarbótum sem gætu hlotist af of miklum hraða á rafskutlu. Fyrir nokkru las ég frétt á Vísi um dóm yfir hestakonu sem dæmd var til að taka á sig helmingshlut af tjóni sem hún varð fyrir er hún féll drukkin af hestbaki. Konan mældist með 2,38 vínanda í blóðinu (Sem þýðir á góðri íslensku að vera „blind-full“). Hefði ég verið dómari þarna hefði konan ekki fengið neinar bætur og hefði ég frekar viljað sekta hana fyrir að vera ölvuð á hestbaki. Samkvæmt áströlskum lögum hefði viðkomandi bæði misst ökuréttindi og verið ákærð fyrir dýraníð). Sums staðar er umferðin svo hættuleg að hjálp er nauðsynleg Vinnu minnar vegna síðastliðin sex ár hef ég lent í mörgum vafasömum aðstæðum við að aðstoða bílstjóra sem hafa stoppað úti í vegkanti ýmist með rangt eldsneyti á bílnum eða sprungið dekk. Þegar ég kem að svona aðstæðum, þá er það mitt fyrsta verk að meta aðstæður út frá áhættu hvort hægt sé að vinna verkið á staðnum eða hvort það sé lífshættulegt. Oftast hef ég leitað til lögreglu til að fá blá blikkandi ljós fyrir aftan mig til að tryggja vinnusvæðið svo ég verði einfaldlega ekki drepinn. Aldrei hefur lögreglan neitað mér um aðstoð og alltaf bregðast þeir fljótt við. Meira að segja þegar kanslari Þýskalands var hér á landinu með allri sinni öryggisgæslu, var hægt að senda mér tvo lögregluþjóna á mótorhjólum til að passa „karlræfilinn“ í 10 mínútur. Það besta við aðstoð lögreglunnar er að þeir þekkja vinnubílana sem ég er á. Ef þeir sjá mig í vegkanti að vinna, koma þeir óumbeðið og stoppa hjá mér með blá blikkandi ljós þar til ég hef lokið vinnu í vegkantinum. Símasjúklingurinn í umferðinni er mér hættulegastur Stundum met ég aðstæður rangt og bið ekki um aðstoð, en það gerðist í síðustu viku að ég mætti í vegkant til að dæla röngu eldsneyti af bíl. Í fyrstu virtist þetta ætla að sleppa þar sem úti var bjart og útsýni gott. Vinnubíllinn var vel sjáanlegur með gul blikkandi ljósin. Verkið dróst samt fram í ljósaskiptin og umferðin þyngdist. Það var svo sem í lagi nema hjá þessum 5-7 bílstjórum sem voru í símanum. Það munaði bara örfáum sentímetrum nokkrum sinnum að keyrt hefði verið á bílinn sem verið var að aðstoða. Þar voru að verki öku- menn sem voru uppteknir í símanum við aksturinn. Umferðin er ekki leik- völlur fyrir „símasjúklinga“. Hættið þessari símanotkun við aksturinn! Maður sem ég átti spjall við fyrir nokkru síðan sagði mér að hann ætti erfitt með að fyrirgefa sjálfum sér þegar hann klessti nýja bílinn sinn. Hann var í símanum, en hann bætti við: „… ég þakka samt fyrir að enginn slasaðist, það hefði verið ófyrirgefanlegt með öllu.“ ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Smáauglýsingar 56-30-300 GRYFJA BLAÐRA G HEGNI R ÁFORM MERKING Æ TULDUR ÖRLÆTI SBÓK- FÆRÐUR K R Á S E T T U R KKOSNING VINNUVÉL J Ö R PATA F Á L M A RG A F MEGA TIL VIÐUR- EIGNA S K U L U F KÆR KLINK N Á I N N SKAMMIR S KIDDA VENJU- LEGAST ÞVAGA O F T A S T ÞYKIR U UTAN GRÓÐI Á N SKOLLANSFÓTMÁL EHVORT UPPLJÚKA BÝSN A S K Ö P TVÍHLJÓÐI VESÆLL A U NIÐUR- FELLING A F N Á M FISKURÓ V I S N A SAGGI FITA R A K I FUGL MEGN- UÐUM G Æ SSKRÆLNA E Ð ARMA SKIPAST A U M A RÍKI Í AFRÍKU VIT A N G Ó L ASTAFUR ÍMYNDUN R A R ÓFÁ FROSKUR M Ö R G NÆÐI NAÐRA N Á Ð I RÓ Ð RÆKTAR- LAND ÁS A K U R HROKI GÖTU R O S T I SVEIFLA D H Æ Ð A R DVELDU UPPTÖK V E R T U STÖÐUGT SARG S ÍHÓLS BLANDAR A G A R ÞVENGUR R E I M GIN ÁTT M U N NL L I I R S T T A HÓTUN S Ó T G VOFUR N D U R N A RÝJA U R G Ú A AFÆRNI SJÁST B H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 164 ILLFYGLI BURÐAST ÁLAG FÉLAGI SLAGA ARMA UMBER VEISLA MANG HVIÐA ÁLÍTA KK NAFN EIN- HVERJIR TUNGUMÁL ÆÐA DÁLKAR SYNJA VÆTA GLÖGG Í RÖÐ ÁLITINN SKÓLI HINDRA SKRAPI ÁTT LEIÐ MÖGLA Í RÖÐ GAGN HÖKTA INN- PRENTA HIRÐA RÓTLEYSI ÓVISSA LOK VISTA ÁVINNA FLEKKUR EINSAMALL REYTA TVEIR EINS SKYNSEMI HÍM LANGAR ÚT FJÁÐ DÆLD MEST JARÐEIGN KVK NAFN TÓNLIST FÖLNI ÞREYTA BÝLI SMÁBITI ANDÚÐ SKAÐI HJÁLP TVEIR EINS VAPP NÓTA BRÚSKUR EINUNGIS HAFGOLA ÓREIÐA ERGI- LEGUR H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 165 Hugsaðu áður en þú framkvæmir! Hér vannst verkið hættulaust í skjóli lögreglu. Hér hrelltu símasjúklingar mig mikið. LAUFABRAUÐS- VÖRURNAR ÓMISSANDI Í JÓLAHALDIÐ dúkar, viskastykki, bakkar o.fl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.